blaðið - 21.07.2006, Side 27
blaðiö FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 2006
kolbrun@bladid.net
Eg get lofað að
vera einlægur
en ekki hlutlaus.
Goethe
Afmælisborn dagsms
ROBIN WILLIAMS, LEIKARI, 1952.
ERNEST HEMINGWAY, RITHÖFUNDUR, 1899.
Jón Hallur Stefánsson.
Jón Hallur selur
óskrifaða bók
til Þýskalands
Þýski útgáfurisinn Ullstein Buc-
hverlage hefur fallið kylliflatur
fyrir Jóni Halli Stefánssyni, sem
kallaður hefur verið krónprins
íslenska krimmans. Ullstein
Buchverlag hefur keypt útgáfu-
réttinn að sakamálasögunni
Krosstré og ónefndri bók sem
Jón Hallur hefur í smíðum.
Krosstré var ein söluhæsta bók
síðasta árs, enda voru viðtökur
lesenda og gagnrýnenda á einn
veg, og hún kom snemmsum-
ars út í kilju. Þýðingarréttur á
Krosstré hefur nú verið seldur
til virðulegra forlaga í Dan-
mörku, Noregi og Hollandi, auk
Þýskalands, og í ársbyrjun
var kvikmyndarétturinn seldur
til kvikmyndafyrirtækisins Pe-
gasus.
Dvergarnir í Oz
Galdrakarhnn frá Oz er klass-
ísk Hollywood kvikmynd. Þar
brá fyrir dvergum sem virtust
ansi sakleysislegir. Leikstjóri
kvikmyndar-
innar, Mervyn
Le Roy, og
aðalleikonan,
Judy Garland,
hneyksluðust
þó oft á fram-
komu dverg-
anna utan
sviðs og sögðu
þá stunda kynlífssvall og
drykkju. Nú hefur verið samið
leikrit um dvergana, Babylon
Heights. Höfundarnir eru tveir,
Irvine Welsh (höfundur Train-
spotting) og Dean Cavanagh,
og sögusviðið er Hollywood á
fjórða áratugnum. Leikararnir
eru ekki dvergar en umgjörð
og húsgöng eru stækkuð til að
gefa áhorfendum þá hugmynd
að þarna séu dvergar á ferð.
Sýningin hefur vakið athygli en
nýlega gagnrýndu hagsmuna-
samtök dverga sýninguna og
óttast að hún muni ýta undir
fordóma gegn dvergum. Irvine
Welsh segir gagnrýnina vera
byggða á misskilningi, þar sé
alls ekki verið að hæðast að
-dvergum.
Kvennamaðurinn Einstein
fri hluti líkamans gerir
áætlanir og hugsar með-
an sá neðri ákvarðar
örlög okkar,“ sagði vís-
Wammm indamaðurinn Albert
Einstein. Bréfasafn snillingsins hef-
ur nýlega verið gert opinbert og sýn-
ir að þar var mikill kvennamaður á
ferð. Maður sem sá ekkert athuga-
vert við að ræða ástarævintýri sín
í bréfum til seinni eiginkonu sinn-
ar, Elsu og til Margot stjúpdóttur
sinnar. í bréfunum kvartaði hann
stundum undan því að vera eltur af
ástsjúkum konum.
Barnið sem hvarf
Einstein varð fyrst ástfanginn
þegar hann var 16 ára gamall. Marie
Winteler var tveimur árum eldri
en hann og hann skrifaði henni
ástríðufull bréf. Ástin entist þó ekki
því önnur kona greip huga hans. Sú
var Mileva Maric sem var fjórum
árum eldri en hann. Hún fæddi hon-
um dóttur en enginn veit með vissu
hvað varð um barnið. Ein kenning
er að það hafi verið ættleitt en aðrir
telja að það hafi dáið. Mileva og Ein-
stéin gengu loks í hjónband og eign-
uðust tvo syni, annar var seinna skil-
greindur með skítsófreníu.
Ástfanginn af mæðgum
Eftir níu ára hjónaband hóf Ein-
stein ástarsamband við Elsu Lö-
wenthal. I bréfi til Elsu lýsti hann
eiginkonu sinni sem óvingjarnlegri
og húmorslausri og sagði: „Ég kem
fram við konu mina eins og starfs-
mann sem ég get ekki rekið.“ Þau
Mileva skildu loks en þá var Ein-
stein orðinn yfir sig hrifinn af dótt-
ur Elsu, Ilse sem þá var tvítug. Ein-
stein sagði þeim mæðgum að hann
væri tilbúinn að kvænast annarri
hvorri þeirra, þær mættu velja hvor
það yrði. Ilse var ástfangin af vini
Einsteins, Nikolai og skrifaði hon-
um: „Albert (Einstein) neitarsjálfur
að taka ákvörðun, hann er tilbúinn
að giftast annað hvort mömmu eða
mér. Ég veit að Albert elskar mig
mjög heitt, kannski meira en nokk-
ur annar maður mun nokkru sinni
gera, hann sagði mér það sjálfur í
«
gær.
Umkringdur konum
Einstein kvæntist Elsu en varð
fljótlega ástfanginn af annarri konu,
Betty Neumann, sem var frænka
besta vinar hans. Hann gerði hana
að ritara sínum og ástarævintýri
þeirra stóð í ár en laukþá því að Ein-
stein fann til sektarkenndar vegna
þess að hafa sett unga stúlku í erfiða
aðstöðu. Hann sagði skilið við Betty
með orðunum: „Ég verð að leita í
stjörnunum að því sem mér var neit-
að um hér á jörð.“ En það voru aðrar
konur í lífi hans. Frá miðjum þriðja
áratug 20. aldar fram til ársins 1933
sýna bréf hans að hann var um-
kringdur konum. Wolff er ekki
í vafa um að hann hafi átt í ást-
arsambandi við margar þeirra en
í bréfum talið konu sinni trú um
að konur eltu hann á röndum og að
hann þyrfti að hafa sig allan við að
halda þeim frá sér.
Elsa lést árið 1936 og fullyrt er að
Einstein hafi átt í fjölmörgum ást-
arsamböndum eftir það þótt hann
hafi ekki gengið í hjónaband á ný.
Vísindamaðurinn
og kynbomban
í bráðskemmtilegri ævisögu
sinni segir leikkonan Shelley
Winters frá því þegar hún leigði
íbúð með Marilyn Monroe á
þeim tíma sem þær voru báðar
smástirni. Kvöld eitt settust
þær niður og bjuggu til sitt
hvorn listann yfir karlmenn sem
þær vildu sofa hjá. Á lista Wint-
ers voru aðallega leikarar sem
þóttu vera kyntákn en á lista
Marilyn voru ýmis gáfumenni,
þar á meðal Einstein.
„Marilyn, það er ómögulegt að
þú getir sofið hjá Albert Ein-
stein. Hann er frægasti vísinda-
maður aldarinnar og auk þess
er hann gamall maður," sagði
Winters.
„Það kemur málinu ekkert við
og svo hef ég heyrt að hann sé
mjög heilsuhraustur,“ svaraði
Marilyn.
Winters segist ekki vita hversu
náin kynni hafi tekist með Ein-
stein og Monroe
en víst er að þau
kynntust. Eftir
dauða Marilyn
fannst meðal
muna
hennar
stór inn-
römmuð
mynd af
Einstein,
árituð
af snillingnum.
Hann hafði
skrifað: „Til Mari-
lyn, með virðingu,
ást og þakklæti.
Alþert Einstein."
Ljóðskáld
Á þessum degi árið 1899 fæddist
Ijóðskáldið Hart Crane. Crane, sem
var sonur sælgætisframleiðanda,
átti óhamingjusama æsku vegna
stöðugra deilna foreldra sinna og
skilnaðar þeirra. Hann byrjaði að
yrkja ljóð á unglingsárum og birti
ljóð í tímaritum. Tuttugu og fjög-
urra ára gamall ákvað hann að
helga sig ljóðagerð og naut til þess
fjárhagslegs stuðnings foreldra
sinna og bankastjóra sem hafði trú
á þessum unga manni.
menningarmolinn
fæðist
Fyrsta bók hans, White Buildings,
kom út árið 1926. Frægasta verk
hans, ljóðabálkurinn The Bridge,
kom út árið 1930. Árið eftir flutti
hann til Mexíkó. Þar orti hann ein-
ungis eitt ljóð sem þykir markvert,
The Broken Tower. Hann drakk svo
mikið á þessum tíma að geðheilsa
hans var í stórhættu. Þegar hann
var á leið frá Mexíkó til Bandaríkj-
anna með skipi stökk hann fyrir
borð og drukknaði. Hann var 33 ára
gamall.
handfrjáls
Hafðu HENDURNAR
Lþarsem IÖ99an vi" SJá Þær C
búnaður í bílinn
Car kit CK-7W
* Bluetooth búnaður í bflinn
* Svarhnappur, hátalari og hljóðnemi
* Lækkar sjálfkrafa í hljómtækjum
* Sjálfvirk tenging við sfma
Pú færð handfrjálsan búnað í bílinn (Hátækni og hjá söluaðilum NOKIA.
IMOKIA