blaðið - 21.07.2006, Page 29
blaAÍA FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 2006
29
Uppselt
Morrissey, sem mun halda tónleika
í Laugardalshöllinni þann 12. ágúst,
á greinilega aðdáendur á Islandi því
uppselt er í stúku á tónleikunum.
EITTHVAÐ FYRIR...
^ ...piparmeyjar
Skár 1, 21.30 The Bachelorette
III - tvöfaldur úrslitaþáttur
Þriðja syrpa þessa vinsæla raun-
veruleikaþáttar. Áhorfendur muna
eflaust vel eftir Jennifer Schefft sem
heillaði milljónaerfingjann Andrew
Firestone upp úr skónum í þriðju
þáttaröð The Bachelor á SkjáEinum.
Þau trúlofuðu sig með pompi og
prakt en ástin entist ekki og Jenni-
fer sat eftir með sárt ennið.
^ ...syndaseli
Stöð tvö, 01.10 Sin
Sin eða Gamlar syndir er glæpsamleg
spennumynd. Eddie Burns starfaði í
morðdeild lögreglunnar í 15 ár. Hann
missti vinstri höndina við skyldu-
störf og á nú erfitt uppdráttar. Þegar
systir hans hverfur með grunsamleg-
um hætti verður Eddie að taka sig á
og reyna að leysa málið þrátt fyrir
að aðstæður hans séu mjög erfiðar.
Stranglega bönnuð börnum.
^ ...nátthrafna
Stöð 2 bíó, 04.00 Romeo is
Bleeding
Rómeó í sárum er myrk og drunga-
leg sakamálamynd með Gary Old-
man l hlutverki spilltrar löggu sem
laumar mikilvægum upplýsingum
til mafíunnar gegn þóknun. Spila-
borg hans tekur að hrynja þegar
hann fær það verkefni að ráða af
dögum rússneskan leigumorðingja,
sem reynist vera kona sem hann fell-
ur fyrir. Aðalhlutverk: Annabella
Sciorra, Lena Olin, Gary Oldman.
Leikstjóri: Peter Medak. 1993.
Stranglega bönnuð börnum.
í stúku á tónleika Morrissey
Það fer því hver að verða síðastur að
tryggja sér miða því þeir renna út
eins og heitar lummur. Enn eru þó
til miðar í stæði og kostar miðinn
4.500 kr. Miðasala er á midi.is, í versl-
unum Skífunnar og í vel völdum BT
verslunum. Morrissey er einn af
ástsælustu tónlistarmönnum Bret-
lands og á stóran aðdáendahóp víða
um heim en hann hefur helst vakið
athygli fyrir sérstakan söngstíl og
magnaðar textasmíðar.
PHILIPS BIKINI PERFECT TRIMMER
Philips HP6362 SNYRTIR FYRIR BIKINI LÍNUNA
Hárnákvæmur SNYRTIR fyrir bikini línuna. Með 4 stillingum: 2 - 9,5mm og hleðslu
sem endist í 30 mínútur.
PHILIPS BODY GROOM TRIMMER
Philips TT2021 SNYRTIR FYRIR ÖLL LÍKAMSHÁR
Tæki sem hentar vel til að snyrta hár undir höndum, á
maga, baki og fleira. Hægt að nota í sturtu. 8 tíma hleðsla
gefur 50 mínútna notkun. 3 stillingar (3 til 10mm).
HÆGT AÐ NOTA í STURTU
HAGKAUP
RAFDRIFINN KUSTUR
Philips FC6125 RAFDRIFINN KÚSTUR
Léttur og þægilegur RAFDRIFINN KÚSTUR til notkunar á öll gólf.
Þráðlaus með hleðslu sem endist 55 mínútur. Með stillanlegu
skafti og auðveldur að hreinsa. Aðeins 1,8kg.
SÆTÚNI 8 REYKJAVlK • SlMI 569-1500 I UMBOÐSMENN
EYRARVEGI 21 SELFOSSI • SlMI 480-3700 I UM LAND ALLT
Heimilistæki
UMBOÐSMENN UM LAND ALLT: HLJÓMSÝN Akranesi - SKAGAVER Akranesi - SAMKAUP ÚRVAL Borgarnesi - BLÓMSTURVELLIR Hellissandi VERSLUNIN HAMRAR Grundarfirði - SKIPAVÍK
Stykkishólmi - KAUPFÉLAG KRÓKSFJARÐAR Króksfjarðarnesi - ÞRISTUR Isafiröi - KRÁKUR Blönduósi - KAUPFÉLAG V-HÚNVETNINGA Hvammstanga - KAUPFÉLAG SKAGFIRÐINGA Sauðárkróki
- EYRARBÚÐIN Siglufirði LJÓSGJAFINN Akureyri - ÖRYGGI Húsavík - SPARKAUP Fáskrúðsfirði - VERSLUNIN VlK Neskaupsstað - SAMKAUP STRAX Seyðisfirði FLÁABRÚN Vopnafiröi -
HS-RAF Eskifirði - VERSLUNIN VÍK Reyðarfiröi - SINDRI KHB Egilsstööum - VERSL. VÍK Egilsstöðum - MARTÖLVAN Höfn - MOSFELL Hellu - FOSSRAF Selfossi - GEISLI Vestmannaeyjum -
VERSLUNIN RÁS Þorlákshöfn - NETTÓ Grindavik TÖLVUSPÍTALINN Grindavík - RAFEINDATÆKNI Reykjanesbæ - SAMKAUP Reykjanesbæ RAFMÆTTI Hafnarfirði.