blaðið - 05.09.2006, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐUDAGUR 5. SEPTEMBER 2006
blaöið
VEÐRIÐ í DAG
Hægviðri
Hægviðri, skýjað og lítilsháttar rigning
suðaustanlands. Hiti 7 til 13 stig.
ÁMORGUN
Skýjað með köflum
Hæg breytileg átt, skýjað með
kötlum og sums staðar dálítil
væta. Hiti 8 til 13 stig.
VÍÐAUMHEIM | *
Algarve 27 Glasgow 17 New York 18
Amsterdam 20 Hamborg 19 Orlando 232
Barcelona 29 Helsinki 19 Osló 21
Berlín 19 Kaupmannahöfn 19 Palma 27
Chicago 16 London 22 Paris 26
Dublin 19 Madrid 32 Stokkhólmur 19
Frankfurt 23 Montreal 15 Þórshöfn 10
Lögreglan:
í haldi eftir
heimilsofbeldi
Héraðsdómur Reykjavíkur
hefur dæmt mann í gæsluvarð-
hald fyrir alvarlega líkamsárás
gegn sambýliskonu sinni. Mað-
urinn sem er frá Fílabeinsströnd-
inni veitti konunni mikla áverka
og mun hafa rispað hana með
hníf. Samkvæmt lögreglunni er
málið rannsakað sem alvarleg
líkamsárás með hættulegu
vopni. Árásin átti sér stað í
heimahúsi í Vesturbænum. Kon-
unni tókst að hringja í lögreglu
og kalla eftir aðstoð.
Afar sjaldgæft er að menn séu
hnepptir í gæsluvarðhald fyrir
heimilisofbeldi samkvæmt lög-
reglunni en það mun hafa verið
nauðsynlegt í þessu máli vegna
rannsóknarhagsmuna.
Að sögn lögreglunnar liggur
ekki enn fyrir hvort maður-
inn verði dæmdur í farbann
að gæsluvarðhaldi loknu en
hann er ekki íslenskur ríkis-
borgari. Ekki er vitað um líðan
konunnar.
Akranes:
Unglingar
með fíkniefni
mbl.is Þrjú fíkniefnamál komu
upp á föstudagskvöld á Akra-
nesi og í öllum tilfellum var um
amfetamín að ræða.
Öllum var sleppt að loknum
yfirheyrslum en tveir eru
yngri en átján ára og verða mál
þeirra því send barnavernd-
aryfirvöldum til meðferðar
auk þess sem þeir mega búast
við viðurlögum vegna brota á
fíkniefnalöggjöfinni.
Óttaðist um líf sitt Maður tók þrítuga
konu hálstaki þegar hún ók leigubil.
Sjúkraflutningamenn björguðu leigubílstjóra sem varð fyrir líkamsárás:
Réðst á leigubílstjórann
■ Náði athygli sjúkraflutningamanna ■ Öryggi ábótavant í leigubílum
■ Alvarlegt en krefst ekki aðgerða segir varaformaður Frama
Eftir Val Grettisson
valur@bladid.net
„Maðurinn tók mig hálstaki og við
það keyrði ég næstum því á umferð-
arljós,“ segir tæplega þrítug kona
sem ráðist var á þegar hún var að
aka leigubíl aðfaranótt laugardags.
Konan óttast manninn og vill þess
vegna ekki koma fram undir nafni.
„Það voru fjórir farþegar í bílnum,
maðurinn og þrjár konur á þrítugs-
aldri, öll höfðu þau drukkið áfengi.
Einni konunni varð óglatt og ég ætl-
aði að stöðva bílinn,“ segir hún um
tildrög árásarinnar. Þá varð karl-
maðurinn hinn reiðasti.
„Hann trompaðist og sló mig í öxl-
ina og sagði mér að ef ég stöðvaði bíl-
inn dræpi hann mig,“ segir konan
sem þorði ekki annað en halda
áfram. Hún gerði fólkinu grein
fyrir að dýrt yrði að þrífa bllinn ef
illa færi með flökurleika konunnar.
Þá tók maðurinn konuna hálstaki
aftan frá, að hennar sögn, með.þeim
afleiðingum að hún missti næstum
stjórn á bílnum. Hún segir hann
hafa haldið takinu í talsverðan tima
og hún barðist við að halda biffeið-
inni á veginum. Hún ók í miðbæ
Reykjavíkur þar sem hún mætti
sjúkrabíl.
„Ég blikkaði ljósunum á fullu og
sem betur fór áttuðu þeir sig á þvi
að ekki var allt með felldu,“ segir
hún en þá stöðvaði hún loks bílinn.
Maðurinn stakk af um leið og bíll-
inn stoppaði og stuttu síðar kom lög-
reglan. Stúlkurnar þrjár sem voru
eftir gátu gefið lögreglunni lýsingu
á manninum og nafn hans.
„Þær voru líka dauðhræddar við
hann,“ segir konan.
„Þetta var hræðileg tilfinning,"
segir hún og er enn hrædd. Hún
segir hræðilegt að hugsa til þess
að leigubílaakstur á nóttinni um
helgar geti verið spurning upp á líf
eða dauða.
„Ég veit ekki hvort ég legg það
aftur á mig að keyra leigubíl," segir
hún og finnst öryggi bílstjóra veru-
lega ábótavant. Hún vill sjá plexígler
um ökumannssætið sem skilur að
farþega og ökumann. Hún segir að
það myndi auka öryggistilfinning-
una og vill betri úrræði fyrir leigu-
bílstjóra svo þeir verði síður fyrir
árásum.
Hjalti Hafsteinsson er varafor-
maður Frama, samtaka leigubíl-
stjóra. Hann segir árásir afar fáar,
en því miður alvarlegar. „Ég sé það
nú ekki gerast að bílstjórar fari að
setja gler á milli sín og far-
þegánna," segir
hann. Sam-
kvæmt Hjalta hafa sumir bílar ör-
yggishnapp sem eykur öryggi þeirra
talsvert. Bílstjórarnir sjálfir þurfi að
standa straum af kostnaði við hert
öryggi og því séu ekki allir tilbúnir
að auka öryggið í bílum sínum.
„Það er engiaástæða í bili til þess
að hafa áhyggjur,“ segir Hjalti en
áréttar að svona mál séu áhyggju-
efni fyrir stétt leigubílstjóra.
Málið er í rannsókn hjá lögregl-
unni í Reykjavík.
Háskólinn á Bifröst:
Bryndís aðstoðarrektor
Bryndís Hlöðversdóttir hefur hún hafði setið á þingi um árabil.
verið ráðin aðstoðarrektor Háskól- Magnús Árni Magnússon sagði
ans á Bifröst. Hún hefur gegnt stöðu starfi sínu lausu sem aðstoðarrektor
forseta lagadeildar skólans í rúmt síðasta miðvikudag, en hann var
ár, en hún lét af þingmennsku fyrir einnig forseti viðskiptadeildar
Samfylkinguna í ágúst í fyrra, en skólans.
NÝB VALKOSTUR A
fransoort*il
toll- og flutningsmiölun ehf jéMai'
V
Fiskislóð 26 • 101 Reykjavík • Sími: 578 4600
www.transport.is • transport@transport.is
Æfingar sjóhers Rússlands:
Rússarnir koma ekki
,',Engin rússnesk sjóhersæfing
er fyrirhuguð á hafinu umhverfis
íslands það sem eftir er þessa árs,“
segir Bjarni Vestmann, sendifull-
trúi í utanríkisráðuneytinu. „Það
hefur fengist staðfest af rússneska
sendiráðinu. Það útilokarhins vegar
ekki að æfingar gætu orðið í Norður-
Atlantshafi, fjarri íslandi."
Á síðustu árum Rússar hafa árlega
haldið flotaæfingu áNorður-Atlants-
hafi. Yfirleitt hafa þeir fyrst æft með
Bandaríkjamönnum og svo haldið
sína eigin æfingu. Rússnesk herskip
komu mjög nálægt ströndum fs-
lands haustið 2004, en í fyrra voru
þeir langt suður af íslandi.
„Komi rússnesk herskip inn fyrir
200 mílna mörkin mun Landhelgis-
gæsla Islands leitast við af fremsta
megni að fylgjast með ferðumþeirra,
Rússnekst herskip Ekki reynir á
varnir okkar vegna Rússanna í ár.
líkt og gert yrði ef herskip annarra
landa ættu hlut að máli. Haft yrði
náið samráð við Atlantshafsbanda-
lagið og einstök aðildarriki þess við
öflun upplýsinga um ferðir herskipa
sem ekki tilheyra aðildarríkjum Átl-
antshafsbandalagsins," segir Bjarni.
Kofi Annan:
Varar við
aðgerðum
Kofi Annan,
aðalritari Sam-
einuðu þjóðanna,
ítrekaði í gær
nauðsyn þess að
leysa deiluna um
kjarnorkuáætlun
írana með frið-
samlegum hætti. Annan, sem
var staddur í Doha f Katar í gær,
hafði fundað með Mahmoud
Ahmadinejad, forseta Irans, í Te-
heran um helgina og fullvissaði
forsetinn Annan um að íranar
væru reiðubúnir til þess að
semja um lausn deilunnar þótt
þeir myndu ekki láta af auðgun
úrans eins og öryggisráð Samein-
uðu þjóðanna hefur krafist.