blaðið - 05.09.2006, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 2006
blaðiA
líkamsárásir um helgina
Allnokkur erlll var hjá lögreglu um helgina en
mikið var um ölvun og tíu líkamsárásir voru
tilkynntar. Einnig datt maður niður af húsþaki og
var töluvert slasaður
Bætt umferðareftirlit
Sturla Böðvarsson samgönguráðherra leggur áherslu á að hraðað verði upp-
setningu hraðamyndavéla við þjóðvegi og umferðareftirlit lögreglu aukið. Hann
vill að viðurlög við umferðarlagabrotum verði hert og að hugað verði sérstak-
lega að umferðaröryggi á fjölförnum leiðum, svo sem á stofnbrautum út frá
Reykjavík. Þetta kemur fram í tilkynningu frá samgönguráðuneytinu.
Húsgðgn Hitlers:
Skrifborðið selt
Eigandi starfsmannaleigu stefnir formanni Rafiðnaðarsambandsins:
Vill tvær milljónir fyrir níð
■ Segir ummælin tilhæfulaus ■ Hann hafi ekki barið Pólverja ■ Bætur til Bubba ákvarði upphæðina
á 80 milljónir
Skrifborð og stóll sem voru
í íbúð Adolfs Hitlers verða seld
á næstunni fyrir um áttatíu
milljónir króna. Að sögn
bresks uppboðshaldara, Minas
Katchadorian voru húsgögnin
sem eru úr eik í íbúð foringjans
i Múnchen á fjórða og fimmta
áratug síðustu aldar en komust í
hendur bandarískra stjórnvalda
eftir að bandamenn náðu borg-
inni á sitt vald. Katchadorian
segir að húsgögnin hafi komist f
einkaeigu á áttunda áratugnum.
Uppboðshaldarinn segir að áhugi
kaupenda á húsgögnunum sé
mikill en fyrir utan sagnfræði-
lega skírskotun þykja þau falleg á
látlausan hátt og eru vel smíðuð.
Falleg - sterk - náttúruleg
Suöurlandsbraut 10
Sími 533 5800
www.simnet.is/strond
y§i
STRÖND
Eftir Val Grettisson
valur@bladid.net
„Mér þykir tími til kominn að kenna
manninum hvað má segja um fólk og
hvað ekki,“ segir Eiður Eiríkur Bald-
vinsson sem rekur starfsmannaleig-
una B2. Eiður hefur stefnt Guðmundi
Gunnarssyni formanni Rafiðnaðar-
sambands fslands fyrir meiðyrði í
Héraðsdómi Reykjavíkur.
Ummælin sem hann lét falla birt-
ust í sjónvarpsfréttum rfkissjón-
varpsins og á Stöð tvö í október á síð-
asta ári. Guðmundur sakaði Eið um
að arðræna og svíkja pólska verka-
menn sem voru á hans snærum.
Líkti hann meintri meðferð Eiðs
við mansal og einnig sakaði hann
eiginkonu hans um að hafa hvatt
yfirmenn til þess að lemja verka-
mennina vegna þess að þeir væru
vanir því.
Eiður þvertók fyrir þessa meðferð
og krefst hann ásamt konu sinni alls
tveggja milljóna í skaðabætur.
„Þetta eru tilhæfulausar ásakanir
með öllu,“ segir Eiður sem ætlar að
sækja málið af fullum þunga. Hann
segir að enginn skuli tala svona um
hann og konu hans.
Samkvæmt Eiði mun engin niður-
staða vera komin í mál hans þar sem
hann var sakaður um illa meðferð á
Pólverjunum. Hann segist enn starf-
rækja starfsmannaleiguna en hún
var með þeim fyrstu á íslandi.
Aðspurður hvernig hann réttlæti
svo háa upphæð fyrir meint meið-
yrði Guðmundar segir hann að
Bubbi hafi lagt línuna þegar honum
voru dæmd tæp milljón króna
r
Líkti starfs-
mannaleigu
við mansala
Guðmundur Gunnars-
son formaöur Rafn-
iðnaðarsambandsins
fyrir meiðyrðamál síðastliðið vor.
Einnig krefst Eiður að Guðmundur
borgi átta hundrað þúsund krónur
fyrir kostnað birtingar dóms í
málinu.
„Þetta var bara ljótt,“ segir Eiður
um ummæli Guðmundar en aðal-
meðferð málsins mun fara fram á
næstu vikum.
Ekki náðist í Guð-
mund þráttfyrir
ítrekaðar
tilraunir.
MJÓLKURVÖRUR
I SÉRFLOKKI
rn?
FLOKKI
Stjórn á
blóðþrýstingi
LH inniheldur náttúruleg lifvirk
peptið sem geta hjálpað til
við stjórn á blóðþrýstingi
LH-drykkurinn er gerður úr
undanrennu og er því fitulaus.
Auk peptíðanna inniheldur hann
í ríkum mæli kalk, kalium og
magníum en rannsóknir
benda til að þessi steinefni
hafi einnig jákvæð áhrif
á blóðþrýsting.
BIRTIST í FRÉTTATÍMA STÖÐVAR 2,
ÞANN 23. OKT. 2005
■ „... að svona dólgar sem koma svona
fram við fólk að þetta er í sjálfu sér ná-
kvæmlega sama tóbakið og þeir sem eru
að flytja konur frá Austurlöndum og börn
og selja þau i kynlífsþrælkun.”
■ „Þarna eru dólgar að flytja inn bláfátækt
verkafólk og notfæra sér eymd þess til
þess að hagnast á því.”
■ „Þeir eru að stinga hluta af launum
þessa fólks i eigin vasa.”
■ „Eiginkona þessa manns, sem er
samlandi þessara manna, það er að segja
pólsk kona, hún er að hóta því að ef þeir
séu ekki þægir og góðir þessir menn þá
verði þeir fluttir til Reykjavikur og settir i
alls konar skitadjobb og þeir verði látnir
borga 80 þúsund kall kostnað og fyrir 1
dollaraátimann."
■ „Og hún gengur á milli verkstjóranna
austur á Kárahnjúkasvæði og segir að ef
þeir eru ekki þægir og góðir þessir Pólverj-
ar að þá skuli þeir bara ganga i skrokk á
þeim.”
UMMÆLI í FRÉTTATÍMA SJÓN-
VARPSINS, ÞANN 23. OKT. 2005
■ „Siðan eru okkur sýndir einhverjir launa-
seðlar sem eru svo bara tóm della. Og
síðan eru okkur sýndir ráðningarsamningar
sem að þeir kannski hafa aldrei séð sjálfir,
þannig að þetta er svona bara skipulögð
glæpastarfsemi, það er ekki hægt að kalla
þetta neitt annað”.
■ „Já, konan, pólska konan, sem er annar
eigandi þessa fyrirtækis, hún fór og sagði
við verkstjórann, einn af verkstjórunum
þarna upp frá, aö ef að þeir væru með
eitthvert múður þessir Pólverjar þá ætti
bara að lemja þá, þeir væru vanir því úr
sínu heimalandi”.
■ „Ja, við ætlum að fletta ofan af þessu
fyrirtæki bara alfarið og viö erum að vinna
í því núna".
I
Fasteignamarkaður:
Verulegur samdráttur
á höfuðborgarsvæðinu
Velta á fasteignamarkaði á höfuð-
borgarsvæðinu dróst saman um 34,9
prósent í ágústmánuði samanborið
við sama mánuð í fyrra. Þetta kemur
fram í samantekt Fasteignamats rík-
isins. Alls nam heildarupphæð veltu
12 milljörðum í síðasta mánuði en var
18,5 milljarðar á sama tíma í fyrra. Þá
fækkaði kaupsamningum um tæp-
lega 50 prósent og fór heildarfjöldi úr
774 í ágúst í fyrra í 415 í ár. Hafa þeir
ekki verið færri í ágústmánuði síðan
talning hófst árið 2002.
Sé ágúst borinn saman við júlí
fækkar kaupsamningum um 15,3
prósent og velta dregst saman um
2,7 prósent. Mest voru viðskipti
með eignir í fjölbýli eða 314 talsins. sérbýli og 39 með aðrar eignir en
Þá voru 62 viðskipti með eignir í íbúðarhúsnæði.
H E R E F 0 R p
S T E 1 K H Ú S
Laujuvegur V3b • 10! Rtrykjavík
5 11 3350 • www.herciord.is