blaðið - 05.09.2006, Blaðsíða 33
blaöiö
ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 2006 41
Owen hlakkar til hnéaðgeröar
Michael Owen, framherji Newcastle, sagði á vefsíðu Newcastle að hann hlakkaði til hnéaðgerðar sem
framkvæmd verður á morgun. „Ég hlakka til vegna þess að þessi aðgerð er eina von min um að
ná bata,” sagði Owen, en hann meiddist á hné og var borinn af velli i 2-2 leik Englendinga og
Þjóðverja á HM i sumar. Eftir aðgerðina tekur við margra mánaða endurhæfing og telja læknar
Owens það óliklegt að hann verði klár fyrir lok timabils.
Skeytin inn
Stjórnarformaður Port-
smouth, Peter Storrie, vísar á
bug gagnrýni um að félagið
hafi elcki staðið , við
loforð um leik-
mannakaup
fyrir nýhafið
tímabil.
Fjölmiðlar
greindu frá
því í sumar að
nýr eigandi
liðsins, Sa-
cha Gayda-
mak, hefði sprautað 30 millj-
ónum punda inn í ldúbbinn
til leikmannakaupa. I reynd
hefur Portsmouth þó aðeins
varið 5 milljónum punda til
kaupa á nýjum leikmönnum.
Peter Storrie útskýrði fyrir
breskum fjölmiðlum að
liðið hefði fengið marga
leikmenn fyrir lítið og aðrir
hefðu verið með lausa samn-
inga. Þótt kaupverðið hafi
eldci verið hátt segir Storrie að
koma leikmanna eins og Sol
Campbell, David James, Glen
Johnson og Andy Cole útheimti
stóraukin údát í launakostnað.
Rio Ferdinand er óðum að
jafna sig á támeiðslum
sem vörnuðu honum
að taka þátt í sigri Englands
yfir Andorra, en Steve McLaren
landsliðsþjálfari gerir ráð fyrir
Ferdinand í liði Englands sem
mætir Makedóníu á morgun.
McLaren ætti því að geta
stillt upp sínu sterkasta
liði því á meiðslalista
fyrir leikinn gegn Makedóníu
eru aðeins þeir Chris Kirkland
sem er meiddur í baki og Luke
Young sem er tognaður á öklda,
en hvorugur þeirra hefur verið
í byrjunarliði Englands.
Fyrrverandi landsUðsmenn
Englendinga,
Alan Hansen og
Chris Waddle, hafa
viðrað þá skoðun
sína opinberlega að
leikir gegn smáþjóð-
um eins og Andorra
og Liechten-
stein séu algjör
tímasóun, bæði fyrir
leikmenn og áhorfend-
ur, og leggja til að lakari
lið spili í einhvers konar
undankeppni áður en þau
mæta stærri þjóðum, líkt
og gert er í meistaradeildinni.
Svetoslav Todorov, sem
er í miklum metum hjá
áhangendum Portsmouth
hefur verið lánaður til Wigan
fram í desember. Harry
Redknapp, stjóri
Portsmouth, sagði
við fjölmiðla að
Todorov hafi viljað
fara en Todorov
sagðist ekkert
kannast við það
og kvaðst kunna
vel við sig hjá
Portsmouth
og það tæki
sig sárt
að þurfa að
yfirgefa félagið.
Undankeppni Evópukeppninnar
Frakkar og Italir
mætast aftur
Eftir 3-0 sigur gegn Georgíu-
mönnumhefurlið Raymonds Dom-
enech náð tveggja stiga forskoti á
ítali sem gerðu aðeins jafntefli við
Litháa í fyrsta leik í undankeppni
fyrir EM 2008. Liðin tvö mætast
nú aftur á miðvikudag í París og ef
Frakkar vinna þann leik eru þeir
komnir 5 stigum á undan heims-
meisturum ítala.
Thierry Henry sagði að þessi
mögulega fimm stiga forysta væri
það sem hvetti liðið áfram en bætti
þó við að þetta væri ekki hnefa-
leikakeppni þar sem beltið væri
undir. „Ef við vinnum þýðir það
hvorki meira né minna en að við
höfum tryggt okkur 3 mikilvæg
stig á leiðinni að Evrópumeistara-
titlinum 2008.”
Fabio Cannavaro sagðist við fjöl-
miðla handviss um að þeir gætu
unnið Frakka í París, jafnvel þótt
þeir væru ekki í sínu besta formi.
Cannavaro sagði Fralcka ekki
hafa nokkurra harma að hefna. „Á
Evrópumótinu 2000 spiluðum við
betur en Frakkar í úrslitaleiknum
en töpuðum. í Berlín í sumar spil-
uðu Frakkar betur en við unnum.
ítalir fagna heimsmeistaratitlinum en Frakkar sitja eftir með sárt ennið
Ná Frakkar fimm stiga forystu í riðlinum eða vinna Italir sigur i París?
aldri
Vegna aukinna umsvifa í blaðadreifingu óskar
Morgunblaðið eftir að ráða fólk á öllum aldri í blaðburð
víða á höfuðborgarsvæðinu sem fyrst.
Blaðberi hjá Morgunblaðinu fær að meðaltali 30.915 kr. á mánuði fyrir
klukkustundar langan hressandi göngutúr.* Til viðbótar kemur
þungaálag og greiðslur fyrir aldreifingar tvisvar í viku.
Vinsamlegast hafið samband í síma 569 1440 eða
sendið tölvupóst á netfangið bladberi@mbl.is.
*Miðað við að 65 eintökum af Morgunbiaðinu sé dreift i 30 skipti.