blaðið - 05.09.2006, Blaðsíða 36
44 ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 2006
blaöið
J BJO
UNITED 93 KL 3:30-5:45-
MAURAHREUIRINN isl tol
YOU, ME ANO DUPREE KL 5:45-
YOU, ME AND DUPREE VIP KL
LADÝ IN THE WATER KL
5 CHILDREN & IT
PIRATES OF THE CARIBBEAN 2 KL 6:
PIRATES OF THE CARIBBEAN 2 ViP
OVER THE HEDGE ísl tol
BÍLAR
ftáÉfl
KRINGLUNNI -«■
.aflf-iáagl
MAURAHRELLIRINN ísL tol KL. 6 LEYFÐ
THE ANT BULLY iskt tol KL 6-8-10 LEYFÐ
'LADY IN THE WATER KL 6-8:10-10:30 B.1.12
MIAMIVICE KL 10:40 BJ. 16
PIRATES OF THE CARIBBEAN 2 KL8 B.1.12
•SÝNDAR í STAFRÆNNl ÚTGÁFU. MYND OG HUÓD
You,MeandDupree
O
! Wdson
! Kae
Hudson,
CMon !
s!
KEFLAVÍK
YOU, ME AND DUPREE
LITTLE MAN
KL 6 LEYFD
KL8-10 LEYFÐ
MAURAHRELLIRINN ísL tol
UNITED 93
PIRATES OF THE CARIBBEAN 2
LADYIN THE WATER
KL. 6 LEYFÐ
KL 8-10:20 B.l. 14
KL 6 B.1.12
KL 9 B.1.12
PIRATES OF THE CARIBBEAN 2
MAURAHRELLIRINN isL tol
KVIKMYNDAHÁTlÐ
BJOLFSKVIÐA
AN INCONVENIENT TRUTH
THE LIBERTINE
A COCK AND BULL
WHERE THE TRUTH UES
DOWN IN THE VALLEY
KL 10:15 B.1.12
KL 6 LEYFD
KL.8 B.1.14
KL 5:40 LEYFÐ
KL 8 B.1.12
KL 10:30 BJ.16
KL 5:45-8-10:15 BJ. 16
KL 5:45-8-10:15 B.1.16
ICELAND FILM FESTIVAL 2006
SmHRH^}BlÓ
UTTLEMAN
kl.4.6,8og 10
GARRELD 2 M. ENSKU TAU
kl. 4,6 og 8
GRETTIR 2 M. ÍSLENSXU TAU
W.4og6
TAKK FYRIR AÐ REYKJA
kl. 5.50,8og10.10Bl7
TAKK FTRIR AÐ REYKJAIIIIXUS
kl. 5.50,8 og 10.10
MIAMIVICE
kl.8og 10.40 B116ÁRA
ÁSTRÍKUR OGVlKINGARNIR
kl. 4 ÍSLEMSKT TAL
THE SENTINEL
kl. 10.20 BJ. 14 ARA
REGHBOGÍnn
TAKK FYRIR AÐ REYKJA
W. 5.50,8og 10.10B17ÁRA
KVlKMYNDAHÁTfÐ
FACTOTUM
Sýnd W. 6
LEONARD COHEN: I M YOUR MAN
SýndW.6
BOOK OF REVELATION
SýndW. 6B116ÁRA
ENRON
Sýnd W. 8
VOLVER
Sýnd W. 8B112ÁRA
WINTER PASSING
Sýnd W.8B.I.16ÁRA
THE WIND THAT SHAKES THE BARLEY
SýndW. 10
DAVE CHAPELLE S BLOCK PARTY
Sýnd W. 10.10 B112 ÁRA
STRAN DVASKEREN
SýndW. 10B116ÁRA
UNÍTED93B.L14ÁRA
W. 5.45,8 og 10.15
YOU.MEAND DUPREE
W. 8og10.15
GRE7TIR2
kL6 ÍSLBtSKTTAL
SNAKES ON A PLANE
W. 8 og 10.15 B.1.16ÁRA
ÁSTRÍKUR OG VÍKINGARNIR
W 6 ÍSLENSKT TAL
iHiirii'trritiA
LfTTLE MAN kl. 8 og 10
YOU, ME AND DUPREE kf. 8 og 10.10
GRETTIR 2 ld. 6 ÍSLEIISKTTAL
GARFIELD II kl. 6 SKTTAL
lifid@bladid.net
Mætir í bikiní
Kirstie Alley, sem nýlega missti þrjátíu og fimm kíló með þvf að fara í
megrun að hætti Jenny Craig, ætlar að mæta i þáttinn til Opruh Winfrey
í nóvember, iklædd engu öðru en bikiníi. Það verður spennandi að sjá
árangurinn, en Kirsty var að eigin sögn orðin mjög niðurdregin vegna
aukakílóanna.
Söngur um lífið
Kaffi Hljómalind var iðandi af lífi
þegar blaðamann bar að garði og
fann þar fyrir tónskáldið Patti Smith
og gítarleikarann og fyrrverandi
tónlistarskríbentinn Lenny Kayne.
Þau ætla að halda fyrir okkur tón-
leika annað kvöld ásamt dóttur Patti
sem spilar á píanó. Þetta verða engir
venjulegir Patti Smith-rokktónleikar,
heldur verður höfuðáherslan lögð á
nánd við áhorfendur og samspil á
milli áhorfenda og hennar. Það var
sérstakt að horfa í augun á þessari
merkilegu konu, dýpt sem ekki er
hægt að lýsa, og þegar hún talaði um
það sem henni var hugleikið fylltist
hún lífi og talaði með öllum líkam-
anum, rétt eins og á tónleikum. En
hvað rak hana til íslands eftir að
hafa heiðrað okkur með tónleikum
fyrir rétt um ári síðan?
Draumur um hest og hús við hafið
Patti: Ég er búin að hlakka til að
koma hingað alveg síðan ég var hér
síðast. Fór á hestbak og reið um fal-
legu náttúruna ykkar og langaði
hvergi annars staðar að vera á þeirri
stundu. Ég er að leita mér að húsnæði
við hafið, það væri frábært að finna
slíkt og eins og einn hest með því.
Lenny: Það er svo frábært að vera
hérna, það er eins og maður sé nú
þegar hluti af samfélaginu.
Birgitta: Af hverju “spoken word”
hljómorðatónleika á Islandi?
Patti: Mig langaði að halda aðra
tónleika hér og til að vera ekki að end-
urtaka mig ákvað ég að gera eitthvað
sem ég hef reyndar gert úti um allan
heim á sérvöldum stöðum og er mér
afar kært tónleikaform.
Birgitta: Hvernig tónleikum meg-
um við eiga von á?
Patti: Við Lenny höfum unnið
saman síðan 1971 en þá héldum
við okkar fyrstu tónleika saman
í St. Marks-kirkjunni í New York.
Hann var fyrsti gítarleikarinn til að
spila á rafmagnsgítar í kirkju og er
kannski ekki sá vinsælasti af kirkj-
unnar mönnum. En það var þá sem
ég hóf tilraunir með “spoken word”
hljómorð og hef alla tíð síðan hald-
ið tónleika af þessu tagi, þar sem ég
legg áherslu á orðin og órafmagnaða
tónleika. Ég tala líka oft við fólkið úti
í sal og býð því að tjá sig og spyrja
spurninga.
Birgitta: Það er magnað þegar
ljóð og tónlist renna saman á þenn-
an hátt, eins konar alkemía, þriðja
listformið sem skapast.
Patti: Já, það er satt. Á rokktón-
leikum snýst það meira um orkuna
frá orðunum, oft ekki hægt að heyra
orð af því sem maður er að syngja,
en það skiptir ekki máli, því orkan
kemur því til skila. En tónleikarnir
í kvöld verða engu síður rokkaðir á
sinn hátt.
Birgitta: Þú hefur sterkar skoð-
anir á umhverfinu í kringum þig og
hefur ekki dregið dul á andúð þína
á stríðsrekstri og aðförinni að náttúr-
unni víðsvegar um heim, meðal ann-
ars hér. Er einhver sérstök ástæða
fyrir því, ertu róttæklingur í hjarta
þínu?
Enginn róttæklingur
Patti: Ég myndi frekar líta á mig
sem venjulega manneskju með heil-
brigða skynsemi. Ég er enginn sér-
fræðingur í pólitík eða sérhæfð á
sviði umhverfismála, ég hlusta bara á
mína innri rödd. Ég átti spjall við Dal-
ai Lama fyrir tveimur árum og spurði
hann hvað skipti mestu máli að vinna
að á alheimsvísu og vera meðvitaður
um fyrir framtíðina. Hann sagði að
það væri náttúran og umhverfismál-
in sem brýnast væri að huga að. Mér
fannst það magnað, hefði kannski átt
von á að hann nefndi Tíbet eða hin
andlegu mál. Og hann hefur rétt fyrir
sér, ef við förum ekki að hugsa okkar
gang í sambandi við umhverfi okkar
þá er allt mannkynið í hættu. Það er
hin raunverulega vá mannkynsins,
ekki hryðjuverk eða stríð, þó stríð
séu aldrei af hinu góða. Vandamálin
sem við stöndum frammi fyrir eru
miklu alvarlegri núna en áður vegna
þess að það afl sem stjórnar heimin-
um eru stórfyrirtækin. Þau hafa enga
samvisku og eru siðblind. Það verður
áhugavert að sjá hvað muni gerast í
umhverfismálum hérlendis vegna
þess að það eru svo fá landsvæði eft-
ir í heiminum sem eru óspillt eins og
náttúran hér.
Birgitta: Ertu trúuð?
Patti: Ég tilheyri engu trúfélagi,
ég var alin upp í Biblíutrú en hef lagt
mig fram við að kynna mér kenn-
ingar sem flestra trúarbragða, búdd-
isma, íslam og gyðingdóminn, og það
er margt fallegt að finna þar. Ég hef
samt kosið að finna mína trú innra
með mér, og finnst ég oft í bestu and-
legu tengslunum þegar ég er úti í nátt-
úrunni.
Birgitta: Þú dróst þig í hlé frá tón-
listinni um langa hríð, af hverju?
Patti: Ég flutti með manninum
mínum til Detroit og bjó þar í rúm-
lega 15 ár. Þar hlúði ég að fjölskyld-
unni, börnunum og ljóðagyðjunni.
En þegar maðurinn minn dó skyndi-
lega flutti ég til New York til að fram-
fleyta mér og krökkunum og fór þá
aftur að fást við tónlist. Ég held að
það sé mikilvægt að hlúa að þessu
mannlega og taka ekki þátt í þessari
neysluhyggju sem hefur snúið fólki
frá heilbrigðri skynsemi. Ég er fyrst
og fremst manneskja og sem mann-
eskja hef ég fengið minn skerf af
hamingjuríkum stundum og harm-
leikjum rétt eins og allir aðrir. Sorgin
knýr dyra hjá öllum einhvern tíma á
lífsleiðinni. Það er mikilvægt að fá
svigrúm til að tjá sig um slíka hluti
en ekki síður að fá að tjá sig um gleð-
ina.
Eitt er víst að í kvöld mun eiga sér
stað einstakur atburður í Háskólabíó
þar sem Patti Smith mun væntan-
lega tjá sig um það sem skiptir hana
máli. Lífið sjálft með öllum sínum
blæbrigðum.
birgitta@bladid.net
Témstundahúsið • Nethyl 2 • S. 587 0600 • www.tomstundahusid
Mannakorn er
ekki dauð enn
I kvöld munu félagarnir í hljóm-
sveitinni Mannakorn leika og
syngja á Stóra sviði Borgarleik-
hússins kl. 20:00 og 22:00. Tilefn-
ið er útkoma nýs geisladisks sem
ber hinn skemmtilega titil Ekki
dauðir enn.
Upptökur á geisladisknum fóru
fram í Salnum Kópavogi en þar
fengu þeir Pálmi Gunnarsson og
Magnús Eiríksson til liðs við sig
fjögurra manna strengjasveit og
fleiri góða tónlistarmenn, til dæm-
is Gunnlaug Briem á trommur og
Ásgeir Óskarsson á slagverk.
Sérstakur gestur á tónleikunum
í kvöld verður hin unga og efni-
lega söngkona Hrund Ósk Árna-
dóttir sem sigraði í söngvakeppni
framhaldsskólanna í fyrra. Vonast
er til að þessir valinkunnu tónlist-
armenn muni sanna það og sýna í
kvöld að enn brennur heitt tónlist-
arblóð í æðum þeirra.