blaðið - 05.09.2006, Qupperneq 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 2006
biaöiö
INNLENT
LÖGREGLAN
Unglingadrykkja
Lögreglan á (safirði stöðvaði eftirlitslaust unglingasam-
kvæmi í miðbæ Isafjarðar. Þar voru samankomin um þrjátíu
ungmenni, sextán ára og eldri. Samkvæmið var leyst upp
og hald lagt á nokkrar óáteknar áfengisumbúðir, en eigand-
inn reyndist ekki hafa aldurtil að meðhöndla áfengi.
LÖGREGLAN
Ölvunarakstur
Fjórir ökumenn voru kærðir vegna gruns um
ölvun við akstur um helgina, en alls hafði
lögreglan afskipti af 33 ökumönnum vegna
umferðarlagabrota, þar af 18 vegna hraðakst-
urs, samkvæmt vefmiðlinum mbl.
FÍKNIEFNI
Fíkniefnaframleiðsla
Lögreglan og Tollgæslan þurfa auknar heimildir, mannskap og
peninga til að berjast gegn og uppræta sölu- og dreifikerfi fíkni-
efnasala hér á landi. Þetta sagði Jóhann R. Benediktsson, sýslu-
maður á Keflavíkurflugvelli, í samtali við Morgunblaðið. Jóhann
segir glæpahóp frá Litháen hafa skotið rótum hér á landi.
Stefnubreyting hjá Olmert:
Brottflutningur frá Vestur-
bakkanum ekki á dagskrá
Afganistan:
Sjálfsmorðs-
árás í Kabúl
Að minnsta kosti fjórir
óbreyttir borgarar auk bresks
hermanns féliu í sjálfsmorðs-
árás á bíialest Atlantshafs-
bandalagsins í Kabúl í Afgan-
istan í gær. Þrír aðrir hermenn
og fjórir aðrir borgarar særðust
í tilræðinu. Að sögn talsmanns
innanríkisráðuneytis Afganist-
ans keyrði sprengjumaðurinn
bíl fullan af sprengiefni inn í
bílalestina.
Árásin var gerð í kjölfar þess
að hermenn NATO hófu miklar
hernaðaraðgerðir gegn Tali-
bönum í Kandahar-héraði í suð-
urhluta landsins um helgina.
■ Ætlar að draga landamærin án samráðs ■ Ríkisstjórn Olmerts stendur höllum fæti
Ehud Olmert, forsætisráðherra
Israels, hefur breytt um stefnu
gagnvart Palestínumönnum. Hann
segir að áætlun sín um að leggja
niður landnemabyggðir á Vestur-
bakkanum og draga einhliða end-
anleg landamæri Israels á næstu
árum eigi ekki lengur við þar sem
átök ísraelska hersins við víga-
menn Hizballah í Líbanon hafi
breytt forsendunum.
Forsætisráðherrann, sem sat í
gær í fyrsta sinn fund með varnar-
og utanríkismálanefnd ísraelska
þingsins frá því að átökin við Hiz-
ballah brutust út, sagði að eldflauga-
árásirnar á norðurhluta fsraels á
meðan átökunum við Hizballah
stóð og stjórnleysið á Gaza-svæð-
inu í kjölfar þess að ísraelar drógu
sig frá hluta þess í fyrra þýði að for-
gangsröðun ríkisstjórnar hans hafi
breyst.
Kadima, flokkur forsætisráð-
herrans, vann sigur í þingkosning-
unum og var hann ekki síst rakinn
til áætlunar Olmerts um að leggja
niður hluta landnemabyggða á
Vesturbakkanum en á sama tíma
styrkja sumar þeirra. Samfara
þessu er stefna ríkisstjórnarinnar
sú að draga endanleg landamæri
einhliða fyrir árið 2010.
Ríkisstjórn Olmerts stendur
höllum fæti vegna gagnrýni á
framkvæmd hernaðaraðgerðanna
gagnvart Hizballah og talið er að
forsætisráðherrann sé að opna á
möguleika til samstarfs við hægri-
menn á þinginu, sem eru því and-
Ekki á förum Israelsstjórn ferekki
sömu leiö á Vesturbakkanum og hún
fórá Gazasvæðinu.
vígir að leggja niður landnema-
byggðir. Auglýsing ríkisstofnunar,
sem birtist í ísraelskum fjölmiðlum