blaðið - 05.09.2006, Blaðsíða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 2006
blaðiö
UTAN UR HEIMI
Kennarar og stjórnmálamenn handteknir
Stjórnvöld í Eþíópíu hafa í haldi 250 menn af Oromo-þjóðarbroti án þess að hafa
birt þeim ákærur, þeirra á meðal kennara, miðskólanema og stjórnmálamenn. Þetta
segja embættismenn af sama uppruna og mannréttindasamtök. Um þriðjungur Eþí-
ópíubúa er af þessu þjóðarbroti, en um 75 milljónir manna búa í landinu. Mikil and-
staða er meðal Oromo-manna gegn ríkjandi flokki í landinu, PRDF, samkvæmt mbl.
Samþykkja olíuleiðslu
Grikkir og Búlgarar hafa lagt blessun sína yfir að Rússar
leggi olíuleiðslu sem myndi tengja löndin þrjú. Vladimír
Pútín Rússlandsforseti fundaði með leiðtogum Grikk-
lands og Búlgaríu og ræddi við þá um verkefnið i Aþenu i
gær. Leiðslan verður 280 kílómetrar að lengd.
Vígamaður í Jórdaníu:
Skaut að ferðamönnum
Vígamaður hóf skothríð á ferða-
menn sem ætluðu að skoða rústir
af rómversku hringleikahúsi í Am-
man, höfuðborg Jórdaníu, í gær.
Einn breskur maður lét lífið.
Maðurinn hóf skothríðina
um hádegisbil en þá hljóp hann
að ferðamönnum og skaut tólf
skotum. Þegar hann hafði klárað
skotfærin reyndi hann að flýja af
vettvangi en var handtekinn. Sjón-
arvottar segja að fólk á förnum
vegi hafi aðstoðað lögreglu við að
yfirbuga hann.
..það sem
fagmaðurinn
notar!
BYGGINGAVINKIAR
Eftir Höskuld Kára Schram
trausti@bladid.net
Talsmaður neytenda vill skoða hvort
nauðsynlegt sé að skylda fasteignaselj-
endur til að skila inn ástandsskýrslu
á fasteign áður en hún er sett á sölu.
Hann undirbýr nú verkefni undir
vinnuheitinu Umgjörð fasteignamark-
aðar sem felur í sér endurskoðun á
söluferli fasteigna.
Varaformaður Félags fasteignasala
fagnar framtakinu og segir félagið
hafa lengi barist fyrir slíkri reglugerð.
Þarf að skoða lagaramma
„Fasteignakaupendur hafa stundum
verið í þeirri stöðu að þurfa ákveða sig
fljótt og það er erfitt að standa undir
skoðunarskyldu kaupenda þegar svo
ber undir,“ segir Gísli Tryggvason,
talsmaður neytenda. Hann undirbýr
nú verkefni þar sem umgjörð fast-
eignamarkaðar verður endurskoðuð.
Vill hann sérstaklega skoða þann
möguleika að settar verði reglur sem
kveði á um að óháðir matsmenn yf-
irfari fasteignir og skili inn ástands-
skýrslu áður en leyfilegt verður að
setja þær á sölu. „Huga þarf að og laga
ramma fasteignamarkaðarins og mér
hafa borist fjölmargar athugasemdir
vegna þessa,“ segir Gísli.
Fram kom ( Blaðinu í síðustu viku
að fjöldi þeirra sem hafa leitað til
„Þarf að
laga ramma
fasteigna-
markaðarins."
Gisli Tryggvason,
talsmaður neytenda
Húseigendafélagsins vegna galla í ný-
byggingum hefur vaxið gríðarlega á
undanförnu ári. Þá kom fram í máli
Magnúsar Sædal Svavarssonar, bygg-
ingafulltrúa Reykjavíkurborgar, að
verktakar virði það í sivaxandi mæli
að vettugi að biðja um lokaúttektir á
nýbyggingum.
Gísli segir ástandsskýrslur geta
hjálpað kaupendum nýrra og gam-
alla fasteigna og komið í veg fyrir að
gallaðar eignir fari á markað. Visar
hann til þess að i Danmörku séu nú
þegar fyrir hendi reglur sem kveða á
um úttektir af þessu tagi. „Með því að
taka þetta til skoðunar er ég óbeint að
segja að það þurfi líklega að breyta ein-
hverju. Fasteignakaup eru ein stærsta
fjárfesting lífsins hjá íjölmörgu fólki
og það getur verið gott að íhuga leiðir
tií þess að fyrirbyggja vandamál í
stað þess að leysa þau eftir á fyrir
dómstólum.“
Kaupendur hafa nægan tíma
Ingibjörg Þórðardóttir, varafor-
maður Félags fasteignsala, fagnar hug-
Fagnar hug-
myndum um
ástandsskýrslu.
Ingibjörg Pórðar-
dóttir, varaformaður
Félags fasteignasala
myndum Gísla og segir að félagið hafi
lengi barist fyrir svipaðri reglusetn-
ingu. „Við fasteignasalar vildum koma
þessu inn í lögin um fasteignakaup
árið 2004. Að okkar mati er mikilvægt
að upplýsingar varðandi þær fasteignir
sem við erum að selja séu aðgengilegar
og unnar á fagmannlegan hátt. Hags-
munir allra eru í húfi.“ Ingibjörg segir
það hafa verið algengara þegar hrað-
inn var hvað mestur á fasteignamark-
aði að kaupendur hefðu lítinn tíma
til að skoða eignir. Svo sé hins vegar
ekki lengur. „Það er ekki svona ofsa-
kapphlaup um eignir eins og þegar
spennan var sem mest. Ég tel að í dag
hafi kaupendur allan þann tíma sem
þeir þurfa til að skoða fasteignir.“
Þá bendir Ingibjörg á að til séu
tryggingar sem tryggi seljendur gegn
skaðabótamáli vegna leyndra galla.
Hún varar þó við að menn láti af að
skoða fasteignir rækilega áður en þær
eru keyptar. „Menn mega ekki slá
slöku við því að tryggingarnar draga
ekki úr skoðunarskyldu kaupanda og
upplýsingaskyldu seljanda.“
“ÍSLANDS MÁLNING
Sérhönnuð málning fyrir (slenskar aðstæður.
Sætúni 4/Sími 517 1500
Allar Teknos vörur eru framleiddar skv. ISO 9001 gœöastaðli.
/ Útimálning
/ Viðarvörn
•/ Lakkmálning
/ Þakmálning
V Gólfmálning
V Gluggamálning
'teknos
Innimálning Gljástig 3,7,20
/ Verð frá kr. 298 pr.ltr.
Gœða málning á frábæru verði
Leifsstöð:
Opnað eftir
breytingar
Þriðja hæð Leifsstöðvar var í
gær opnuð formlega eftir viða-
mikla stækkun. Er áætlað að
framkvæmdum við flugstöðina
ljúki alfarið árið 2007.
Eftir breytingar verður heild-
arstærð Leifsstöðvar 55.000
fermetrar og er áætlaður kostn-
aður við breytingarnar hátt í sjö
milljarðar. Það var Valgerður
Sverrisdóttir, utanríkisráðherra,
sem klippti á borðann í gær.