blaðið - 05.09.2006, Page 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 2006
mmm
blaöiö
1. Hvenær átti Tyrkjaránið sér stað?
2. Hvers vegna borða ísbirnir ekki mörgæsir?
3. Hvaða hljómsveit orti baráttusönginn „Burt með kvótann!"
4. Ef ekið er eftir Miklubraut á 99,9% Ijóshraða, hvernig veit ökumaðurinn hvort
umferðarljósin við Kringlumýrarbraut sýna rautt Ijós eða grænt?
5. Allir vita að api Línu langsokks hét herra Níels, en hvað hét hestur hennar?
Svör:
GENGI GJALDMIÐLA
j ío B
« aj S ro
CNi
_ co u ic
ÍSJIIP!
P> 22 5 .3 <
o) _ _ _
C'J 03 3 :o bz 3
co *o p o : o ro
t— ~ c >o a. cc
. 03 O C 3 - .
t- -o-Z Q3 co co «<r
Bandarikjadalur 68,79 69,11 ■
Sterlingspund 131,05 131,69 m
Dönsk króna 11,853 11,923 m tm
Norsk króna 10,878 10,942 m
Sænsk króna 9,483 9,539 II II
Evra
88,44
88,94
¥0€IR
tTT7areL
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum mesta úrval
á íslandi af smáum
og stórum vogum
Hafðu samband
m
Siðumúla 13, sími S88 2122
www.eitak.is
Matvörur:
Of mikið
skordýraeitur
Um tvö prósent sýna úr
ávöxtum, grænmeti og korn-
vöru á íslenskum matvöru-
markaði innihéldu leifar af
sveppa- og skordýraeitri yfir
leyfilegu hámarki. Þetta kemur
fram í niðurstöðu rannsóknar
sem Umhverfisstofnun lét gera
á síðasta ári. Tekin voru sýni
úr 315 matvælum og þar af var
fjórðungur innlend framleiðsla.
144 prósentum af teknum
sýnum mátti finna sveppa- eða
skordýraeitur við eða undir
leyfilegu hámarki en 54 prósent
voru án þess.
1 svipaðri könnun sem gerð
var árið 2004 reyndust 5 pró-
sent sýna vera með eiturefni
yfir leyfilegu hámarki.
Ógnaröld í Darfúr-héraði í Súdan:
Friðargæsluliðar
hverfa á brott
■ Fara fyrir mánaðamót ■ Aðstoð Sameinuðu þjóðanna hafnað
■ Hernaðaraðgerðir gegn uppreisnarmönnum hafnar á ný
SMÁAUGLÝSINGAR
5103737
Eftir Örn Arnarson
orn@bladid.net
blaöiðE
SMAAUGLYSINGAR@BLADID.NET
Súdönsk stjórnvöld hafa lýst þvi yfir
að friðargæsluliðar á vegum Afríku-
bandalagsins sem eru við störf í Dar-
fúr-héraði megi einungis vera áfram í
landinu undir merkjum bandalagsins,
en þurfi að yfirgefa það í lok
mánaðarins ætli það að starfa undir
merkjum Sameinupu þjóðanna.
Yfirlýsingin kemur í kjölfar þess að
súdanski herinn hóf að nýju hernaðar-
aðgerðir gegn uppreisnarmönnum á
svæðinu fyrir um viku. Óttast er að
stjórnvöld í landinu ætli sér að koma
böndum á uprreisnarmenn með hern-
aðaraðgerðum og hafa Sameinuðu
þjóðirnar varað við því að „hörm-
ungar af mannavöldum” séu á ný yfir-
vofandi á hinu stríðshrjáða svæði.
Hið veika umboð friðargæsluliða
Afrikubandalagsins rennur út í lok
mánaðarins og hafði örygg-
isráð Sameinuðu þjóðanna
boðist til þess að senda
sautján þúsund manna
herlið á svæðið til þess að
tryggja friðinn. Súdönsk
stjórnvöld höfnuðu því til-
boði. Að sögn Omars al-Bashir,
forseta Súdan, myndi vera slíks liðs
i landinu grafa undan fullveldi þess
og stjórnvöld sætta sig ekki við það. Á
sama tíma hefur ríkisstjórnin ákveðið
að senda tiu þúsund manna lið til Dar-
fúr. Óttast er að sú ákvörðun muni
virka sem olía á eld ófremdarástands
og að stjórnarherinn muni notfæra
sér það tómarúm sem myndast við
brotthvarf friðargæsluliðanna til þess
að reyna að ganga milli bols og höfuðs
á uppreisnarmönnum í héraðinu.
Átökin í Darfúr hófust árið 2003
þegar uppreisnarmenn af afrisku
bergi brotnir gripu til vopna gegn
stjórnvöldum sem eru leidd
af Aröbum. Stjórnvöld hafa
verið sökuð um að beita
arabískum vigamönnum i
átökunum sem eru sagðir
bera ábyrgð á þjóðar-
morðum og öðrum glæpum
gegn mankyni. Hundruð þús-
unda manna hafa fallið og milljónir
eru á vergangi eftir að átökin brutust
út. Bandaríkjamenn beittu sér fyrir
friðarsamkomulagi í maí á þessu ári
en ásamt stjórnvöldum skrifaði að-
eins einn hópur uppreisnarmanna
undir það samkomulag. Síðan þá
hefur spennan farið vaxandi á svæð-
inu og útlit er fyrir að ástandið nálgist
suðumark. Ógerlegt er talið að senda
friðargæslulið til landsins á vegum
Sameinuðu þjóðanna í óþökk stjórn-
valda og óttast er að alþjóðlegt hjálp-
arstarf 1 héraðinu komi að engu haldi
í fjarveru slíks liðs.
Danmörk:
Danir ósáttir Margireru áhyggjufullir.
Uldið kjöt í sölu
mbl.is Danir hafa nú áhyggjur af
fréttum sem borist hafa frá Þýska-
landi um tugi tonna af úldnu kjöti
sem selt var skyndibitakeðjum þar
í landi. Við rannsókn málsins hefur
komið í ljós að sjö tonn af útrunnu
fuglakjöti voru seld til Danmerkur.
Það sem vekur þó mestar áhyggjur
Dana er að fyrirtækið sem keypti
kjötið finnst hvergi. Þetta kemur
fram á vefsíðu dagblaðsins Politiken.
Fyrirtækið sem skráð er kaupandi
að sjö tonnum af gömlu fuglakjöti
frá frystihúsi í Munchen er hvergi
á skrá hjá dönskum yfirvöldum, og
við heimilisfangið sem gefið er upp
á íslandsbryggju í Kaupmannahöfn
er ekkert hús.