blaðið - 05.09.2006, Page 25
blaðið
ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 2006 33
Hófstillt aðferö
Undanfarið hefur staðið yfir sýning Hildar Margrétardóttur myndlistarmanns á Ijósmyndum i Skotinu,
nýjum sýningarkosti hjá Ljósmyndasafni Reykjavíkur. Sýningunni lýkur 27. september. Hildur Margrétar-
dóttir er myndlistarmaður sem vinnur iðulega með Ijósmyndir og hefur i þeim kosið hófstillta aðferð til
að segja frá athöfnum sem við fyrstu sýn virðast hversdagslegar og kunnuglegar. Hún segir vinnuaðferð
sina byggjast á löngun til að segja frá, gerast sögumaður um atburði sem hún hefur orðið vitni að.
Eins og sagt er
Á dagskrá Þjóðmenningarhúss-
ins á Menningarnótt var meðal ann-
ars sýning myndbandstónverksins
Eins og sagt er eftir Ólöfu Arnalds.
Nú hefur Þjóðmenningarhúsið tek-
ið verkið til áframhaldandi sýning-
ar vegna eindregins áhuga og eftir-
spurnar gesta.
I verkinu flytur Ólöf frumsamda
tónlist og syngur á átján tungumál-
um í níu myndrömmum samtímis
svo úr verður alþjóðleg tónkviða.
Ólöf gerði heimildarmynd um
söfnun textanna í New York-borg
sumarið 2005. Þar tók hún viðtöl
við fólk af ólíku þjóðerni og kynnti
sér viðhorfþess til uppruna síns, tón-
listar og móðurmálsins. Textarnir í
verkinu eru í raun samdir af þessu
fólki nema íslenski textinn sem er
úr ljóði eftir föður Ólafar, Einar S.
Arnalds.
Heimildarmyndin er sýnd við-
stöðulaust ásamt myndbandstón-
verkinu og standa sýningar yfir í
Þjóðmenningarhúsinu til og með 22.
september næstkomandi. Sýningar
eru opnar alla daga frá kl. 11 til 17
og er ókeypis aðgangur á miðviku-
dögum.
Ævintýrabækur
fyrir börnin
Ný bók um Ijósálfana
Hjá Vöku-Helgafelli er komin út ný
Disneybók um Ijósálfana, Skelli-
bjalla og dularfullu droparnir, í þýð-
ingu Brynhildar Björnsdóttur.
Dauðs manns kista
Hjá Vöku-Helgafelli er komin út
ævintýrabókin Dauðs manns kista
í þýðingu Árna Óskarssonar.
Þetta er óborganleg saga um
sjóræningja, skrímsli, draugaskip,
hetjur og óþokka.
Eldur hafsins
Hjá Vöku-Helgafelli er komin út
ný bók um hinar vinsælu galdra-
stelpur, Eldur hafsins, eftir Lene
Kaaberbol. Brynhildur Björnsdóttir
þýddi.
NYTT!III
Hreinsar loftið | Eyðir lykt | Drepur bakteríur
Nánari upplýsingar á www.ecc.is og í síma 5111001
Skúlagötu 63 -105 Reykjavík