blaðið - 16.09.2006, Page 15
blaðið
LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 2006 15
Sterkir lífeyrissjóðir
Fimm stærstu lifeyrissjóðir
landsins eiga yfir hundrað
milljarða iinnlendum hlutabréf-
um og virðast aðallega veðja á
bankana og útrásarfyrirtækin.
Kaupþing banki
Glitnir
Landsbanki fslands
Bakkavör
Actavis
Straumur-Burðarás
Alfesca
Avion
Össur
FL Group
3.676 milljónir
1.951 milljón
1.550 milljónir
1.194 milljónir
946 milljónir
643 milljónir
467 milljónir
430 milljónir
301 milljón
246 milljónir
frá fimm stærstu lífeyrissjóðum
landsins um hlutafjáreign þeirra
í íslenskum fyrirtækjum sem
skráð eru hjá Kauphöll Islands.
Þeir eru: Lífeyrissjóður starfs-
manna ríkisins, Gildi-líf-
eyrissjóður, Sameinaði
lífeyrissjóðurinn,
Almenni lífeyris-
sjóðurinn og Líf-
eyrissjóður verzl-
unarmanna. Allir
lífeyrissjóðirnir
svöruðu nema
einn, Lífeyris-
sjóður verzlunar-
manna.
Glitnir 3.706 milljónir
Kaupþing banki 2.097 milljónir
Landsbanki fslands 810 milljónir
Actavis 723 milljónir
Straumur Buröarás 616 milljónir
Bakkavör 362 milljónir
FL Goup 329 milljónir
Atorka 327 milljónir
Avion 236 milljónir
Mosaic Fashion 159 milljónir
verið hjá fyrirtækjunum þannig
að sjóðirnir selja væntanlega ekki
á meðan áfram er séð fram á þessa
góðu ávöxtun. Þessir hlutir vaxa
bara áfram og sjóðirnir virðast
hafa veðjað á rétta hesta,” segir
Arnar Freyr.
Blaðið óskaði eftir upplýsingum
ALMENNI
LÍFEYRISSJÓÐURINN
SAMEINAÐI
LÍFEYRISSJÓÐURINN
Búist við enn meiri hörmungum í Súdan:
Tvö hundruð þúsund fallin
■ Þjóöarmorö taliö yfirvofandi ■ Öryggisráðið máttvana ■ Friöargæslulið á förum frá landinu
Öryggisráðið máttvana
Engar líkur eru taldar á því að ör-
yggisráðið sendi friðargæslulið til Sú-
dans í óþökk stjórnvalda. Fjöldi sam-
taka og þekktra einstaklinga hefur
reynt að beita stöðu sinni til að vekja
athygli umheimsins á alvöru málsins.
Á fimmtudag bauð John Bolton, sendi-
herra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu
þjóðunum, leikaranum George Clo-
oney ásamt Elie Wiesel, handhafa
friðarverðlauna Nóbels og þekktum
baráttumanni fyrir mannréttindum,
að ávarpa öryggisráðið á óform-
legum fundi. Clooney, sem hefur ferð-
ast um Darfúr ásamt föður sínum
sem er blaðamaður, var ómyrkur í
máli og sagði að eftir 30. september
myndi öryggisráðið hafa fyrsta þjóð-
armorð 21. aldarinnar á samviskunni
og verði ekkert að gert mun það ekki
verða það síðasta. Wiesel minnti
fundargesti á að aðgerðir öryggisráðs-
ins væru síðasta úrræðið til þess að
stöðva „tilgangslausan harmleik” og
það hefði getuna til þess.
Ef átök brjótast út í Darfúr eftir að
friðargæsluliðar hverfa úr landinu er
talið víst að alþjóðleg hjálparsamtök
muni kalla starfsmenn sína á brott
úr landinu sökum þess að llf þeirra
mun verða í hættu.
Um 200 þúsund manns hafa
fallið í Darfúr-héraði í Súdan síðan
átökin í héraðinu hófust fyrir þrem
árum, samkvæmt nýrri rannsókn
bandarískra vísindamanna. Niður-
stöður rannsóknar vísindamann-
anna birtust í nýjasta tölublaði tíma-
ritsins Science og þykir þetta vera
ítarlegasta rannsóknin sem hefur
verið gerð um mannfall í Darfúr til
þessa.
Erfitt þykir að ákvarða með ná-
kvæmum hætti hversu margir hafa
fallið í átökunum og hafa heyrst
tölur allt frá 70 þúsund til 300 þús-
und manns. Stjórnvöld í Súdan hafa
ávallt sagt að tölur fallinna væru
stórlega ýktar. Súdönsk stjórnvöld,
þar sem ararbar hafa tögl og hagldir,
hafa verið sökuð um að hafa stundað
þjóðarmorð og stríðsglæpi gegn
fólki af afrískum uppruna í Darfúr-
héraði. Að sögn sérfróðra skiptir
nákvæmni við ákvörðun á fjölda
fallinna miklu máli þegar kemur
að því að ákvarða hvort þjóðarmorð
hafi átt sér stað.
Milljónir á vergangi
Um tvær milljónir manna eru á
vergangi í héraðinu og óttast er að
„náttúruhamfarir af mannavöldum”
Clooney og Wiesel Ávörpuðu öryggisráðið á óformiegum fundi á fimmtudag
og hvöttu fulltrúa ríkjanna til þess að koma í veg fyrir þjóðarmorð.
séu yfirvofandi þar sem sjö þúsund
manna friðargæslulið á vegum Afr-
íkubandalagsins hverfur á brott úr
héraðinu í lok þessa mánaðar. Ótt-
ast er að stjórnvöld í landinu muni
nota tækifærið til þess að ganga
milli bols og höfuðs á uppreisnar-
mönnum þegar friðargæsluliðarnir
fara úr landi. Öryggisráð Samein-
uðu þjóðanna hefur samþykkt að
senda 20 þúsund manna lið til hér-
aðsins en stjórnvöld neita að hleypa
því inn í landið þar sem að þau telja
það brot á fullveldi þess.
9
spron
• At- -
/ r
z
^ DET0/
Hreinsar líkama og húö
Lagar magann
SMÁAUGLYSINGAR
KAUm
/SELJA
blaðiða
SMAAUGLYSINGAR@BLADID.NET