blaðið - 16.09.2006, Síða 20

blaðið - 16.09.2006, Síða 20
blaðiö 20 LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 2006 Armageddón Ahmadinejads í miðju stríði Irana og Iraka á níunda áratug síðustu aldar pant- aði klerkaveldið í Iran 500.000 litla plastlykla frá Taívan. Þetta var óvænt innlegg í hatrammt stríðið við Iraka. Þegar eftir innrás herja Saddams Hus- seins hafði komið á daginn að herafli írana var í molum og mátti sín lítils gegn öflugum atvinnuher íraska einræðisherrans. En við því átti Aja- tollah Khomeini einfalt svar, sem hann sótti í smiðju Stalíns, en með til- brigði við það stef. Hann atti út á víg- völlinn flóðbylgjum af hermönnum í trausti þess að enginn mætti við margnum, sama hvað hann væri vel vopnaður. Tilbrigði Khomeinis við þessa „herstjórnarlist" Stalíns var að hann lét börn vera í fylkingarbrjósti. Og plastlyklarnir? Jú, þeir voru hengdir um háls barnanna og þau fullvissuð um að þar væri kominn lykillinn að paradís. Þessi lyklabörn klerkastjórnar Kho- meinis höfðu ekki það hlutverk að berjast og fengu fæst nokkur vopn í hendur. En þau voru látin ganga fylktu liði út á vígvöllinn í átt að óvininum og sérstaklega þó yfir jarð- sprengjusvæði og þannig látin ryðja veginn fyrir hina raunverulegu her- menn írans, sem á eftir fylgdu. Mannfallið í röðum barnanna var gríðarlegt en þrátt fyrir að efasemdir vöknuðu um fórnir þeirra héldu stjórnvöld aðferðinni til streitu. Stolt vegna barnfórna Lyklabörnin, sem veltu sér til dauða, tilheyrðu Basiji Mostazafan, en það var fjöldahreyfing, sem Kho- meini stofnaði þegar árið 1979 og setti undir vopn eftir innrás íraka til þess að vera hinum veika Iransher innan handar í hernaðinum. Basiji - „hreyfing hinna kúguðu“ - var eins konar sjálboðaliðsher, þar sem þorri hermannana var undir 18 ára aldri og allt niður í 10-12 ára. Barnafórnir Irana í stríðinu við Ir- aka voru skelfilegar, en samt er það nú svo að Basiji er ekki minnst með hryllingi í íran eða litið á ósköpin sem þjóðarskömm. Þvert á móti eykst dýrðarljómi Basiji jafnt og þétt, en eftir að stríðinu lauk hefur fjölgað mjög í liðinu og áhrif Basiji í klerka- veldinu hafa aldrei verið meiri. Basiji hefur tekið að sér hlutverk trúar- bragðalögreglu og er beitt til þess að berja hverskonar andóf niður af fullri hörku, hvort sem í hlut eiga óánægðir stúdentar, verkalýðsfélög eða þorp sem mótmæla skattheimtu stjórnar- innar í Teheran. Fyrst og síðast krystallast völd og áhrif Basiji í því, að þessi hreyfing kúgaðra er orðin ein áhrifamesta pól- itíska fylking klerkaveldisins, en það var í krafti hennar, sem Mahmoud Ahmadinejad - sem sagður er hafa „þjálfað“ lyklabörnin í stríðinu við Irak - varð forseti hins íslamska ríkis og býður nú heimsbyggðinni byrginn með lítt dulbúnum metnaði sínum til þess að gera íran að kjarnorkuveldi. Ahmadinejad er afar stoltur af tengslum sínum við Basiji. Hann kemur einatt fram opinberlega með hinn hvíta og svarta einkennisháls- klút hreyfmgarinnar og í ræðum sínum lofar hann stöðugt anda Basiji, menningu Basiji og afl Basiji. Þangað rekur hann enda hinn nýfundna þrótt Irans, sem „nú lætur til sín taka í alþjóðasamfélaginu.“ Því skyldi enginn gleyma að flestir liðsmenn Basiji gengu eða veltu sér í átt að dauðanum glaðir í bragði, þess fullvissir að þeir væru á leið í paradís og að með því færðu þeir guðsríki á Jörðu einu skrefi nær. Þar að baki býr trúarofstæki, sem á rætur sínar í shíatrú (hin fámennari grein íslam), en magnaðist til muna í írönsku byltingunni. Þar eru eru líkamlegar kvalir og píslarvætti rauður þráður. Klerkarnir hömruðu á fórnfýsi helstu píslarvotta shíta og Khomeini steig skrefið til fulls með nýrri kenningu, sem boðaði að lífið sjálft væri einskis virði og dauðinn upphaf hinnar raun- sönnu tilveru. Enginn átti öruggari vist í dýrðinni fyrir handan en píslar- vottar og í því skipti engu hvort orr- ustan vannst eða tapaðist. Dauðinn sjálfur fór að skipta máli og í honum fólst sjálfstæður sigur, jarðneskur sem til sáluhjálpar. BREYTTUR OPNUNARTÍMI FRÁ OC MEÐ 18. SEPTEMBER 8.30-16.30 SP SP-Fjármögnun býdur einstaklingum og fyrirtækjum upp á tækja- og bílafjármögnun í formi eignaleigu, kaupleigu, rekstrarleigu eda f jármögnunarleigu. SP-FJÁRMÖGNUN Sigtúni 42 1105 Reykjavík | Sími 569 2000 | Fax 569 2002 | sp@sp.is Huldi ímaminn I shíasið eru karlkyns afkomendur spámannsins nefndir ímamar og eru í hálfguðatölu. Tólfti ímaminn nefnd- ist líka Múhameð, en sama ár og Ingólfur Arnarson fann ísland hvarf tólfti ímaminn, sem þá var fimm ára, með öllu, en um leið var endir bund- inn á karllegg Múhameðs spámanns. Shítar trúa því hins vegar að hann sé aðeins hulinn sjónum manna og muni fyrr eða síðar snúa aftur til þess að frelsa heiminn frá illu. Ekki er með nokkru móti hægt að undirstrika nógsamlega hversu djúpt stendur á þessarri trú meðal shíta og sérstaklega Irana, þar sem biðin eftir tólfta ímaminum yfirskyggir allt annað í trúarboðskap stjórnvalda. Þar skiptir miklu máli sú trú shíta, að lögmæt íslömsk yfirráð yfir heim- inum séu ómöguleg fyrr en tólfti ímaminn snýr aftur. Um aldir trúðu shítar því, að þeir þyrftu að bíða hans þolinmóðir og þola óréttlæti heimsins. Þessu sneri Khomeini á haus og boðaði nýja kenningu, sem rekur klerkaveldið áfram enn þann dag í dag. Hann sagði að tólfti ímaminn myndi ekki snúa aftur fyrr en hinir sanntrúuðu hefðu sigrast á hinu illa í heiminum. Shítar yrðu því að bretta upp ermarnar, taka sér vopn í hönd og tryggja það, að hinn huldi ímam myndi snúa aftur. Mahmoud Ahmadinejad er holdg- ervingur þessarar umburðarlausu sýnar á heiminn. Ahmadinejad fædd- ist skammt fyrir utan Teheran árið 1956. Hann var sonur járnsmiðs en lærði verkfræði ogþegar stríð I raks og írans hófst gekk hann til liðs við bylt- ingarvörðinn. Næstu ár eru nokkuð á huldu, vitað er að hann tók þátt í því að þjálfa lyklabörnin og senda þau út í opinn dauðann. Undir lok stríðsins var hann skipaður héraðsstjóri í Arde- bil-héraði og skipulagði Ansar-e Hez- bollah, samtök íslamskra vígamanna með tengsl við bræðralag hryðju- verkahópa í Miðausturlöndum. Ahmadinejad komst þó fyrst í sviðs- ljósið þegar hann varð borgarstjóri Teheran árið 2003, en það embætti notaði hann af kostgæfni til þess að styrkja stöðu sína og trúbræðra sinna, sem vildu ganga enn lengra en klerka- stjórnin hafði fram að því árætt. Þar gegndi Basiji lykilhlutverki enn á ný og með þeim hætti varð hann loks for- seti hinn 3. ágúst í fyrra. Dauðinn tignaður Hinn nýi forseti beið ekki boð- anna með að efla áhrif Basiji enn frekar og fyrir vikið er boðskapur píslarvættis sem dyggðar enn meira áberandi en nokkru sinni fyrr og er innrætt börnum frá upphafi mennta- göngu þeirra. Hvarvetna - í skólum, á götum úti, í vatnsmerki peninga- seðla og á frímerkjum - má líta ásjónu lyklabarnsins Hossein Fahmi- deh, sem 13 ára fórnaði sér með þvl að sprengja sjálfan sig í loft upp fyrir framan íraskan skriðdreka. Og heima fyrir geta börnin horft á teiknimynd um dáð hans og íjölskyldan safnast saman við skjáinn til þess að horfa á þáttaröðina „Paradísarbörn“. Tilþess að enginn velkist í vafa um staðfestu þeirra koma liðsmenn Basiji ávallt fram við opinberar athafnir með hvít líkklæði yfir einkennisbúningum sínum. Sértrúarsöfnuðir, sem tigna dauð- ann með þessum hætti, myndu vekja óhug hvar sem er. En í Iran er sérstök ástæða til þess að Basiji á að vekja hverjum manni ógn og skelf- ingu. Iran stendur ekki í stríði þessa dagana og getur því ekki sent börnin út á jarðsprengjusvæðin lengur. En þess í stað er öll áhersla lögð á að koma börnum og unglingum Basiji til mennta á sviði tækni og vísinda. Að sögn opinbers talsmanns bylting- arvarðarins er markmiðið að nota tækniþekkingu til þess að efla þjóðar- öryggi Irans. Hvað skyldi það nú þýða? I því sam- hengi er máske rétt að hafa í huga að árið 2001 lét þáverandi forseti Irans, Hashemi Rafsanjani, þau orð falla að „notkun aðeins einnar kjarnorku- sprengju innan ísraels myndi ger- eyða því öllu.“ Á hinn bóginn myndi aðeins hluti hins íslamska heims líða fyrir þó ísraelsmenn svöruðu fyrir sig með kjarnorkuvopnum. „Það er ekki órökrétt að velta slíkum mögu- leikum fyrir sér.“ Þarna mat forsetinn fyrrverandi það ískalt hvernig eyða mætti ísrael þó það kostaði einhver hundruð þúsunda nýrra píslarvotta í viðbót. Rafsanjani var fulltrúi hinna hófsömu í klerkastjórnifini. Ahmadinejad er á hinn bóginn alls ekki fráhverfur sjálfum heimsslit- unum guði sínum til dýrðar og mann- kyni til blessunar, á hvaða tilverustigi, sem það kann að fá þess notið þegar allt er yfirstigið og markmiðinu hefur verið náð..

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.