blaðið - 16.09.2006, Page 29
blaöið
LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 2006 29
Illugi Gunnarsson var
nýlega ráðinn stjórnar-
formaðurSinfóníuhljóm-
sveitar íslands. Hann
hefur gaman af því
að spila á píanó, en er
þekktastur sem fyrrum
aðstoðarmaður Davíðs
Oddssonar. Á sínum
tíma var hann formaður
Heimdallar þar sem margir ungir
sjálfstæðismenn töluðu gegn því
að ríkið styrkti Sinfóníuhljómsveit
íslands.
„Frjálshyggjan á sér margar myndir.
Ef frjáls markaður og frjálst samfélag
á að ganga upp þá er ekki hægt að
setja reglur og lög um alla hegðan.
En þá skiptir öllu máli að samfélagið
sé siðað, að við höfum sterka tilfinn-
ingu fyrir því hvað er rétt og hvað
rangt. Markaðurinn verður að byggj-
ast á siðuðu samfélagi, hann verður
að byggjast á mennskunni. Mín
skoðun er sú að listin sé ein besta
birtingarmynd mennskunnar. Kap-
ítalismi án mennskunnar getur illa
gengið upp. Þess vegna hafa Sinfón-
ían, leikhúsin og listin og menningin
almennt stórt hlutverk í samfélaginu,
þó auðvitað sé það þannig að menn-
ingin hefur gildi í sjálfu sér óháð öllu
öðru. Svo er önnur umræða hversu
mikinn þátt ríkið á að taka í rekstr-
inum og hversu mikið á að treysta á
markaðinn. Ég held að þar verði að
fara bil beggja,“ segir Illugi. „En við
verðum að viðurkenna að ríkið hefur
hlutverk í menningarstarfseminni,
sérstaklega í landi þar sem til dæmis
engin sinfóníuhljómsveit væri og
lítið leikhúslíf ef ríkið kæmi ekki að
starfseminni með einhverjum hætti.
Mín skoðun er sú að hægrimenn eigi
að viðurkenna að ríkið hafi hlutverk
á menningarsviðinu."
Þú ertsagður mjöggóður píanóleik-
ari. Skiptir tónlistin þig miklu?
„Það er ofsögum sagt að ég sé mjög
góður píanóleikari. Ég er þó það
góður að ég veit hvað ég kann lítið.
En ég hef haft gríðarmikið yndi af
að spila á píanó. Það er mín leið til
að slaka á og skemmta sjálfum mér.
Sumir vina minna eru svo almenni-
legir að segja við mig að þeir hafi
líka gaman af þessu og ég lít á það
sem vinarbragð."
Hefðirðu getað hugsað þér að
verða píanóleikari að atvinnu?
„Það hefði aldrei komið til greina
vegna þess að ég hefði aldrei orðið
framúrskarandi píanóleikari. En
það er nauðsynlegt að hafa eitthvað
í lífinu sem maður sinnir og leggur
mikið á sig til að öðlast leikni í,
hvort sem það er að spila á píanó,
mála myndir, skrifa sögur eða klífa
fjöll. Það sem maður setur tíma og
vinnu í gefur manni til baka.
Ég hef leikið opinberlega. í fyrra
hélt ég tónleika í Kanada og í Fær-
eyjum með Oddnýju vinkonu minni
Sigurðardóttur söngkonu. Ég hef
ekki enn lagt í að halda tónleika
hér heima. Svo var ég fyrir mörgum
árum organisti í eitt og hálft ár hjá
síra Gunnari Björnssyni á Flateyri.
Mér gekk vel að vinna með Gunnari
sem er einkar litríkur og skemmti-
legur maður, feykilega flinkur ræðu-
maður og það var gaman að hlusta á
hann predika. Ég hef eins og flestir
gaman af litríkum karakterum.
Það var mjög hollt fyrir mig tón-
listarlega séð að þurfa að spila á
hverjum einasta sunnudegi í kirkj-
unni. Ég verð þó að viðurkenna að
það kom fyrir að ég skemmti mér
með félögum mínum á laugardags-
kvöldi og þá fannst mér kannski
ekki alltaf draumastaða að sitja við
pípuorgelið á sunnudagsmorgnum.“
Flókin veröld
Mér er sagt að þú hafir róman-
tiskan tónlistarsmekk, erþað rétt?
„Rómantík er meira en kertaljós
og ást. Rómantíkin á sér svo margar
hliðar. Hugtakið rómantík nær líka
yfir stór örlög, baráttu einstaklings-
ins og hetjuhugsjónina svo eitthvað
sé nefnt. Það sem er heillandi við
rómantíska tónlist er óheft tján-
ing listamannsins á tilfinningum
sínum og hugsunum. Mér finnst
gaman að spila verk eftir tónskáld
rómantíska tímabilsins. En svo ég
tali nú eins og gamall maður, þá er
ég farinn að leita meira inn í barokk-
tímann, og heillast til dæmis mjög
af Bach. í þeim óskaplega hraða sem
er í kringum okkur og því mikla
áreiti sem alltaf er þá gefur tónlist
Bachs og barokkhöfundanna mér
mikið því þar ríkir svo undarlegt
tímaleysi. Þetta er tónlist sem er
óháð stað og stund og veitir sálar-
frið sem er stundum erfitt að finna í
hraða nútímans. Ég leita meira í þá
tónlist núna hvað varðar að hlusta
en síðan fæ ég útrás í að spila róman-
tísku verkin á píanóið.“
Framhald á nœstu opttu
„Þetta var mjög
stutt viðtal. „Við
þekkjumst ekki
en ég er búinn að
ákveða að ráða þig,"
sagði Davíð. Svo
byrjaði ég. Davíð
hafði enga sérstaka
skoðunáþvíhvað
ég ætti að gera.
Hann sagði mér að
ég yrði að finna út
úr þvt sjálfur."
Karolin 3ja sæta svefnsófi
i w, i?
_ ___
Tilboö
kr.110.000.-
Canett
Eikarllna
Memorev
Þrýstijöfnunardýna
l
^^-20%
'Aður. 1ll?Mi^|l60x200cm kr.95.920-
.........
£1 ^ y svæða pokagormadýna
■■ -og botn
Karolin
með tungu
Optiflex
á ■■ \
Wk wm
mm S m
' 4
' '
co
C3
SS
Q
. ■*—á
Tilboð. kr.129.000-
Korfu
Rafstillanleg r
80x200 á
- nú kr. 84.510-
mm %
..........................
90x200 áður 43.900,- / nu 37.315.-
120x200 áður 56.920.- / nú 47.770 -
140x200 áður 60.000,- / nú 51.000,-
160x200 áður 72.900.- I nú 61.965.-
2+H+2 / 196x196 verð 99.000,-
3+H+2 / 196x242 verð 109.000,-
Mikið úrval af stökum dýnum
WBUUNmQaBBSÍæBEfSs83mtmtKK
húsgagnaverslun
TOSCANA
SMIÐJUVEGI 2, KÓP S:587 6090
HÚSGOGNIN FÁST EINNIGIHÚSGAGNAVAL, HÖFN S: 478 2535