blaðið - 16.09.2006, Side 31

blaðið - 16.09.2006, Side 31
blaðiö LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 2006 31 aldrei almennilega skilið af hverju hann gerði það og hef aldrei fengið ástæðuna fyrir því upp úr honum. Við þekktumst ekki neitt en ég veit að einhverjir mæltu með mér við hann. Ég fór í atvinnuviðtal til hans og undirbjó mig vandlega fyrir það því ég hélt að ég yrði spurður um hin og þessi stefnumál. Það var ekki. Þetta var mjög stutt viðtal. „Við þekkjumst ekki en ég er búinn að ákveða að ráða þig,“ sagði Davíð. Svo byrjaði ég. Davíð hafði enga sér- staka skoðun á því hvað ég ætti að gera. Hann sagði mér að ég yrði að finna út úr því sjálfur." Þú ert tengdasonur Einars Odds Kristjánssonar, þingmanns Sjálf- stæðisflokksins, en þeir Davíð voru ekki alltaf sammála. Reyndist þér það ekkert erfitt í þessu starfi? „Þegar ég frétti fyrst af því að Davíð væri að íhuga að ráða mig þá hugs- aði ég með mér að það myndi aldrei gerast því varla væri maðurinn svo vitlaus að ætla að hafa tengdason eins þingmannsins inni á skrifstofu sinni alla daga þar sem hann yrði vitni að trúnaðarsamtölum og eiga síðan á hættu að þessi sami aðstoð- armaður færi heim á kvöldin og blaðraði í tengdaföður sinn. En það urðu aldrei neinir árekstrar milli mín og Einars þótt hann og Davíð væru ekki alltaf sammála. Einar er svo mikill heiðursmaður að starf mitt hjá Davíð var svo að segja aldrei rætt eða nefnt, í mesta lagi að hann spyrði mig hvernig gengi.“ Hvernighúsbóndi varDavið? „Mjög fínn en ég held jafnvel að hann hafi stundum verið of kröfu- lítill. Hann mætti ekki á hverjum morgni með verkefnalista fyrir mig. Hann ætlaðist til þess að menn sæju sjálfir um það sem þyrfti að gera. Aftur á móti gerði hann miklar kröfur til þess að það sem maður gerði gerði maður vel. Stundum getur verið erfiðara að hafa þannig húsbændur en þá sem ákveða sjálfir hvað aðrir eiga að gera.“ Sumir segja að það sé bœði kostur oggalli á Davíð að hann hafi listamannaskap? „Það er sennilega erfitt að skil- greina nákvæmlega hvað lista- mannaskap er en ef listamannaskap býggir á því að vera næmur á fólk, umhverfi sitt og á tilfinningar þá hefur Davíð listamannaskap. Hann hefur gríðarlega sterka tilfinningu fyrir þeim sem hann er að tala við. Ég held að þetta innsæi hafi verið hans sterkasta vopn í pólitíkinni. 1 því felast margir kostir, meðal ann- ars næmi fyrir tímasetningu og hve- nær rétt sé að taka til máls. Þegar þessir hæfileikar fara saman við mikla greind þá kemur út sterkur stjórnmálamaður - og eftirminni- legur. Það er ekki nóg að hafa lista- mannaskap en skilja ekki gangvirki þjóðfélagsins og samhengi hlutanna. Allt þetta verður að fara saman ef úr á að verða góður stjórnmálamaður. Þeir sem hafa bara sterka greind og mikinn skilning á gangvirki þjóð- félagsins en hafa ekki til að bera mennsku og sterkan áhuga á fólki, eru ekki góðir stjórnmálamenn." Komu þér á óvart þessar öfgafullu skoðanir sem menn hafa á Davíð? Sumir dá hann takmarkalaust, aðrir virðast jafnvel hata hann. „í sjálfu sér ekki. Þegar menn eru jafn lengi við völd eins og Davíð var þá safnast svona tilfinningar upp. Jú, það kom mér stundum á óvart hvað menn gátu orðið óskaplega reiðir og viðkvæmir þegar hann átti í hlut, og hvað hann þurfti að segja lítið til að margir yrðu óskaplega æstir. Davíð Oddsson er ekki gallalaus maður fremur en við hin en kostir hans eru stórir. Það sem mér fannst brilljant við Davíð var að hann gerði sterkan mun á sér og sinni persónu annars vegar og sér og forsætisráð- herraembættinu hins vegar. Hann missti aldrei húmorinn fyrir sjálfum sér og því hvað þetta var allt saman stundum hlægilegt og skrýtið. Á sama tíma var hann afar passa- samur varðandi embættið og allt sem að því sneri. Hann vildi að emb- ættinu væri sýnd virðing og að allt sem sneri að hans embættisfærslu væri gert eins vel og mögulegt væri. Einn lykillinn að því að hann gat verið jafn lengi við völd og hann var, var að hann hætti aldrei að greina á milli sjálfs sín og embættisins.“ Hefurþú mikinn metnað ípólitík? „ J á, það hef ég. Um leið og ég ákvað eftir nám í hagfræði að vinna ekki við mitt fag heldur fara til starfa hjá Davíð þá sagði ég A. Nú er komið að því að segja B.“ kolbrun@bladid.net Laugardaginn 16. september hefst Fegrunarátak Árbæjar. íbúar hverfisins ganga til liðs við borgarstarfsmenn við að snyrta hverfið, tína rusl, sópa, hreinsa veggjakrot, hnýta biluð boltanet og bæta girðingar svo eitthvað sé nefnt. I lokin grillum við og gerum okkur glaðan dag. Allir - fólk, fyrirtæki og stofnanir - í Árbæ eru hvattir til að taka upp hanskann fyrir hverfið sitt og láta hendur standa fram úr ermum. Mæting ki. 11 við • Ártúnsskóla Arbæjartorg við Árbæjarkirkju • Selásskóla Fylkisvöllur kl. 14.00-15.30. deginum lýkur með skemmtilegri grillveislu Gerum okkurglaðan dag og tökum upp hanskann fyrir Reykjavík. Reykjavíkurborg DAGSKRÁ

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.