blaðið

Ulloq

blaðið - 16.09.2006, Qupperneq 34

blaðið - 16.09.2006, Qupperneq 34
34 LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 2006 blaðið tíska tiska@bladid.net 0 ' % Dúnúlpuf Rúskinnsúlpur Leðurjakkar Vattkápuf Hattar - Húfur Leðurhanskar Ullarsjöl Góð gjöf Utsöluhorn s | j|/L\3íL/ 50 % afsl. Mörkinni 6> Sími 588-5518 r Opið virka daga frá kl. 10-18 Goðar vörur og laugardaga frá kl 10-16 S Kynþokkafullar varir Bráðum fer að kólna í veðri og þá má ekki gleyma gamla góða varasalvan- um. Varasalvinn kemur í veg fyrir að varirnar þorni upp og klofni. Hann er því nauðsynlegur til að viðhalda kynþokkafullum og blautum vörum. Dýrsleg tíska Því er stundum fleygt að maðurinn sé'dýr í eðli sínu. Hvort sem það er rétt eða ekki þá má með sanni segja að tískan í haust verði dýrsleg. Eitt af því sem stendur upp úr í hausttísk- unni er einmitt þessi mikla áhersla á mynstrin úr dýraríkinu. Mannfólkið getur því leyft villtu eðli sínu að vera í forgrunni enda útlitið eftir því. Hér kemur brot af því besta. Klikkar ekki Stella McCartney klikkar ekki frek- ar en fyrri daginn en þessir dömu- legu skór eru flottir og í tísku. tísku Höfuðfatið verður líka að vera í tísku og hatturinn frá Lota stendur undir þeim kröfum. Dýrslegt Stígvélin eru alltaf glæsileg enda lengja þau leggina. Þessi dýrslegu stígvél eru frá Donna Karan. Draumur Hver myndi ekki vilja eiga veski frá Ralph Lauren og ekki er ver- ra ef það ermeð dýramynstri. Viðburður um og fyrir konuna *0373? í lok október verður viðburður í Laugardalshöll sem ber heitið Konan. Þar verður bæði sýning og fyrirlestrar um allt sem tengist konunni, hennar líkama og huga. Samkvæmt Dagmar Haraldsdótt- ur, framkvæmdastjóra IceXpo sem er sýningardeild íslandsmóta sem stendur að viðburðinum, er þetta sýning sem hefur staðið lengi til að halda. „í framtíðinni er markmiðið að al- þjóðavæða sýninguna og að halda alþjóðlega kvennaráðstefnu í tengsl- um við svona sýningu á íslandi. En við ákváðum að byrja hérna heima og einblína á íslensku konuna fyrst og fremst. Við köllum viðburð- inn Konan vegna þess að þetta er hvoru tveggja fyrirlestrasyrpa sem og sýning. Við notum annars veg- ar ráðstefnusvæðið og hins vegar sýningarsvæðið í Laugardalshöll- inni. Til að gera viðburðinn sem glæsilegastan fyrir íslenskar konur höfum við fengið til liðs við okkur góða samstarfs- og styrktaraðila, Laugar Spa, Icelandair og Femin. is.“ Kvenleg umgjörð Dagmar segir að fyrirlestrarnir verði virkilega spennandi enda er um auðugan garð að gresja þegar hugsað er um íslensku konuna. „Á ráðstefnunni munu konur miðla til annarra kvenna. Þetta eru kon- ur sem hafa menntun, reynslu og þekkingu sem þær miðla til okkar hinna. Til að mynda mun Hend- rikka Waage skartgripahönnuður flytja áhugaverðan fyrirlestur sem hún nefnir; Að upplifa drauminn. Þú getur upplifað drauminn ef þú hefur staðfestuna og viljann til að láta það ganga þrátt fyrir áföll. Lögð er áhersla á kvenlega um- gjörð sýningarinnar og Steffan hjá Einrúm arkitektar var fenginn til að aðstoða við hönnun svæðisins. Á sýningunni má finna allt sem viðkemur konunni eins og það nýjasta tengt útliti, tísku og heilsu ásamt áhugaverðum uppákomum því tengdu. Vegna fjölda áskorana ákváðum við að hafa förðunar- og naglakeppni á sýningunni sem verður án efa einkar áhugavert að fylgjast með,“ segir Dagmar og bæt- ir við að hugmyndin sem unnin er með sé að allar konur eigi að njóta þess að vera konur og vera stoltar afþví. Kvenleg og áhugaver Dagmar Haraldsdóttir: „Umgjörð sýningarinnar er mjög kvenleg og þarmá finnaallt frá tísku og förðun til heimilis og matar, allt sem mögulega gæti höfðað til konunnarBlaM/Fnkkl

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.