blaðið - 20.09.2006, Page 1
■ IPROTTIR
Útlendingarnir ásælast
ensku úrvalsdeildarliðin.
írani vill kaupa West Ham
og Rússi Arsenal | síða 3s
■ FOLK
Nýr ritstjóri Stúdentablaðsins
stundar tvær íþróttir, fótbolta
og bandí, þó honum gefist of
sjaldan tækifæri til þess | siða3o
209. tölublaö 2. árgangur
miðvikudagur
20. september 2006
FRJALST, OHAÐ &
Reynum nýja hluti
ísland er efst á óskalistanum yfir lönd
sem The Go! Team hefur ekki komið
til en vill heimsækja segir lan Parton,
stofnandi hljómsveitar-
Sameiginlegt flugútboö Landhelgisgæslunnar og Ríkiskaupa:
WWW.SVAR.IS
Nota sænsk hergögn
■ Útboðið er galopið, segir verkefnisstjóri Ríkiskaupa ■ Engar kvartanir ■ Málamyndaútboð
Eftir Trausta Hafsteinsson trausti@bladid.net
„Við nutum aðstoðar og ráðgjafar frá innkaupa-
deild sænska hersins og fengum kröfulýsingu
sænsku strandgæslunnar og staðfærðum hana að
okkar þörfum,” segir Pétur Pétursson, verkefnis-
stjóri hjá Ríkiskaupum i útboðsmálum Landhelg-
isgæslunnar. Hann var spurður um flugútboðs-
gögn fyrir Landhelgisgæsluna en útboðið verður
opnað 16. nóvember.
Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Blaðsins
telja flugvélaframleiðendur það varhugavert að
útboðsgögnin séu beinlínis þýdd og staðfærð úr
útboðsgögnum sænsku strandgæslunnar. Árið
2004 festi hún kaup á Bombardier Q300-flug-
vélum, sem uppfylltu kröfur útboðsins, frá kan-
adíska fyrirtækinu Field Aviation og samkvæmt
heimildarmönnum benda líkur til þess að Land-
helgisgæslan ætli sér að festa kaup á sömu vélum
frá sama fyrirtæki.
„Landhelgisgæslan getur ekki vitað um nið-
urstöðu útboðsins fyrirfram. Ég fullyrði að
útboðið er galopið öllum og við vonumst eftir
að fá mörg hagstæð tilboð frá flugvélaframleið-
endum,” segir Pétur. „í útboðinu setur Landhelg-
isgæslan fram hvaða kröfur flugvélin og flug-
kerfið þarf að uppfylla. Það eiga allir möguleika
að vinna þetta útboð,” segir hann og bætir við:
„Við höfum ekki fengið neinar kvartanir eða
ábendingar um að útboðslýsingin sé miðuð við
einhvern ákveðinn aðila. Hins vegar eru kröfur
til vélarinnar ákveðnar og það útilokar hugsan-
lega einhverjar tegundir véla.”
MYND/FRIKIÚ—
Slippurinn nú sem áður Litháíska skipiö Ontika hefur síöustu daga verið í slipp við eftir að sakna hans en eins og sést hefur fátt eitt breyst í slippnum þann tíma sem hann
Mýrargötu. Skipið landar aflanum á íslandi. Brátt flyst slippurinn burt. Eflaust eiga margir hefur staðið við Mýrargötu.
JAÐARSPORT
» síða 40
tökk og klifur
Þaö reynir á stökkgetu klifrara
sem taka þátt í dænómóti.
Mótinu svipar nokkuð til hástökks,
keppendur fá þrjár tilraunir til að
komast í ákveðna hæð og svo er
markið hækkað.
VEÐUR
Bjartviðri
Sól á vestanverðu landinu,
noröaustan5til10metrar
á sekúndu en hvassara
suðaustanlands eftir
hádegi. Hiti 5 til 15 stig,
hlýjast suðvestanlands.
HEIMILI OG HÖNNUN
Sérblað um
heimili og
hönnun fylgir
Blaðinu í dag
» síður 19-26
BILALAN
Finndu bara bílinn sem þig dreymir um og viö sjáum um
LÆGRI fjármögnunina. Reiknaðu lánið þitt á www.frjalsi.is.
VEXTIR hringdu í síma 540 5000 eða sendu okkur línu á
frjalsi@frjalsi.is. Við viljum að þú komist sem lengst!
V
FRJÁLSI
l'JÁ KFLSTINGARBANKINN