blaðið - 20.09.2006, Blaðsíða 14

blaðið - 20.09.2006, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 2006 blaöið HVAÐ MANSTU? 1. í hvaða sjónvarpsþætti hafa Tony Blair, Mel Gibson, Richard Gere, lan McKellan, Ramones, Aerosmith og The Red Hot Chili Peppers komið fram? 2. Hver er höfuðstaður Grænlands? 3. Hvers son er Magni „okkar“? 4. Hver er höfuðborg Liechtenstein? 5. Hver er höfuðborg Möltu? GENGI GJALDMIÐLA Svör: i= 55 -5 I— E 03 > . O CO t- Z < IT KAUP Bandarikjadalur 70,01 Sterlingspund 131,66 Dönskkróna 11,871 Norskkróna 10,706 Sænsk króna 9,662 Evra 88,58 SALA 70,35 H 132,3 ÍS 11,941 SS' 10,77 gSI 9,718 S5 89,08 BB Saddam Hussein: Skipt um dómara mbl.is Abdullah al-Amiri, aðal- dómarinn i réttarhöldunum yfir Saddam Hussein, fyrrverandi forseta Iraks, hefur verið settur af. Beiðni um að skipt yrði um dómara kom frá æðsta dómstóli íraks og samþykkti forsætis- ráðherrann Nouri al-Maliki beiðnina. Engin ástæða hefur verið gefin fyrir því að dómarinn var látinn hætta, en saksókn- arar gagnrýndu dómarann harðlega fyrir skömmu fyrir að vera hliðhollur einræðisherr- anum fyrrverandi. Þá sagði hann fyrir fáeinum dögum að Saddam Hussein hafi ekki verið einræðisherra Lögreglan: Tveir teknir án ökuréttinda mbl.is Lögreglan tók fertugan ökumann í gær en sá hefur aldrei tekið bílpróf. Honum var samstundis gert að hætta akstri. Sama var gert við 18 ára pilt sem varð á vegi lögreglunnar. Hann var í sumar sviptur ökurétt- indum til nokkurra mánaða. Töluvert er um að óskila- munum sé komið til lögregl- unnar. Bara í gær fékklögreglan fimm reiðhjól í sína vörslu en þau höfðu fundist víðsvegar um borgina. Fólk er eindregið hvatt til að skrá hjá sér svokölluð rað- númer þegar það eignast nýja hluti. Með því móti er auðvelt að færa sönnur fyrir eignarhaldi ef hlutir týnast. Óskilamunadeild lögreglunnar er í Borgartúni 7 og þar er opið virka daga. Eftir Höskuld Kára Schram hoskuldur@bladid.net Ekki liggur fyrir hvort Reykjavík- urborg bregðist við þeim vanda sem kominn er upp vegna skorts á frístundaaðstöðu fyrir fötluð ung- menni. Beiðni um að borgin tæki við verkefninu barst síðasta vor frá ríkinu. Staðgengill sviðsstjóra vel- ferðarsviðs hjá borginni segist vona að lausn finnist á málinu fyrir næstu helgi. Um tuttugu fötluð ungmenni eru í millitíðinni á vergangi og fá hvergi inni á daginn eftir að skóla lýkur. Aðstöðunni lokað „Velferðarsvið er að skoða málið núna. Það hafa staðið yfir fundir með öllum þeim sem að því koma og ég vona að það finnist lausn fyrir vikulokin," segir Sigríður Jónsdóttir, staðgengill sviðsstjóra velferðarsviðs Reykj avíkurborgar. Eins og fram kom í Blaðinu síðasta laugardag fá um tuttugu fötluð ung- menni á framhaldsskólaaldri hvergi inni í kerfinu eftir að skólatíma lýkur eftir að eina frístundaheimil- inu á höfuðborgarsvæðinu var lokað síðasta vor. Það sem af er þessu skóla- ári hafa foreldrar því sjálfir þurft að útvega ungmennunum pössun til lokavinnudags. Haft var eftir móður sautján ára fatlaðs drengs að engin stofnun virð- ist hafa áhuga á að taka málið að sér og í millitíðinni þurfi tólf ára gömul systir hans að passa hann á daginn. Þá sagði móðir fatlaðrar stúlku kerfið hafa brugðist foreldrum. Vilja lenda málinu Upphaflega var það Svæðisskrif- stofa Reykjaness sem hélt utan um rekstur frístundaheimilis fyrir fötluð ungmenni og var það staðsett í Mið- bergi í Breiðholtinu. Var verkefnið unnið í nánu samstarfi við sveitarfé- lögin á höfuðborgarsvæðinu og Svæð- isskrifstofu Reykjavíkur. Vegna aukinna umsókna og breyttra áherslna i starfinu þótti rík- inu rétt að málið yrði fært alfarið yfir til sveitarfélaganna. Var beiðni þess efnis send til velferðarsviðs Reykja- víkurborgar en þar hefur málið legið síðan í vor. Sigríður segir allt kapp vera lagt á að ljúka málinu sem fyrst. „Eftir að þetta erindi kom inn á borð til mín hefur verið sett af stað ferli til að skoða þetta. Það þarf allt að vera í samræmi við fjárhagsáætlun en við ætlum okkur að lenda þessu.“ Taíland: Herinn reynir valdarán Skriðdrekar f höfuðborginni Fjöldi skriödreka umkringdi heimili forsætisráð- herrans og aðrar stjórnsýslubyggingar í Bangkok, höfuðborg Taílands, ígær. Umferðaröngþveiti: Sjúkrabílar geta tefst „Sjúkraflutningar geta trufl- ast,” segir Ármann Gestsson, vaktstjóri Neyðarlínunnar í Reykjavík, um umferðarteppu er skapaðist vegna nokkurra klukkutíma lokunar Miklu- brautar í gær. Engin truflun varð þó á sjúkraflutningum í gær og Ármann segir að sjúkraflutningamenn leiti allra ráða við að komast eins fljótt og mögulegt er á slysstað. Erfitt hefði þó verið að komast í miðju slíks kraðaks er skapaðist í gær. Taílenski herinn reyndi að ræna völdum í landinu í gær og koma Thaksin Shinawatra forsætisráð- herra frá völdum. Skriðdrekar fóru inn í höfuðborgina, Bangkok, og umkringdu heimili forsætisráðherr- ans, stjórnarbyggingar og tóku yfir sjónvarpsstöðvar í borginni. Til- kynning þess efnis að „ráðuneyti um stjórnsýsluumbætur” hefði tekið völd í höfuðborginni og nágrenni hennar var gefin út. í henni kom einnig fram að ráðuneytið lýsti holl- ustu við konung landsins. AP-frétta- stofan hefur eftir háttsettum manni innan hersins að Sondhi Boonyara- katlin yfirhershöfðingi stæði að baki valdaránstilrauninni. Thaksin forsætisráðherra var staddur í New York í gær þar sem hann sækir allsherjarþing Samein- uðu þjóðanna. Hann lýsti umsvifa- laust yfir neyðarástandi í landinu og rak yfirhershöfðingjann og skipaði annan. Thaksin hefur verið gríðarlega umdeildur í landi sínu og mikil mót- mælaalda gegn honum gekk yfir fyrr á þessu ári sem þvingaði hann til þess að leysa upp þingið og boða til nýrra kosninga í apríl. Stjórnarand- staðan sniðgekk kosningarnar og frá þeim tíma hefur stjórnarkreppa ríkt í landinu.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.