blaðið - 20.09.2006, Blaðsíða 18

blaðið - 20.09.2006, Blaðsíða 18
 blaöiö == Útgáfufélag: Stjórnarformaður: Ritstjóri: Fréttastjórar: Ritstjórnarfulltrúi: Árog dagurehf. Sigurður G. Guðjónsson Sigurjón M. Egilsson Brynjólfur Þór Guðmundsson og Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir Janus Sigurjónsson Verra en fjórtán tvö Ein mesta niðurlæging sem Islendingar hafa mátt þola frá öðrum þjóðum er fjórtán tvö tapið gegn Dönum fyrir tæpum fjörutíu árum. Margt bendir til þess að niðurlæging okkar í varnarviðræðunum verði enn meiri og verði okkur til aðhláturs um ókomna tíð. Þegar ljóst var að Kaninn ætlaði að fara héðan var fátt gert og Davíð Oddsson treysti lengstum á meintan vinskap sinn við George Bush. Hall- dór Ásgrímsson sat og horfði á og hefur sagt eftir á að Davíð beri ábyrgð- ina á því hversu mikið hann treysti á Kanann. Annar foringinn var blindur af dýrkun á Kananum, hinum leist ekkert á en hafði ekki manndóm í sér til að bregðast við. Leyndin yfir gangi viðræðnanna hefur verið undarleg og kallað fram ýmsar efasemdir. Heimamenn á Suðurnesjum hafa ekkert fengið að vita, hvorki ráðamenn sveitarfélaga né talsmenn starfsfólksins. Allir sem hags- muni hafa bíða þess að fá að fylgjast með, bíða frétta. Á sama tíma þegir forsætisráðherrann núverandi og aðalutanríkisráðherra þjóðarinnar, Geir Haarde. Kannski hefur hann ekki frá neinu að segja og kýs að þegja. Aðstoðarutanríkisráðherrann Valgerður Sverrisdóttir segir ekkert og veit kannski ekkert. íslenskir fjölmiðlar hafa fylgst með íslensku sendinefnd- inni þegar hún gengur svipþung á fundi og af fundum með hernaðaryf- irvöldum stórveldisins. Engar fréttir fást og þögnin er vandræðaleg og er sennilega ekkert annað en þögn um vandræði, þögn um hallærislega stöðu okkar manna í glímu við andstæðing sem virðist okkur fremri á öllum sviðum. Sennilegast semja okkar menn um viðskilnað Kanans þannig að hann skilur eftir einhver tæki og tól, borgar einhverja aura sem munu hvergi duga til að hreinsa upp alla þá mengun sem eftir verður. Það hefur komið skýrt fram hér í Blaðinu að í áraraðir var versti úrgangurinn urðaður af varnarliðinu og víða er jarðvegur illa mengaður þess vegna. Ekki er minnsta von til þess að gengið verði frá för Kanans þannig að afleiðing- arnar af hans eigin umgengni bitni á öðrum en okkur íslendingum. Allt gegn lágu gjaldi. Reisn okkar er ekki meiri en svo. Meintur vinskapur Bandaríkjaforseta og Davíðs Oddssonar hefur hugs- anlega orðið okkur dýr. f stað þess að bregðast strax við þegar ljóst var að herinn færi var látið reka á reiðanum. Staða okkar er ekki síst þess vegna hláleg. Tómhent kemur íslenska sendinefndin af hverjum fundinum af öðrum. Algjör þögn ríkir um hvað ber á milli, um hvað er talað, hvers við krefjumst, hvers þeir krefjast og meira að segja er engin vitneskja um hverjar varnir landsins eru. Ráðamenn sem sjá andskotann í hverju horni og vilja stofna heri og leyniþjónustur sögðu ekkert, kannski vegna þess að þeir vissu ekki að enginn horfði á ratsjár varnarliðsins, enginn fylgdist með. Varnirnar voru farnar og niðurlæging ráðamanna opinberaðist. Sigurjón M. Egilsson Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson Ritstjórn & auglýsingar. Hádegismóum 2,110 Reykjavik Aðalsími: 510 3700 Símbréfáfréttadeild: 510 3701 Símbréf áauglýsingadeild: 5103711 Netföng: bladid@bladid.net, frettir@bladid.net, auglysingar@bladid.net Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins Eflum vísindasamfélagið af viti I athyglisverðri nýrri skýrslu OECD um háskólastigið kemur fram að enda þótt útgjöld til menntamála hafi aukist hér á landi hefur sú aukning aðallega farið til leikskóla og grunnskóla. Þau skóla- stig eru á hendi sveitarfélaga. Fé til framhaldsskóla og háskóla hefur ekki vaxið að sama skapi. OECD telur að háskólastigið skorti meira fé og Háskóli Islands standi ekki einkareknum háskólum jafnfætis þar sem hann innheimtir ekki skólagjöld. Háskólann skortir fé og svínið, kötturinn og hið opinbera segja ekki ég. Lausn hægrisinnaðra valdsmanna er afar fyrirsjáanleg — að vísa kostnaðinum á nemendur. Því er ranglega haldið fram að engin mismunun felist í þessu því að Lánasjóðurinn láni fyrir gjöld- unum. Ekki er þó hægt að líta fram hjá því að lán þarf að endurgreiða með vöxtum og skuldabyrði ungs fólks hér á landi er gríðarleg. Is- lenskir háskólanemar eru iðulega fjölskyldufólk sem þarf að sjá fyrir sér og sínum og það sætir furðu að sumir stjórnmálamenn telji það farsælt að auka enn skuldabyrði yngri kynslóðanna. Hætt er við að skólagjöld myndu stjórna námsvali nemenda og þar með námsframboði. Samkvæmt hinum eina en jafnframt ófull- komna mælikvarða kapítalismans — eftirspurn — ættu nemendur fremur að sækjast eftir stuttu námi sem veitir há laun en löngu og inni- haldsríkara námi. Þá blasir við að mikilvæg þekking og kunnátta mun glatast og íslenskt vísinda- samfélag fer fljótlega að dragast aftur úr. Eru skólagjöld leiðin til að nýta mannauðinn? Akademískt fræðasamfélag á alls ekki að vera háð duttlungum tískunnar. Á íslandi þarf að vera Katrín Jakobsdóttir fólk sem kann allt frá eðlisfræði til latínu. Hvorttveggja hafa hins vegar til skamms tíma verið fá- mennar greinar sem myndu falla niður ef skóli á borð við Háskóla íslands þyrfti að lúta markaðslög- málum í auknum mæli. Reyndar er Háskólinn nú þegar ofurseldur reiknilíkani menntamálaráðu- neytisins þar sem fjárframlög til einstakra greina ráðast af fjölda nemenda hverju sinni. í því felst einkennileg afstaða til menntunar. Gæði náms hafa ekkert með það að gera hversu mörgum nemendum er hægt að troða inn í tiltekinn kassa. Þvert á móti er augljóst að viðgangur námsgreina sem fáir stunda er mjög mikilvægur fyrir hið akademíska samfélag. Ef íslenskir háskólar vilja í raun og veru komast í röð hinna bestu þarf að nálgast málið frá allt öðru sjónarhorni. Það þarf aukin fram- lög hins opinbera til háskólastigs- ins og markvissa stefnumótun í því hvað beri að leggja sérstaka áherslu á. Það þarf öflugri rann- sóknasjóði þannig að fólk sjái til- gang með því að fara í nám sem vitað er að gefur ekki endilega hærri tekjur — sem stendur skilar til dæmis doktorsnám flestum að- eins skuldum og harki. Það þarf fólk sem er annt um menntun og vísindi, ekki aðeins gæðastjórn- endur sem halda að hægt sé að reka akademíu eins og úrabúð. Og síðast en ekki síst má ekki horfa á menntun sem einkamál hvers og eins. Vel menntað samfélag er ávinningur okkar allra. Með því að leggja á skólagjöld yrði búinn til nýr vandi sem fæ- list í því að mannauðurinn yrði ekki nýttur sem skyldi, efnahagur námsmanna gæti ráðið meiru um hverjir færu alla leið en hæfileikar til náms. Þess gætir nú þegar þótt ekki sé gjaldtaka hér mikil. Það kemur kannski ekki á óvart að stjórnmálamenn sem hafa árum saman stuðlað að aukinni mis- skiptingu í samfélaginu vilji auka hana enn frekar með því að taka upp skólagjöld við opinbera há- skóla. Þessum hugsunarhætti þarf að breyta svo hægt verði að efla vís- indasamfélagið í landinu af viti. Höfunctyir er varaformaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs Klippt & skorið K æri Páll. ..Eins og fram hefurkomiö í fjölmiðlum vinn ég bara 12 dagaí mánuðiá fullum launum eins og aðrir á RÚV. Var bara að spekúlera hvort ekki væri í lagi þín vegna efégynni fyrstu 12 dagana í mánuðinum og væri svoí frii næstu 18 dagana. Núverandi fyrir- komulag gerirþað nefnilega að verkum að vinnan slítur svo helvíti mikið ísundur fyrir mérfríið...Svo væriekkiúrvegi, kæri Páll, að bæta támstunda- aðstöðuna á kaffistofunni þar sem starfmenn þínir sitja löngum stundum á meðan fréttamenn annarra sjónvarpsstöðva styrkja grunnstoðir lýðræðisins. Kæri Páll, þú ræðurþessu á endanum. Það vita allir. Taktu slaginn með okkur. SlGMAR GUÐMUNDSS0N BL0GGAR1IL OlVARPSSIlORA, SIGMARG.BLOGSPOT.CON Fjölmiðlungar fylgjast að vonum spenntir með þróun mála í Skaftahlíðinni og eru alls kyns hviksögur á kreiki um hverjir verði látnir fjúka á NFS og hverjir ekki, hvort tímaritadeild 365 verði allri lokað eða hvort ein- hver fái að tóra og þar fram eftir götum. En það kraumar víðar í fjölmiðlaheimum. Sagt er að kólnað hafi á milli Kristins Björnssonar og annarra hluthafa ÍÁrvakri, útgáfufé- lagi Morgunblaðsins (sem á helminginn í Blaðinu), og því séu í uppsiglingu breytingar í hluthafahópnum. Er rætt um að þar komi ekki margir til greina og eru Björg- ólfsfeðgar taldir líklegastir, en aðrir nefna að Síminn hafi ekki misst áhuga sinn á samkrulli, sem orðið gæti að nýjum fjölmiðlarisa. Nema sporin hræði. Annar hver væntanlegur frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavfk fékk víst aðkenningu að hjartaáfalli í gær þegar frá því var skýrt í Fréttablaðinu og síðan étið upp í Ríkisútvarpinu, að framboðsfrestur rynni út í gær klukkan fimm. Sáu margir fram á að glæstar vonir kynnu að brotna á formhömrum Valhallar. Til allrar lukku var þetta þó á mis- skilningi byggt, prófkjörið var ekki einu sinni ákveðið fyrr en í gærkveldi. Eftir að Sólveig Pétursdóttir ákvað að bjóða sig ekki fram ersagtað þörfin á konu í for- ystusveitflokksinsséennein- dregnari en fyrr, en þær eru ekki margarað gefa sig fram. Spurning hvort það breytist ekki áður en framboðsfrestur rennur út. andres.magnusson@bladid.net

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.