blaðið - 20.09.2006, Blaðsíða 4

blaðið - 20.09.2006, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 2006 blaöið INNLENT LOGREGLAN Þriggja bíla árekstur Þriggja bíla árekstur varð á Bústaðavegi í gær. Rekja má hann til umferðarteppu sem skapaðist vegna lokunar Miklu- brautar til austurs frá Grensásvegi eftir að vörubíll valt með gler í Ártúnsbrekku. LAGAFRUMVARP Hugtakið nauðgun rýmkað Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, lagði til á ríkisstjórnarn- fundi að hugtakið nauðgun verði rýmkað mjög frá því sem nú er og refs- ingar við slíku broti hertar upp í allt að 16 ára fangelsi, samkvæmt mbl. Einnig er kveðið á um refsingu fyrir samræði eða önnur kynferðismök við barn undir 14 ára aldri, að refsimörk verði þau sömu og fyrir nauðgun. BORGARSTJORN Móta fjölskyldustefnu Ákveðið var á borgarstjórnarfundi í gær að vinna við mótun fjölskyldustefnu fyrir Reykjavík verði hafin. Vefurinn mbl greinir frá því að tryggja eigi að við alla stefnumótun, ákvarðanatöku og áætlanagerð á vettvangi Reykjavíkurþorgar sé sérstaklega gætt að hagsmunum barna, unglinga og fjölskyidna. Lögreglan: Kveikti í sér Tæplega tvítugur piltur brenndist á hendi í Austurborg- inni í fyrrakvöld en hann var að setja bensín á kveikjara. Jafnframt kvikn aði í geymslu sem hann var staddur í en greiðlega gekk að ráða niðurlögum eldsins. Ibúð er við hlið geymslunnar og slapp að mestu við reykinn en einhverjar skemmdir urðu í bílskúrnum. Löggjöfin loöin Valda uppkostum*og tiiourgangi Falleg • sterk - náttúruleg VsTRÖND Suöurlandsbraut 10 Sími 533 5800 www.simnet.is/strond Eftir Gunnar Reyni Valþórsson gunnar@bladid.net Ofskynjunarsveppir sem vaxa villtir hér á landi skjóta ávallt upp kollinum hjá fíkniefnalögregl- BRIDSSKOLINN Viltu læra brids? Byrjendanámskeið Bridsskólans hefst 25. september. Tíu kvöld, einu sinni í viku. Hringdu og fáðu upplýsingar í síma 564 4247 milli kl. 13 og 18 virka daga. unni á haustin. Ungt fólk sækir í sveppina sem valdið geta ofskynj- unaráhrifum. Yfirmaður fíkni- efnadeildar segir að lögreglan láti sveppatínslu ungmenna óáreitta en að lögreglan bregðist hins vegar við þegar farið er að meðhöndla þá sem fíkniefni. „Það er ekki fyrr en menn eru farnir að meðhöndla þetta þannig að eiturefnin koma fram sem við skerumst í leikinn,“ segir Ásgeir Karlsson, yfirmaður fíkniefna- deildar lögreglunnar í Reykja- vík. „Það er ekki ólöglegt að tína sveppina sem slíka.“ Ásgeir segir að sveppirnir skjóti alltaf upp koll- inum á þessum tíma árs og segir Ásgeir að lögreglan fari með mál af þessu tagi eins og hver önnur fíkniefnamál enda séu sveppirnir á bannlista yfir ávana- og fíkniefni. Reglugerð á gráu svæði Jakob Kristinsson, dósent við læknadeild Háskóla Islands, segir að sveppirnir séu vissulega ólög- legir, en ekki hafi verið mótuð nægi- lega skýr stefna um það hvernig túlka beri löggjöfina í þeim efnum. „Einhver lönd hafa sett sérákvæði í lög hjá sér sem skerpa nánar á þessu.“ Jakob segir að virka efnið í sveppunum, Psilocybin, sé bannað samkvæmt íslenskum jafnt sem al- þjóðalögum. 1 gildandi reglugerð fellur það efni í flokk með öðrum ávana- og fíkniefnum, og þar segir meðal annars að framleiðsla, til- búningur og varsla þeirra efna sé óheimil. Sveppirnir vaxa hins vegar villtir hér á landi og því segir Jakob erfitt að eiga við málið. Jakob segir að ekkert þurfi að með- höndla sveppina til þess að þeir valdi ofskynjunum. „Efnið er alltaf í sveppunum. Þetta virðist því vera á dökkgráu svæði. Það sjá það auð- vitað allir að það er ekki hægt að lögsækja fólk sem á garð þar sem þetta vex. Þegar menn eru farnir að versla með þetta eða geyma þetta í fórum sínum, þá skerst lögreglan í leik- inn og sú vinnuregla er sennilega ágæt.“ Fárveikir unglingar Jakob segir að hann hafi fengið sýni frá lögreglunni um þá sveppi sem menn eru að tína og segir hann að um ýmsar tegundir sé að ræða. „Það er bara ein tegund sem hefur þessi ofskynjunaráhrif og það þarf í raun sveppafræðing til þess að greina þá frá hinum sem eru bein- línis eitraðir.“ Jakob hefur starfað í tengslum við eitrunarmiðstöðina við Landspítalann í Fossvogi. „Und- anfarin ár hafa ungmenni komið þangað inn með mismunandi einkenni. Þau verða oft fárveik af þessu. Það eru bæði ofskynjunar- áhrif og síðan mjög mikil uppköst og niðurgangur." Hann segir að sveppirnir hafi í raun lítið verið rannsakaðir en hann segir áhrifin vera mjög óþægileg. „Menn hafa grun um að langtímaneysla geti haft áhrif á miðtaugakerfið,“ segir Jakob Kristinsson, dósent við HL ítrowir ERU ntAuNin «•»—■• AKKEmSBBW;»«y»gJt JSSKSSSSS. Arvor 190 -75 hestafla dísilvél Fullt verð 3.404.569 kr. • Haustverð 3.280.000 kr. Quicksilver 630 Pilothouse • 120 hestafla Cummjr Fullt verð 3.793.224 kr. • Haustveri HAUSTDAGAR HJA R. SIGMUNDSSYNI r disilvel •f V I BATANA Komdu á haustdaga R. Sigmundssonar að Ánanaustum 1 og kynntu þér stórglæsilega báta á sérstöku haustdagaverði. Auk þess verður boðið upp á fjölmörg önnur áhuga- verð tilboð í verslunlnni. Opið alla virka daga kl. 08-18. '^K’VÉLASALAN ©rddbmidun Quicksilver Classic 20 • 220 hestafla Mercruíser og bátakerra Fullt verð 4.495.438 kr. • Haustverð 3.950.000 kr. Quicksilver 580 Pilothouse • 80 hestafla utanborðsmótor og bátakerra Fullt verö 3.446.385 kr. • Haustverð 3.190.000 kr. R.SIGMUNDSSON ÁNANAUSTUM 1 | 101 REYKJAVlK | SfMI 520 0000 | www.rs.is

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.