blaðið - 20.09.2006, Blaðsíða 20

blaðið - 20.09.2006, Blaðsíða 20
28 MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 2006 blaðið Beitum okkur fyrir breytingum í landbúnaði Skjóta byssurnar sjálfar - eða er beim miðað? Atlaga Guðlaugs Þórs Þórðarsonar að Birni Bjarnasyni, sem Guðlaugur Þór hyggst velta úr sessi efsta manns í öðru Reykjavíkurkjördæmanna, er að sjálfsögðu gerð með vitund og þegjandi samþykki formanns Sjálf- stæðisflokksins, Geirs H. Haarde. Hann virðist hafa komist að þeirri niðurstöðu að komandi prófkjör sé rétti tíminn til að bera síðustu leif- arnar af pólitísku dánarbúi forvera síns út úr musteri flokksins. Ég hef enga trú á að Guðlaugur Þór, annar af tveimur helstu trún- aðarmönnum Geirs H. Haarde í þingflokknum, taki ákvörðun um að ráðast opinberlega gegn síðasta riddaranum úr röðum heimastjórna- flokksins - Davíðsklíkunnar - öðru vísi en að bestu manna ráði. Það er óhugsandi að hann ráðist gegn dómsmálaráðherra án þess að fá leyfi og hvatningu Geirs. Framboð Guðlaugs Þórs gegn Birni Bjarnasyni er því uppgjör Geirs H. Haarde við Björn Bjarnason. Geir er ekki langrækinn maður. En það rynni ekki í honum blóð ef hann gleymdi þeirri staðreynd, að klíkan í kringum Davíð ruddi konu hans, Ingu Jónu Þórðardóttur, úr stóli leið- toga borgarstjórnarflokks íhaldsins með aðferðum sem minntu á aðför- ina að Sesari á sínum tíma. Inga Jóna var vanmetinn stjórnmálamaður, og ég taldi þá að hún hefði jafnar líkur á að sigra Reykjavíkurlistann. Davíð Oddsson stýrði þeirri aðför en Björn Bjarnason var þá í sama hlutverki og Guðlaugur Þór er núna. Eins og Karl Marx sagði: „Sagan endurtekur sig - en jafnan sem farsi.“ Nú á að gjalda Birni eldauðan belg fyrir gráan. Oddvitasætið, sem hann rændi Ingu Jónu, ætlar Geir nú að láta Björn greiða með forystusæti hans sjálfs og síðan ráðherrasæti. Auga fyrir auga. Tönn fyrir tönn. Móselögmál gamlatestamentisins lifa góðu lífi í hinni nýju forystu í Sjálfstæðisflokknum. Lái Geir hver sem vill. Ég skil hann. Þannig virðist prófkjörið í Reykja- vík vera að snúast upp í persónuleg átök tveggja öflugustu manna Sjálf- stæðisflokksins í dag, Geirs H. Ha- arde sem er valdamestur og Björns Bjarnasonar sem er öflugasti hug- myndafræðingur flokksins. Þetta eru eins persónuleg átök og hægt er að hugsa sér. Þau snúast að engu leyti um annað en að jafna sakir. Guðlaugur Þór reiknar dæmið ör- ugglega þannig, að jafnvel þó hann tapi hafi hann í öllu falli skjól af Geir gegn refsivendi Björns Bjarnasonar. En er það víst? Er víst að Guðlaugur Þór sleppi við að vera laminn ára- tugum saman með hrísi gamla Há- landahöfðingjans jafnvel þótt hann sigri núna? Pyrrhos vann líka. Engeyjarættin er lífseig, og helsti bandamaður Björns á þingi er ná- Atlaga Guðlaugs kann aö hitta hann sjálfan fyrir Össur Skarphóðinsson frændi hans og síðasti ættarlaukur- inn, Bjarni Benediktsson. Hann er af sömu kynslóð stjórnmálamanna og Guðlaugur Þór. Ég þarf ekki draum- speki Guðna Ágústssonar til að spá þvi að Bjarni berjist um forystuna þegar Geir og hans kynslóð lætur af forystu í Sjálfstæðisflokknum. Það þarf ekki heldur þingmann með slaka meðalgreind eins og mig til að telja líklegt að hann sigri hvern sem er af kynslóð þeirra Guðlaugs Þórs. Engeyjarættin er ekki bara lífseig heldur langminnug. Hálandahöfð- inginn í Háuhlíðinni verður alltaf helsti ráðgjafi hennar meðan blóð sytrar um æðar. Þá dugar greind Guðlaugs Þórs til að geta sér til um þau ráð sem ættarhöfðinginn gefur ættarlauknum ef hann kemst í þá stöðu að mynda ríkisstjórnir. Þau ráð munu spretta af sömu hvötum og ráðin sem Geir gaf Guðlaugi núna. Fallbyssan sem nú er miðað úr Stjórnarráðinu gæti því endað sem brotajárn á öskuhaugi stjórnmálasögunnar. Um stjórnmál gildir nefnilega hið samaogískákinni.Svarturáalltafleik. Höfundur er þingflokksformaður Samfylkingarinnar. Fáar atvinnugreinar á íslandi njóta jafnmikilla ívilnana og styrkja af hálfu ríkisins og land- búnaður. Sagan segir okkur að þar sem ríkið skiptir sér af rekstri atvinnuvega í opnum hagkerfum, hægir á vexti þeirra atvinnu- vega eða þeir deyja út. Þetta á að sjálfsögðu við um landbúnað á íslandi. Styrkjakerfi leiðir til hærra vöruverðs. Það kerfi sem ríkisvaldið hefur skapað hér á landi um landbúnað hefur miklu frekar leitt til stöðn- unar en framfara, Þeir styrkir sem ríkið veitir bæridum á ári hverju ásamt verndartollum sem lagðir eru á innfluttar vörur valda því að neytendur fá rangar upplýsingar um hvaða vörur er hagstæðast að kaupa. Þessi ríkisafskipti eiga stóran þátt í háu matvælaverði hér á landi og landbúnaðarkerfið í heild sinni er aðeins tímaskekkja. Skera þarf kerfið upp Við sem bjóðum okkur fram til setu í stjórn Heimdallar teljum löngu tímabært að ríkisstjórnin skeri þetta úrelta kerfi upp. Við viljum að ungir sjálfstæðismenn beiti sér af krafti í þessu mikilvæga máli sem varðar alla landsmenn. Leysa þarf íslenskan landbúnað úr ánauð hafta og forræðishyggju svo hann verði samkeppnisfær við erlendar landbúnaðarvörur sem fluttar eru til landsins. Slíkt mun skila sér til almennings í formi lægra vöruverðs og stórbæta nýt- ingu á eignum bænda. Við teljum jafnframt mikilvægt að stigið verði varlega til jarðar og að leitað verði leiða til að tryggja bændum Styrkjakerfið hækkar vöruverð' Erla Margrét Gunnarsdóttir Leysa þarf landbúnaðinn úr ánauð hafta og forsjár Jón Felix Sigurðsson greiða leið úr þeim fjötrum sem kerfið hefur skapað þeim. Gera verður þeim kleift að hætta með reisn ef þeir kjósa svo. Þitt atkvæði skiptir máli Það er ljóst að umræða þess vetrar sem senn gengur í garð mun einkennast af komandi þingkosn- ingum. Við sem bjóðum okkur fram til stjórnarsetu í Heimdalli teljum mikilvægt að rödd ungra sjálfstæðismanna ómi sem hæst, eins og sjá má inni á heimasíðu okkar www.blatt.is. Þetta á ekki síst við í tengslum við landbúnað- armál. Við óskum því eftir þínum stuðningi núna á fimmtudaginn, þar sem formaður og ný stjórn verður kjörin á aðalfundi félags- ins. Sá breiði hópur sem nú býður fram undir stjórn Erlu Óskar Ás- geirsdóttur vonar að með þínum stuðningi fái rödd ungra sjálfstæð- ismanna að hljóma í vetur. Höfundar bjóða sigfram til stjórnar Heimdallar á fimmtudag. Dr. Friðrik Einarsson við skrifborðið í Hafnarbúðum. Það má ekki dragast deginum lengur! Nýlega las undirritaður bókina Læknir í þrem löndum, sem í sjálfu sér er ekki frásöguvert, eftir Gylfa Gröndal, útg. Setberg, Rvk. 1979, en þar segir frá ævi dr. Friðriks Einars- sonar, sem var yfirlæknir á skurð- deild Borgarspítalans í Reykjavík. Dr. Friðrik var nafnkunnur læknir á sinni tíð, duglegur og ósérhlífinn. Til marks um það má nefna, að eitt sinn skar hann upp stanslaust í 72 klukku- stundir án þess að sofa nokkuð, sett- ist aðeins niður á milli aðgerða og fékk sér kaffisopa. Nú er frá því að segja, að dr. Frið- rik hætti sem skurðlæknir á Borgar- spítalanum 67 ára að aldri árið 1976, vegna þess að hann vildi ekki staðna í starfi. Var það sameiginleg ákvörðun hans og eiginkonu hans, Ingeborgar, sem var dönsk að ætt. Þá brá svo við, eins og hann orðar það í minningum sínum, að hann var beðinn um að Aðbúnaö aldraðra verður að bæta Hallgrímur Sveinsson hafa yfirumsjón með nýrri sjúkra- og endurhæfingardeild fyrir aldraða sem stofnsetja átti í Hafnarbúðum við Reykjavíkurhöfn. Vegna áhuga á málefnum aldraðra tók dr. Friðrik þetta að sér. Dr. Friðrik rekur í frásögn sinni hvernig við íslendingar höfðum búið að öldruðum fram að því að hann lét þau mál til sín taka. Margt hafði áunnist og verður það ekki rakið hér. En hvað var það sem betur mátti fara í þeim efnum að dómi hins viður- kennda læknis árið 1979? Litum á eitt dæmi, orðrétt, úr bók þeirra Gylfa Gröndal: „Eitt er það sem verður að koma í veg fyrir - strax. Það er að hrúga mörgu gömlu fólki í eitt og sama herbergi. Sérhver einstaklingur á heimtingu á því í ellinni að hafa eigið herbergi, þar sem hann getur haft hjá sér þá hluti, sem honum eru hjartfólgnir; húsgögn, sem hafa fylgt honum alla ævi, myndir af börnum og barnabörnum og fleira, sem er tengt persónulegum minningum. Það er beinlínis ómannúðlegt að leyfa ekki öldruðum manni að vera í einveru með sál sinni og guði sínum, þegar hann vill það, án þess að eiga á hættu að verða fyrir ónæði annars fólks, sem hann er neyddur til að vera samvistum við; fólks, sem hann þekkir ekki og á kannski ekkert sam- eiginlegt með. Á öllum heimilum er nú reynt að láta hvert barn hafa sérherbergi, jafnvel frá fæðingu. En gamla fólkið má hírast hvað innan um annað! Ekki gæti ég hugsað mér að deila herbergi með öðrum, ef ég þyrfti að vera á elliheimili. Ég vildi heldur láta stytta mér aldur!“ Annað orðrétt dæmi úr hinni ágætu bók þeirra félaga: „Þjóðfélagið verður að taka málefni aldraðra föstum tökum. Og það má ekki dragast deginum lengur“. Svo mörg voru þau orð 1979 og miklu fleiri. Ótal margt hefur áunn- ist í málefnum aldraðra síðan þá. Því verður alls ekki neitað. En skyldu margir aldraðir ennþá kúldrast í fjölbýli á móti vilja sínum? Fróðlegt væri að heyra um það, í framhaldi af mikilli umfjöllun um það mál í vetur leið. Höfundur erforleggjari á Brekku í Dýrafirði.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.