blaðið - 20.09.2006, Blaðsíða 12

blaðið - 20.09.2006, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 2006 blaAi6 UTAN ÚR HEIMI Konungur kvaddur íbúar Tonga kvöddu konung sinn, Tupou IV, í hinsta sinn í gær en um tíu þúsund manns ásamt þrjátíu erlendum fyrirmönnum fylgdu honum til hinstu hvílu í höfuðborginni, Nuku’alofa. (athöfninni blönduöust saman kristnir siðir og ævafornar hefðir þeirra ættbálka sem byggja eyjarnar.. Reykiaust konungdæmi Reykingabann á opinberum stöðum tekur gildi í Wales í apríl á næsta ári og Norður-írar feta í fótspor þeirra á sviþuðum tíma. Nú þegar gildir reykingabann í Skotlandi og fyrirhugað er að slíkt bann taki giidi á Englandi næsta sumar. Æfir út í Aiþjóðagjaldeyrissjóðinn Indverjar eru æfir út Í.AIþjóðagjaldeyrissjóðinn eftir að reglum um vægi atkvæðamagns einstakra landa var breytt innan sjóðsins á mánudag. Á meðan vægi atkvæða- magns Kínverja, Suður-Kóreumanna, Tyrkja og Mexíkóa eykst var dregið úr vægi indverska atkvæðisins. írak: Hermönnum ekki fækkað Yfirmaður herstjórnar Banda- ríkjamanna í írak, fohn Abizaid herforingi, sagði í gær að hann gerði ekki ráð fyrir að fækkað yrði í herliði Bandaríkjamanna í landinu fyrr en í fyrsta lagi næstkomandi vor. Nú eru um 147 þúsund banda- riskir hermenn í landinu og að sögn Abizaid er skynsamlegt að viðhalda fjöldanum en óttast er að borgarastríð kunni að brjót- ast út í landinu. Herforinginn segir að herliðið sé að ná fram markmiðum sínum en vildi ekki útiloka að fjölgað yrði í liðs- aflanum í náinni framtíð. Varnarliðið: Síðasta þyrlan farin Síðasta varnarliðsþyrlan á Keflavíkurflugvelli var flutt af landi brott í gær með flutningavél. Fiðþór Eydal, upplýsingafull- trúi varnarliðsins, segir að í raun hafi dagurinn í gær því markað endalok eiginlegrar starfsemi bandaríska hersins á Keflavíkurflugvelli. Á mynd- inni sjást bandarískir hermenn undirbúa brottflutninginn en þyrlunni var flogið til Englands um borð í Galaxy-flutningavél hersins. Aratugalangur yfirmokstur varnarliöslns á mengunarvóldum: Mokaði yfir olíupytti og PCB mengaðan jarðveg ■ Mengunln látln liggja ■ Þýúdl ekkert að gera athugasemóir ■ Hrelnsun of kostnaðareóm _______ Í' Fáum eignirnar í staðinn Líklegt þykir að Bandaríkjamenn bjóði íslendingum eignir vamariiðs ins á Suðurnesjum iskiptum fyrir hreinsun mengaðs jarðvegs. Mengun á svæði varnarliðsins: Bjóða eignir í stað hreinsunar eftir herinn ■ Kostnað við hreinsun má ekki vanmeta ■ Bandaríkjamenn allir af vilja gerðir, segir bæjarstjóri Reykjanesbæjar ■ Slappleiki stjórnvalda áberandi, segir þingflokksformaður Samfylkingarinnar Eftir Trausta Hafsteinsson trausti@bladid.net „Framkvæmdir við hreinsun meng- aðs jarðvegs þyrftu að kosta mikið ef þær eignir sem við fáum í staðinn koma ekki á móti þeim kostnaði,” segir Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar. Hann ætlast til þess að Bandaríkjaher skilji við svæðið með viðunandi hætti og seg- ist gera ráð fyrir að viðræðunefnd- irnar hafi nú þegar komist að sam- komulagi um áætlaðan kostnað við hreinsun mengaðs jarðvegs. „Alveg ljóst er að umtalsverður kostnaður mun fara í að hreinsa upp mengaðan jarðveg og þann kostnað má ekki vanmeta,” segir Árni. „Búið er að setja verðmiða á þessa hreinsun og ég veit ekki til þess að Bandaríkjamenn hafi mót- mælt þeirri kröfu.” Aðspurð segir Ragnheiður Elín Árnadóttir, aðstoðarmaður forsætis- ráðherra, að ráðherra muni ekki tjá sig frekar um einstaka liði varnar- viðræðna þar sem ekkert nýtt hafi komið fram frá því hann tjáði sig Eignirnar koma á múti kostnaði vlð hreinsun jarðvegs Árni Sigfússon Bæjarstjóri Reykjanesbæjar síðast. Hún vonast til að samkomu- lag liggi fyrir fljótlega en ekki hefur enn verið boðað til næsta fundar viðræðunefndanna. Gífurlega kostnaðarsamt össur Skarphéðinsson, þing- flokksformaður Samfylkingarinnar, telur íslensk stjórnvöld hafa sýnt linkind í viðræðum um hreinsun mengaðra jarðsvæða. „Þarna eru nokkur svæði sem eru menguð af Iífrænum þrá- virkum efnum og hreinsun þeirra er gríðarlega kostnaðarsöm. Á þeim svæðum þarf að hreinsa upp og fjarlægja mikið magn af jarðvegi,” segir Össur. „Slappleiki stjórnvalda hefur meðal annars birst í því að enginn fulltrúi frá um- hverfisráðuneytinu átti sæti í samn- Hreinsun meng- aðra jarðsvæða verður gífurlega kostnaðarsöm Össur Skarphéðinsson Þingmaður Samfylkingarinnar inganefndinni þó svo að þáverandi umhverfisráðherra, Sigríður Anna Þórðardóttir, hafi gengið fast eftir því. Þar að auki hefur utanríkis- málanefnd fengið sáralitlar upþ- lýsingar um gang mála og eitthvað virðast menn vilja fela.” „Reynsla af brottflutningi Banda- ríkjahers annars staðar er ekki góð og iðulega hafa stjórnvöld lent í því að kostnaður við hreinsun svæða hefur farið langt fram úr þeirri ein- greiðslu sem Bandaríkjamenn hafi boðið fram,” bætir Össur við. Alliraf vilja gerðir Aðspurður segir Árni Banda- ríkjamenn alla af vilja gerða og að þeir hafi gert sína eigin skýrslu þar sem mengunin var metin. í kjölfar þeirrar skýrslu bættust við helm- Olía algengasti mengunarvald- urinn Sérfræðingar hafa bent á að íslenskt vistkerfi sé sérstaklega við- kvæmt fyrir mengunarvöldum og að ekki verði hægt að hreinsa upp allan mengaðan jarðveg á varnarsvæðinu. ingi fleiri menguð svæði en upphaf- lega var gert ráð fyrir. „Upphaflega voru dregin fram þrjátíu menguð svæði og Banda- ríkjamenn bættu sjálfir við öðrum eins fjölda sem hreinsa þyrfti upp. Að þvi gefnu virðist vera metnaður þeirra að skilja vel við,” segir Árni. „Við teljum grundvallaratriði að sveitarfélögin hér taki þátt í upp- byggingunni á svæðinu og meðal annars hreinsun jarðvegsins.” Við opnum í þessari viku nýjar JÍMlllíí og glæsilegar LUSH verslanir á " LAUGAVEGI OG KRINGLUNNI. Okkur vantar hörkuduglegt starfsfólk strax. « Ertu ábyrgðarfull « Ábyrg og reyklaus? • Getur þú unnið sjálfstætt? • Hefur þú skipulagshæfileika? • Hefur þú reynslu af afgreiðslustörfum? • Hefur þú áhuga á ilmkjarnaolíumeðferðum? » Þekkirðu til náttúruvaranna frá Lush? Ef þú hefur það sem til þarf sendu okkur þá umsókn á upplysingar@lush. is eða skilaðu inn umsókn í verslun okkar í Kringlunni, 1. hæð. Umsóknarfrestur er til 24.sept Lush framleiðir og selur ferskar og náttúrulegar snyrtivörur í rúmlega 400 sérverslunum um allan heim. Lush forðast í lengstu lög að nota gerviefni við framleiðsluna og er alfarið á móti tilraimum á dýrum. Lush hefur starfað á íslandi í 4 ár Bandaríkjaforseti ávarpaði allsherjarþingið: Óskar samstöðu gegn öfgum George Bush, forseti Bandaríkj- anna, hvatti þjóðarleiðtoga til þess að leggja lóð sín á vogarskálarnar við að treysta stoðir lýðræðis í Mið-Austur- löndum þegar hann ávarpaði allsherj- arþing Sameinuðu þjóðanna í New York í gær. Forsetinn bað aðildarríki Sameinuðu þjóðanna um aðstoð við að styrkja hófsöm öfl í Mið-Austur- löndum í baráttunni við öfgamenn. Bush ræddi ennfremur hvernig lýð- ræðisvæðing svæðisins gæfi íbúum þess framtíðarsýn vonar um betri framtíð en hann tók einnig fram að hvert einasta þjóðfélag þyrfti að feta lýðræðisbrautina á eigin vegum í sam- ræmi við eigin menningu og hefðir. Forsetinn lagði einnig mikla áherslu á þær jákvæðu afleiðingar sem frelsisstefna núverandi stjórn- valda í Washington hefur haft og nefndi sem dæmi þá lýðræðisþróun sem hefur skotið rótum í Afganistan, Líbanon og írak. Fyrr um daginn sendi forsetinn hörð skilaboð til klerkastjórnarinnar í Teheran um að tefji hún enn frekar að láta af auðgun úrans hafi afleið- ingar í för með sér. Hins vegar itrek- aði forsetinn það að Bandaríkjamenn setjist við samningaborðið þegar Ir- anar láta af auðgun úrans. Bush fund- aði einnig með forseta Frakklands, í New York í gær og lögðu þeir báðir áherslu á að Bandaríkjamenn og Evr- ópusambandið væru samtiga í deil- unni um kjarnorkuáætlun írana.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.