blaðið - 20.09.2006, Síða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 2006
blaðiö
VEÐRIÐ í DAG Á MORGUN VÍÐA UM HEIM
Hvasst
Gengur í norðaustanátt, þrettán til átján
metra á sekúndu. Rigning suðaustan-
lands eftir hádegi en annars mun hægari
og víða bjart. Hiti 5 til 15 stig, hlýjast
suðvestanlands, en svalast á annesjum
norðantil.
Hægir
Norðaustan átta til þrettán
metrar á sekúndu, en hægari
síðdegis. Oálítil væta norðan-
og austanlands en bjartviðri
um landið suðvestanvert. Lítið
eitt kólnandi veður.
Algarve
Amsterdam
Barcelona
Berlín
Chicago
Dublin
Frankfurt
27
20
27
20
9
17
19
Glasgow
Hamborg
Helsinki
Kaupmannahöfn
London
Madrid
Montreal
16 New York
17 Orlando
16 Osló
w Palma
m París
27 Stokkhólmur
11 Þórshöfn
17
24
14
26
22
17
10
Dæmdur í þriggja mánaða fangelsisvist:
Særði föður sinn lífshættulega
Átján ára piltur hefur verið
dæmdur í tólf mánaða fangelsi, þar
af níu mánuði skilorðsbundið, fyrir
að stinga föður sinn svo að af hlutust
lífshættulegir áverkar. í dómnum
sem kveðinn var upp í Héraðsdómi
Reyjavíkur í gær kemur fram að það
hafi verið „hundaheppni" að ekki
fór verr.
Rót árásarinnar má rekja til þess
að faðir piltsins og móðir voru að
skilja vegna framhjáhalds föðurins.
Feðgarnir rifust heiftarlega vegna
þess og það endaði með því að
faðir piltsins réðst á hann og veitti
honum smávægilega áverka.
Faðirinn fór svo á veitingastað-
inn Kaffisetrið og pilturinn á eftir
honum. í dómsorði segir að piltur-
inn hafi fylgt honum með það að
markmiði að meiða hann.
Á Kaffisetrinu hélt rifrildið áfram
inni í eldhúsi en faðir piltsins rak
staðinn ásamt móður hans. Deilur
þeirra mögnuðust svo úr varð að
pilturinn stakk hann lífshættulega
í síðuna.
í dómsorði segir að pilturinn telj-
ist óvenju óharðnaður og saklaus
miðað við aldur og fangelsisvist
geti verið honum skaðleg. Pilturinn
er búinn að vera í gæsluvarðhaldi
síðan 17. júní og mun það dragast
frá refsingu hans.
Stakk föður sinn Pilturinn þótti
óvenju óharönaður og saklaus miö-
aö viö aldur
□
c
Jmjólk
Hugsaðu um heilsuna
oghafðu línurnar í lagi!
Lögreglan:
Með loftbyssu
í skólanum
Lögreglan í Reykjavík hafði
afskipti af grunnskólanema sem
var með loftbyssu í skólanum.
Nemandanum tókst að skjóta
tvo skólafélaga og marðist annar
þeirra. Sagði grunnskólaneminn
við lögregluna að það hafi verið
óviljaverk.
Skólayfirvöld lögðu hald á
byssuna og vill lögregla koma
því á framfæri að loftbyssur geta
verið stórhættulegar.
Trúlaus kona skráð kaþólsk í tuttugu ár:
Kaþólska kirkjan Kaþólski söfnuö-
urinn hefur verið lengi á Islandi og er
nokkuð stór, en þó einum fámennari
ídag
Kína:
Frjósamar
pöndur
Risapandan Zhangka heldur
á nýfæddum húni í risapönduat-
hvarfinu í Wolong í Sichuan-hér-
aði í suðvesturhluta Kína.
Sxtán pöndur í athvarfinu
í fyrra og er vonast til að þær
verði fleiri í ár. Talið er að um
þrjú þúsund pöndur lifi villtar
í Kína en áður var talið að þær
væru aðeins tæplega 1600.
Kaþólikki fyrir mistök
■ Veriö trúlaus frá átta ára aldri ■ Trúin ákveðin fyrir hana ■ Trúarbrögð ályktuð út frá heimshlutum
Eftir Val Grettisson
valur@bladid.net
„Það var fyrir tilviljun sem ég komst
að því að ég væri skráð í vitlaust trú-
félag,“ segir Karólína Geirsdóttir en
hún var skráð sem kaþólikki í þjóð-
skrá Islands í tuttugu ár án hennar
samþykkis.
Karólína er hollensk og hefur
búið hér á landi í rúm tuttugu ár.
Hún segist hafa þurft að útrétta á
Hagstofunni þegar hún ákvað fyrir
MEÐLAGSGREIÐENDUR
Meðlagsgreiðendur, vinsam-
legast gerið skil hið fyrsta og
forðist vexti og kostnað
forvitnissakir að spyrja hvort hún
væri skráð í eitthvert trúfélag. Þá
kom í ljós að hún hafði verið kaþ-
ólsk síðan hún flutti til íslands.
„Þegar ég spurði af hverju ég væri
skráð kaþólsk var mér sagt að það
hefði bara verið ákveðið á sínum
tíma,“ segir hún og bætir við að
henni hafi orðið heitt í hamsi þar
sem hún hafi verið trúlaus frá átta
ára aldri og verið afar ákveðin í
þeirri sannfæringu.
Karólína segir það súrt í brotið að
hún hafi borgað skatt í trúfélag í tutt-
ugu ár og ekki sé hægt að leiðrétta
það. Hún hafi beðið um að féð færi í
þann sjóð sem hún taldi sig borga í
en því var hafnað á staðnum.
Að sögn Karólínu þótti henni sár-
ast að aldrei hafi verið spurt um
trúfélag þegar hún kom til Islands.
Hún fékk aldrei að vita í hvaða trú-
félagi hún væri enda þarf að fara sér-
staklega niður á Þjóðskrá til þess að
fá þær upplýsingar og eru þær ekki
gefnar upp í síma.
Hún segir að þegar hún spurði
hvernig stæði á því að hún væri
skyndilega orðin kaþólsk frekar
en eitthvað annað, verandi frá Hol-
landi, þá varð fátt um svör.
„Ég veit ekki alveg hvernig menn
komust að þeirri niðurstöðu að
-Sw
jy
Trúlausi kaþólikkinn Karóiina Geirs-
dóttir var skráður kaþólikki í rúm
tuttugu ár án sinnar vitneskju
Hollendingar væru upp til hópa kaþ-
ólskir, kannski drógu þeir ályktun
út frá því að hollenskar nunnur eru
búsettar hér á landi," segir hún hlæj-
andi en bendir á að það séu náttúr-
lega rúm tuttugu ár liðin síðan
menn gerðu þessi mistök.
Skúli Guðmundsson, skrifstofu-
stjóri Þjóðskrár, segist kannast við
atvikið en man ekki eftir öðru eins.
„Þetta er einsdæmi og getur ekki
gerst í dag.“ Skúli segir að upp hafi
komið örfá mál varðandi Frlkirkj-
una en þá voru sóknarbörn hennar
skráð í þjóðkirkju vegna þess að þau
fluttu úr umdæmum Fríkirkjunnar.
Það breyttist hins vegar 1991.
Samkvæmt Skúla var það fyrir-
komulag fyrr á árum að Þjóðskrá
ályktaði trúarbrögð út frá þeim
heimshluta sem fólk bjó i en þvi fer
fjarri að slíkt sé við lýði í dag. Að
hans sögn er þó ekki ómögulegt að
Islendingar af erlendu bergi brotnir
sem hafa verið búsettir hér síðan
fyrir 1990 séu enn skráðir í vitlaus
trúfélög. Aðspurður hvort dæmi
séu um að einstaklingar úr öðrum
íslenskum trúfélögum hafi dottið
inn í önnur trúfélög án þeirra vit-
undar segir hann að slíkt hafi ekki
gerst.
Skúli segir fyrirkomulagið
þannig að þeir innflytjendur sem
koma til landsins séu ekki settir í
nein trúfélög. Þeir eru óskilgreindir
í trú þar til þeir ákveða sjálfir sér-
staklega annað. Þangað til rennur
skattur þeirra til Háskóla íslands.
Því ættu mistök sem þessi að vera
nær ómöguleg.
Hann vill einnig taka það sérstak-
lega fram að þetta mál er einstakt
tilfelli og því ekki ástæða til þess að
hlaupa upp til handa og fóta. Einnig
er rétt að benda á að fólk getur ekki
fengið eigin persónuupplýsingar úr
Þjóðskrá símleiðis.