blaðið - 20.09.2006, Qupperneq 6
6 MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 2006
blaöiö
HAGSTOFAN
Hækkar um 11,4 prósent
INNLENT
Vísitala byggingarkostnaðar hefur hækkað um
11,4 prósent síðastliðna tólf mánuði. Samkvæmt
tölum frá Hagstofunni er vísitalan, reiknuð eftir
verðlagi um miðjan september, 352,3 stig og
hefur hækkað um 0,26 prósent frá fyrra mánuði.
LÍKAMSÁRÁS
Fólskuleg árás
Ráðist var aftan að pilti aðfaranótt
sunnudags á Akranesi þannig að hann féll
niður og tönn brotnaði. Pilturinn komst á
lögreglustöð til þess að tilkynna atvikið en
árásarmaðurinn hefur ekki fundist.
INNBROT
Þjófar gómaðir
Tveir menn og kona voru handtekin á Selfossi fyrir innbrot
og bílþjófnað. Bílnum sem þau voru á hafði verið stolið
á Húsavík og í honum voru verðmæti sem talin eru þýfi.
Einnig leikur grunur á að þau hafi brotist inn í félagsheim-
ilið Árnes og stolið þaðan talsverðum verðmætum.
Leiðtogar Vítisengla:
í varðhald vegna dóps
mbl.is Sex karlmenn, sem tengjast
mótorhjólaglæpasamtökunum Vít-
isenglum í Danmörku, voru í dag
úrskurðaðir í fjögurra vikna gæslu-
varðhald í Árósum í tengslum við
rannsókn á eiturlyfjasölu. Að sögn
lögreglu eru nokkrir af leiðtogum
samtakanna þar á meðal. Vítis-
englarnir voru handteknir í gær í
umfangsmiklum aðgerðum lögregl-
unnar í Árósum og víðar. Lögregla
lagði hald á umtalsvert magn af
fíkniefnum og peninga, sem taldir
eru vera ágóði af fíkniefnasölu.
Brotist inn í bíl hjá leikkonu og sex ferðatöskum stolið:
Stálu fötunum en
skildu matinn eftir
FJORIR DISKAR - FJOCUR OLOS
HEITREYKTUR lax með humar kartöflumús
SALTFISK .BRANDADE' MEÐ HVÍTVÍNS SMJÖRS'ÓSU
ORILLADAR nautalundir .surf and turf' með HUMAR-
HÖLUM, .WOK' ORÆNMETI OC PORTVÍNSSÓSU
KLASSÍSKT .TIRAMISU'
MATSEÐILL KR. 6.900.
SÉRVALIN VÍN MEÐ MATSEÐLI KR. 3.300.
Barónsstígur 11, síma 5519555
■ Tóku ættargripi og dýr merkjaföt ■ Tapaöi vegabréfinu og atvinnuleyfinu
Lánlaus leikkona Pálína Jónsdóttir leikkona vill ferðatöskur aftur og hafi fólk
upplýsingar getur það hringt íhana í síma 6966939.
Eftir Val Grettisson
valur@bladid.net
„Ég er enn í sömu buxunum og síðan
ég var rænd,“ segir Pálína Jónsdóttir
leikkona. Sex töskum sem hún átti
var rsént úr bílnum hennar á þriðju-
daginn í síðustu viku.
Að sögn Pálínu var hún að pakka
saman vegna þess að hún var að fara
til Bandaríkjanna þar sem hún er
búsett. Hún lét föggur sínar í bílinn
sem var í porti fyrir aftan Alþjóða-
húsið. Síðar um kvöldið sá hún að
búið var að brjóta rúðu í bílnum og
hirða allar töskurnar.
„Það var reyndar líka matur í skott-
inu en þeir létu hann vera, sem sagt
ekki mjög svangir þjófar,“ segir Pá-
lína og hlær þrátt fyrir ólánið.
Þjófnaðurinn er dýrkeyptur fyrir
Pálínu því mikil verðmæti voru í
töskunum. Þar var talsvert af skarti,
ættargripir og dýr merkjaföt. Henni
finnst þó verst að vegabréfi hennar
var stolið ásamt starfs- og dvalarleyfi
í Bandaríkjunum sem hún þarf að
framvísa þegar hún fer aftur. Hún
átti að fljúga á föstudaginn næstkom-
andi en telur að það verði ómögulegt
vegna þjófnaðarins.
„Þetta er bara svo andstyggilegt,"
segir Pálína sem saknar farangurs-
ins sárlega.
Pálína hefur verið búsett í tvö ár í
New York þar sem hún starfar sem
leikari. Margt er á döfinni hjá henni
en hún mun taka þátt í alþjóðlegri
listamessu eins og hún kallar það en
þar verða sýnd þau verk sem þóttu
skara fram úr á árinu. Hún segir dvöl
sína frábæra í New York og að borgin
sé yndisleg. Aðspurð hvort hún hafi
lent í þjófnaði í stóra eplinu segir hún
hlæjandi: „Nei, ég hef ekki enn lent
í því. Ætli New York sé ekki bara ör-
uggari borg en Reykjavík."
Pálína vill höfða til þjófanna og
biður þá um að skila sér því sem
þeir tóku. Þó það væri ekki nema
vegabréfið og þau skjöl sem voru í
töskunni. Hún biður einnig fólk sem
gæti hafa séð eða heyrt eitthvað til
þjófanna að hafa samband við sig.
Hún biður fólk í nærliggjandi húsum
að hafa augun hjá sér því þjófarnir
hafi hugsanlega hent plöggunum í
nærliggjandi ruslatunnur.