blaðið - 20.09.2006, Qupperneq 8
8 MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 2006
blaöi6
UTAN ÚR HEIMI
NORÐUR-KÓREA
Frekari þvinganir
Stjórnvöld í Japan og Ástralíu ætla að grípa tll frekari
þvingunaraðgerða gegn Norður-Kóreumönnum vegna
þróunar stjórnvalda á langdrægum eldflaugum. Frysta
á allar peningasendingar til hópa sem eru taldir vinna
að kjarnorkuáætlun og eldflaugaáætlun landsins.
Varar við árás á íran
Hugo Chavez, forseti Venesúela, varaði umheim-
inn við alvarlegum afleiðingum hernaðaraðgerða
gegn klerkastjórninni í Teheran. Chavez sagði í
gær að Venesúela myndi hætta öllum olíuvið-
skiptum við Bandaríkjamenn verði ráðist á (rana.
FRAKKLANP
Frakkar fitna víst - konurnar líka
Einn þriðji frönsku þjóðarinnar er yfir kjörþyngd og berst við offitu
samkvæmt könnun sem var gerð fyrir heilbrigðisyfirvöld í landinu.
Tæplega sex milljónir Frakka eiga við alvarlegan offituvanda að
stríða. Er það um 2,3 milljónum fleiri á níu ára tímabili. Vandinn er
sérstaklega áberandi hjá hópum sem hafa lægri tekjur.
Ítalía:
Vitgrannur
þjófur
Þjófur 1 Mílanó á ftallu gaf
sig óvart fram við lögreglu í
kjölfar þess að hann hringdi í
farsima sinn til þess að hafa upp
á honum. Þjófurinn hafði rænt
tæplega áttræða konu en í hama-
ganginum missti hann farsíma
sinn í jörðina án þess að gefa þvi
gaum. Eftir að þjófurinn hvarf
á braut tók konan upp símann
og lét hann í hendur lögreglu
á sama tíma og hún tilkynnti
ránið. Stuttu síðar hringdi þjóf-
urinn til þess að komast að því
hvar síminn væri niðurkominn.
Lögreglan notaði tækifærið og
mælti sér mót við manninji og
handtók hann.
Þjófinum var sleppt úr fang-
elsi á dögunum þegar stjórnvöld
náðuðu fjölda glæpamanna
vegna yfirfullra fangelsa í
landinu. Þegar maðurinn vitjaði
símans hafði hann rænt aðra
gamla konu og kom akandi á
stolinni vespu.
Sonur Tolkiens semur:
Klárar verk
fööur síns
Skáldsaga sem enski sagnaþul-
urinn J.R.R. Tolkien lauk aldrei
við, The Children of Hurin,
hefur verið búin til útgáfu og
verður gefin út vorið 2007.
Tolkien hóf að skrifa söguna
árið 1918 en gaf verkið upp á bát-
inn. I sögunni bregður fyrir per-
sónum sem einnig koma fyrir í
Hringadróttinssögu. Kaflar úr
sögunni hafa áður komið fyrir
almenningssjónir en síðustu
þrjátíu ár hefur sonur Tolkiens,
Christopher Tolkien, búið sög-
una til lokaútgáfu.
■ 53. gr.
Skylt er foreldrum, báðum saman og
hvoru um sig, að framfæra barn sitt. Fram-
færslu barns skal haga með hliðsjón af
högum foreldra og þörfum barns.
■ 57.gr.
Meðlag skal ákveða með hliðsjón af þörf-
um barns og fjárhagsstöðu og öðrum hög-
um beggja foreldra, þar á meðal aflahæfi
þeirra.
Eftir Trausta Hafsteinsson
trausti@bladid.net
„Geysilega mikilvægt er að endur-
skoða núverandi fyrirkomulag með-
lagsgreiðslna. Núverandi kerfi er
löngu orðið úrelt,” segir Gísli Gísla-
son, formaður Félags einstæðra feðra,
aðspurður umþriðjung meðlagsgreið-
enda sem eru í greiðsluerfiðleikum
og skulda 11,5 milljarða. Hann segir
meðlagsgreiðslur hærri hér en í ná-
grannalöndunum og ekki sé hægt að
fá lágmarksupphæð lækkaða þrátt
fyrir lakar tekjur greiðanda.
„Víða skiptist framfærslukostn-
aður barna eftir tekjum foreldra.
Ef meðlagsgreiðandi hefur lágar
tekjur lækka mánaðarlegar meðlags-
greiðslur í samanburði en slíkt ger-
ist ekki hér á landi,” segir Gísli. „Til
viðbótar er meðlagsupphæðin alveg
óháð umgegni þannig að ef greið-
andi hefur mikinn umgengnisrétt
þá lækkar meðlagsgreiðslan ekki til
móts við slíkt.”
Herða skal viðurlög
Magnús Þór Hafsteinsson, þing-
maður Frjálslynda flokksins og
Núverandi
meðlagskerfi er
löngu orðið úrelt.
Gísll Glslason,
formaður Félags
ábyrgra feðra
nefndarmaður í félagsmálanefnd, er
hissa á því hversu margir meðlags-
greiðendur eru á vanskilaskrá og
telur eðlilegt að herða viðurlög við
vanskilum.
„Mér finnst meðlagsgreiðslur á Is-
landi ekki vera háar. íslenskir feður
eiga ekki að geta kvartað yfir þessu,”
segir Magnús Þór. „Hugsanlega er
ekki gengið nógu hart eftir því að
innheimta þessi gjöld. Lágar tekjur
útskýra ekki eingöngu þessi miklu
vanskil og sumir hljóta að forgangsr-
aða vitlaust. Hertar innheimtuað-
gerðir gætu verið til þess fallnar að
aga menn betur.”
Neðanjarðarhagkerfi staðreynd
Birkir Jón Jónsson, þingmaður
Framsóknarflokksins og nefndar-
maður í félagsmálanefnd, segir mála-
flokkinn viðkvæman.
Eðlilegt að tekju-
tengja meðlags-
grelðslur hér á
landi.
Magnús Þ. Hafsteinsson
Þingmaður Frjálslynda
flokksins
„Staða meðlagsgreiðenda er grafal-
varleg og stöðu þeirra verst settu þarf
að bæta. Það getur eklci verið þjóðfé-
lagslega hagkvæmt að hluti þegnanna
geti ekki tekið þátt í samfélaginu
með eðlilegum hætti,” segir Birkir
Jón. „I ljósi bágrar skattalegrar stöðu
greiðenda neyðast sumir þeirra til að
stunda svarta atvinnustarfsemi.”
Magnús Þór er sammála Birki Jóni
um að taka þurfi málið sérstaklega
fyrir og skoða leiðir til úrbóta. „Með-
lagið ætti að tekjutengja hér á landi
að mínu mati. Slíkt þekkist víða í
nágrannalöndunum og ég tel brýnt
að félagsmálanefnd skoði þessi mál
betur. Foreldrar verða að borga með
sínum börnum,” segir Magnús Þór.
Brot á lögum
Gísli vísar til barnalaganna en í
þeim er þess sérstaklega getið að
Sumirþeirra
neyðast til að
stunda svarta
atvinnustartsemí.
Birkir Jón Jónsson
Þingmaður
Framsóknarflokkslns
framfærsla barns skuli ákveðin með
hliðsjón af fjárhagsstöðu og högum
beggja foreldra.
„Miðað við hinabágu stöðu meðlags-
greiðenda veltir maður því fyrir sér
hvort fyrirkomulagið sé í raun brot á
ákvæðum barnalaganna,” segir Gísli.
„Ofan á allt saman þá njóta forsjár-
lausir foreldrar ekki sömu skattalegu
réttinda því þeir flokkast sem barn-
lausir einstaklingar. Báðir foreldrar
hafa hins vegar sömu framfærslu-
skyldu og eiga þeir því einnig að hafa
sömu skattalegu stöðu.”
Birkir Jón tekur undir með Gisla
um að úrbætur séu nauðsynlegar og
segir margt skynsamlegt í umræðu
Félags ábyrgra feðra.
„Úrbóta er þörf í þessum mála-
flokki því hér er um hreint jafnrétt-
ismál að ræða og því nauðsynlegt að
taka málið fyrir,” segir Birkir Jón.
Komatsu
skotbómu-
lyftarar á la
Komatsu
WH609með
göttlum, sKúflu
og hliðarfærslu.
KomatsuWH714
meðgöfflum,
skófluog
hlíðarfærslu.
Frekarlupp-
lýsingarhiá
sölumönnum
Krattvéla etif
535-3500
KomatsuWH716
meðgöfflum,
skófluog
mannkörfu.
Mótmælin 1 Ungverjalandi:
Forsætisráðherra
stendur keikur
Ferenc Gyurscaný, forsætisráð-
herra Ungverjalands, neitar að segja
af sér og kallaði mótmælin í Búda-
pest aðfaranótt þriðjudags „lengstu
og myrkustu nótt lýðveldisins”. For-
sætisráðherrann sagði í gær að hart
yrði tekið á ofbeldisseggjum í röðum
mótmælenda og óreirðir yrðu ekki
liðnar af yfirvöldum. Mótmælin
voru verstu óeirðir í landinu frá falli
kommúnismans og er talið að um
150 manns hafi slasast.
Þúsundir manna flykktust út á
götur Búdapest á mánudag og mót-
mæltu fyrir utan þinghúsið og höf-
uðstöðvar ríkissjónvarps landsins
í kjölfar þess að fjölmiðlar spiluðu
hljóðupptöku af fundi Gyurscany
með samráðherrum sínum þar sem
hann viðurkennir að hafa logið til
um efnahagsástand landsins til þess
að auka líkurnar að flokkur hans,
Sósíalistaflokkurinn, myndi sigra í
þingkosningunum og að ríkisstjórn
hans hafi ekki gert neitt af viti síð-
ustu tvö árin. Áður en hljóðupptakan
var leikin í fjölmiðlum var töluverð
spenna á meðal borgara vegna niður-
skurðaráætlunar ríkisstjórnarinnar.
Mótmælin fóru úr böndunum þegar
fólk tók að grýta og gera áhlaup á
höfuðstöðvar ríkissjónvarpsins og
kveikja I bílum. Lögreglan hafði náð
tökum á ástandinu i gærmorgun.
Varist áhlaupi Ungversk óeirðalög-
regla fyrir framan höfuöstöðvar ríkis-
sjónvarpsins aðfaranótt þriöjudags