blaðið - 20.09.2006, Qupperneq 13
blaöiA
MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 2006 13
Brasilía:
Fálkar herja á auðmenn
Svíþjóð:
Wallström
líklegust
„Innan flokksins er mikill
vilji til að fá konu til að taka við
formennsku af Persson," segir
Nalin Pekgul, formaður Lands-
sambands jafnaðarkvenna í Sví-
þjóð. Göran Persson, fráfarandi
forsætisráðherra, lýsti því yfir
í kjölfar úrslita þingkosninga
að hann hygðist hætta sem for-
maður Jafnaðarmannaflokksins.
Eftir að Anna Lindh, fyrr-
verandi utanrikisráðherra,
var myrt árið 2003 hefur ekki
verið neinn augljós eftirmaður
Perssons innan flokksins, en
samkvæmt könnun Sifo er
vilji sænsku þjóðarinnar skýr.
Margot Wallström, fram-
kvæmdastjóri hjá ESB, er sú
persóna sem Svíar vilja sjá sem
arftaka Perssons. Wallström fær
43 prósent í könnuninni.
Framsóknarflokkurinn:
Herdís sækir
aö Kristni H.
Herdís Sæmundardóttir,
stjórnarformaður Byggðastofn-
unar, hefur ákveðið að gefa
kost á sér í annað sæti á lista
Framsóknarflokksins í Norð-
vesturkjördæmi. í því sæti situr
nú Kristinn H. Gunnarsson.
Herdís skipaði þriðja sætið á list-
anum fyrir síðustu kosningar
en framsóknarmenn náðu þá
inn tveimur mönnum. Krist-
inn H. var formaður stjórnar
Byggðastofnunar og því munu
líklegast takast á núverandi og
fyrrverandi stjórnarformenn
stofnunarinnar.
Danskt dagblað:
Mælt með
íslandsferð
mbl.is „Með 6000 krónur myndi
ég kæla mig niður. Ég færi til
Reykjavíkur í nóvember á vit
ævintýranna í landi guðanna,”
segir Sophie Hulgard, starfs-
maður danskrar ferðaskrifstofu,
við fríblaðið Urban í gær. Þar
eru nokkrir starfsmenn danskra
ferðaskrifstofa spurðir hvert
þeir myndu fara ef þeir fengju
6000 danskar krónur, jafnvirði
72.000 króna, til ferðarinnar.
„Ég myndi fljúga með Ice-
landair á laugardegi og bóka
mig inn á Nordica Hótel & Spa í
miðborginni. Á sunnudeginum
færi ég í ferðalag og skoðaði
Bláa lónið, heitu lindirnar við
Geysi, Gullfoss og annað það
besta sem ísland hefur upp á
að bjóða,” segir Sophie meðal
annars.
Úrillt fálkapar hefur herjað á auð-
menn í Ipanema-hverfi í brasilísku
borginni Ríó de Janeiro undanfarið
ár og hafa fálkarnir valdið á annað
hundrað manns meiðslum. Fálk-
arnir þykja vera óvenju skæðir og
fara íbúar hverfisins vart úr húsi
án þess að vera með regnhlíf sér til
varnar ellegar hlaupa milli staða og
baða út höndum til þess að koma í
veg fyrir árásir.
Að sögn dagblaðsins 0 Globo eru
árásir fálkanna stórhættulegar og
fláði meðal annars einn fálkinn
hluta af höfuðleðri konu einnar.
Grunlaus maður sem varð fyrir barð-
inu á öðrum fálkanum hélt að hann
hafi orðið fyrir byssuskoti. Luis Ho-
norato, sem er dyravörður í byggingu
rétt hjá hreiðri fálkaparsins, líkir
fálkaárásunum við það að fá dós sem
er látin falla úr margra metra hæð
ofan á hausinn á sér.
Rodrigo Carvalho, sem er líffræð-
ingur hjá Náttúruverndunarstofnun
Brasilíu, segir ekkert óeðlilegt við
árásir fálkanna; þeir séu einungis að
reyna að verja ungana sína í hreiðr-
inu. Carvalho segir að slíkar árásir
séu algengar í fátækrahverfum í
borginni og þegar auðmenn lesi
um þær í blöðunum þyki þeim það
fyndið. En þegar fálkarnir setjast
að í þeirra hverfum byrja auðmenn-
irnir að kvarta yfir árásum. Talið er
að um þúsund fálkapör hafist við
I borginni. íbúar Ipanema-hverf-
isins hafa beðið slökkviliðið að
fjarlægja hreiður fálkanna en það
má ekkert aðhafast nema með leyfi
umhverfisverndunaryfirvalda.
íslenskur fálki Af fregnum að
dæma er íslenski fálkinn gæfur mið-
að við kollega sína i Ríó de Janeiro.