blaðið - 20.09.2006, Page 16
16 MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 2006
blaöiö
Súdönsk stjórnvöld íhuga að leyfa friðargæslu áfram:
Afríkubandalagið
áfram í Darfúr
■ Ákvarðanatími stjórnvalda að renna út ■ Þátttaka Vesturlanda talin nauðsynleg
Kauphöllin seld:
Sameinast
OMX höllinni
Viljayfirlýsing um kaup OMX-
kauphallanna á eignarhaldsfélag-
inu Verðbréfaþingi hefur verið
undirrituð. Eignarhaldsfélagið
er eigandi Kauphallar íslands og
stefnt er að því að sameina kaup-
höllina viðOMX.
í tilkynningu segir að kaupin
séu skref í þeirri viðleitni að
samþætta verðbréfamarkaði
Norðurlanda og Eystrasaltsríkj-
anna og gera OMX að leiðandi
evrópskum markaði. Gert er
ráð fyrir því að kaupin verði
fullfrágengin fyrir lok árs. OMX
er skráð félag í kauphöllunum
í Stokkhólmi, Helsinki og Kaup-
mannahöfn og hyggst félagið
sækja um skráningu í Kauphöll
Islands þegar gengið hefur verið
frá kaupunum. Eftir kaupin mun
Kauphöll íslands verða markaðs-
sett undir merkjum OMX.
íbúar Fljótsdalshéraðs:
Fjölgaöi um
25 á hálfu ári
mbl.is Tuttugu og fimm fleiri
fluttu til Fljótsdalshéraðs ann-
ars staðar af landinu á fyrra
helmingi þessa árs en frá því. Þá
fluttu 335 fleiri einstaklingar frá
útlöndum til Fljótsdalshéraðs
frá áramótum en frá því, sam-
kvæmt því sem fram kemur á
fréttavefnum Egilsstadir.is.
Eiríkur Björn Björgvinsson
bæjarstjóri segir þar að ekki sé
hægt að fullyrða að íslendingar
séu að flytja burt úr héraðinu
en útlendingar að flytja þangað.
Bæði séu margir erlendir starfs-
menn komnir til að starfa tíma-
bundið við framkvæmdir vegna
álvers og virkjunar og svo flytji
íslendingar aftur heim erlendis
frá til að setjast þar að.
Eftir Örn Armarson
om@bladid.net
Að sögn ráðgjafa Omars Hassan
al-Bashir, forseta Súdan, munu
stjórnvöld leyfa friðargæsluliðum
Afríkubandalagsins að starfa áfram
í Darfúr-héraði eftir að umboð þess
til gæslunnar rennur út í lok þessa
mánaðar. Talið er að súdönsk stjórn-
völd tilkynni þetta í New York á
morgun.
Breska dagblaðið Guardian
hefur eftir Ghazi Salahuddin Ata-
bani, ráðgjafa forsetans, að sú-
dönsk stjórnvöld muni einnig leyfa
friðargæsluliðinu að fá aðstoð frá
Vesturlöndum. Að sögn Atabanis
hafa súdönsk stjórnvöld áhuga á
að skoða svokallaða „Afríkubanda-
lagið plús-lausn” á vandanum en
í henni felst að Afríkubandalagið
verði áfram við friðargæslu en fái
aðstoð frá Vesturlöndum í formi
þyrlna og eftirlitsbúnaðar.
Alþjóðasamfélagið hefur óttast
.náttúruhamfarir af mannavöldum”
og þjóðarmorð í Darfúr í kjölfar
þess að friðargæslulið Afríku-
bandalagsins hverfi á brott úr land-
inu. Öryggisráð Sameinuðu þjóð-
anna hefur samþykkt að senda 20
þúsund manna lið til héraðsins en
stjórnvöld neita að hleypa því inn
í landið þar sem þau telja það brot
á fullveldi þess. Ottast er að það sé
yfirskin og að stjórnvöld ætli að
nota tómarúmið sem skapast við
brotthvarf friðargæsluliða til þess
að ganga milli bols og höfuðs á
uppreisnarmönnum. Mikill þrýst-
ingur hefur verið á stjórnvöldum
að hleypa friðargæsluliðum SÞ til
landsins en þau þverneita. Talið
er að stjórnvöld séu reiðubúin
að ræða „Afríkubandalagið plús-
lausn” á málinu til þess að komast
hjá frekari þrýstingi.
Þrátt fyrir það telja margir áhrifa-
menn að eina raunhæfa lausnin
felist í friðargæsluliði Sameinuðu
þjóðanna. Fram til þessa hefur
friðargæslulið Afríkubandalags-
ins reynst vanmáttugt við að bæla
niður ofbeldi í héraðinu. I viðtali
við útvarpsstöðina Europe 1 á dög-
unum sagði Jacques Chirac, forseti
Frakklands, að Afríkubandalagið
gæti ekki tryggt frið í héraðinu.
Þar af leiðandi fælist eina lausn
málsins í að senda lið á vegum SÞ
til landsins. Fleiri leiðtogar taka í
sama streng. Hins vegar standa sú-
dönsk stjórnvöld fast á sínu.
Talið er að tíminn sé að renna út
og síðasti möguleikinn til þess að fá
súdönsk stjórnvöld til að skipta um
skoðun sé í þessari viku en leiðtogar
heimsins eru nú í New York-borg í
tengslum við fundarhöld vegna alls-
herjarþings Sameinuðu þjóðanna.
Öll spjót standa á kínverskum stjórn-
völdum en sökum mikilla beinna
fjárfestinga í landinu hafa þau tölu-
vert áhrifavald yfir stjórnvöldum í
Súdan. Fram til þessa hafa þau ekki
viljað beita sér í málinu og ólíklegt
er talið að afstaða Súdana muni
breytast án inngrips Kínverja.
Um tvær milljónir manna eru á
vergangi í héraðinu í kjölfar átaka
sem hófust 2003 þegar íbúar hér-
aðsins tóku upp vopn gegn stjórn-
völdum landsins sem eru leidd af
aröbum. Þrátt fyrir að skrifað hafi
verið undir friðarsamkomulag í maí
hefur ofbeldisverkum í héraðinu
fjölgað að undanförnu. Starfsmenn
erlendra hjálparsamtaka segja að
geta þeirra til að sinna mannúðar-
málum á svæðinu hafi aldrei verið
jafn takmörkuð og nú.
Súdanar í Miðgarði Á sunnudag var efnt til samkomna í
borgum víða um heim til þess að vekja athygli á hinu nöt-
urlega ástandi í Darfúr-héraði ÍSúdan. Myndin er tekin á
samkomu sem fór fram í Central Park ÍNew York.
'
á laugardögum
Auglýsingasiminn er
510 3744
Sjónvarpsútsending í Svíþjóð:
Sýndi fingurinn í beinni
Lars Ohly, formaður Vinstri var verið að ræða úrslit þingkosning- tækisins, þegar komið var inn á
flokksins í Svíþjóð, sýndi starfs- anna í Svíþjóð. „LarsOhlygerireins útkomu Vinstri flokksins í kosning-
manni ráðgjafafyrirtækisins United og allir kommúnistar og úthúðar unum. Ohly setti þá vatnsglasið sitt
Minds fingurinn í beinni útsend- öllum þeim sem hugsa öðruvísi á borðið og sýndi henni fingurinn.
inguíumræðuþættiásjónvarpsstöð- en þeir,“ sagði Marie Söderqvist Ohly hefur þegar beðist afsökunar á
inni TV4 á mánudaginn. I þættinum Tralau, starfsmaður ráðgjafafyrir- athæfinu.