blaðið - 20.09.2006, Page 17
blaðið
MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 2006 17
Yoko Ono:
Gestur kvik-
myndahátíðar
mbl.is Yoko Ono verður gestur
Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar
í Reykjavík þann 8. október og
kynnir myndina Bandaríkin
gegn John Lennon. Ono mun
einnig kynna stuttmyndina
Onochord sem verður sýnd á
undan sýningunni á Bandaríkj-
unum gegn John Lennon þann
sama dag.
„Bandaríkin gegn John
Lennon segir sanna sögu þess
hvernig ríkisstjórn Bandaríkj-
anna reyndi hvað hún gat til
þess að þagga niður í John
Lennon, sem var ekki ein-
ungis ástsæll tónlistarmaður
heldur einnig táknrænn
boðberi friðar,” að því er segir í
fréttatilkynningu.
Framboösmál:
Árni Páll vill
í forystusveit
Árni Páll Árnason lögfræð-
ingur hefur ákveðið að gefa kost
á sér í forystusveit Samfylking-
arinnar í Suðvesturkjördæmi í
komandi alþingiskosningum.
Prófkjör flokksins fer fram 4.
nóvember. Árni er sérfræðingur
í Evrópurétti og var meðal ann-
ars ráðgjafi Jóns Baldvins Hanni-
balssonar utanríkisráðherra
í Evrópumálum og starfaði í
utanríkisþjónustunni 1994-1998.
Árni er fertugur og uppalinn í
Kópavogi.
Forseti íslands:
Columbia og
Orkuveitan
Forseti íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, átti í gær fund með
dr. Jeffrey Sachs, aðalráðgjafa
Kofis Annans í þróunarmálum.
Forsetinn og Sachs ræddu
um baráttu og aðgerðir gegn
fátækt í veröldinni og áhuga
Sameinuðu þjóðanna á hugsan-
legri framleiðslu og dreifingu
íslenskra aðila á alnæmislyfjum
til Afríku.
Sachs, sem er einnig forstöðu-
maður Earth Institute við Col-
umbia-háskólann í New York, og
forseti Islands höfðu forgöngu
um að tengja saman Orkuveitu
Reykjavíkur, vísindamenn við
Háskóla Islands og Columbia-há-
skólann í sameiginlegu tilrauna-
verkefni um bindingu koltvíox-
íðs í jörðu og á fundinum var
framkvæmd verkefnisins rædd.
Einnig var á fundinum rætt um
nýtingu jarðhita í austanverðri
Afríku og hvernig samvinnu
íslenskra fyrirtækja og stofnana
við verkefnið gæti verið háttað.
Umferöarstofa:
Sektir hækki og lengri svipting
Eftir Gunnar Reyni Valþórsson
gunnar@bladid.net
„Okkur hugnast hugmyndin um
tekjutengdar hraðasektir mjög vel,“
segir Einar Magnús Magnússon,
upplýsingafulltrúi Umferðarstofu.
„Þetta hefur verið reynt í Danmörku
og Finnlandi með góðum árangri."
Það segir sig sjálft að sögn Einars að
sektir verði að útfæra á þann hátt að
þær snerti alla jafnmikið .
„Maður með háar tekjur finnur
ekki mikið fyrir 40 þúsund króna
sekt sem menn eru látnir sæta fyrir
að aka á 140 kílómetra hraða, en
tekjulægri maður finnur auðvitað
mun meira fyrir því.“
Einar segir að innan Umferðar-
stofu hafi verið rætt um þessa hug-
mynd, sérstaklega þegar um er að
ræða alvarleg brot. „Við vildum líka
sjá að þeir sem eru uppvísir að alvar-
legum brotum missi ökuréttindin
og þeim verði gert að sitja námskeið
og þreyta ökupróf aftur. Þetta er gert
víða á Norðurlöndum. Það er allt of
mikið umburðarlyndi í þeim efnum.“
Aðspurður hvort hann telji koma til
greina að svipta menn ökuleyfinu í
lengri tíma en nú tíðkast tekur hann
undir það. „Það er fráleitt að mínu
aævilöng svipting
sé aðeins til
fimm ára
Einar Magnús Magnús-
mati að menn sem sviptir hafa verið
ökuleyfinu ævilangt fái endurnýjun
á ökuleyfinu aftur og aftur, eins mér
skilst að dæmi séu um,“ segir Einar.
Sérfræðingur hjá Umferðarstofu,
staðfesti það í samtali við Blaðið að
dæmi væru um að menn hafi verið
sviptir ökuréttindum ævilangt ít-
rekað. „Ævilöng ökuleyfissvipting
er aðeins til fimm ára. Menn eru því
aldrei dæmdir alveg frá réttindum.1
Hann segir að ævilöng svipting
komi sjálfkrafa eftir tvö eða fleiri
brot. „Eftir að menn hafa tekið út
þetta fimm ára bann geta þeir sótt
um ökuréttindin aftur og þá gerist
það sjálfkrafa.“ Þetta hefur það í
för með sér að ökumenn geta jafn-
vel verið með nokkrar ævilangar s
viptingar á bakinu. „Ég man
eftir dæmi um mann sem hafði
verið sviptur ökuleyfinu ævilangt
sjö sinnum í það heila,“ segir
sérfræðingurinn.
tTAUA
Nýt it á íslandi l?€U*£firÁ,
tTAUA
tTAUA
Tomatmauk
só4>urrkuftum tómötu
tTAUA
tTAUA
■_■
ÍTAUA
m.a
Spennandi nýjungar!
HAGKAUP
Skew*£iUgA.ft 3 verfL*.