blaðið - 20.09.2006, Side 24
32 MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 2006
blaöiö
kolbrun@bladid.net
Venjuleg heilbrigö skyn-
semi er ekki sérlega
venjuleg.
Voltaire
Afmælisborn dagsms
UPTON SINCLAIR RITHÖFUNDUR, 1878
VICTOR SJÖSTRÖM LEIKARI OG
LEIKSTJÓRI, 1879
Konurí
klerkaveldi
Opin sýning og umræður um
athyglisverða heimildarmynd um
stöðu íranskra kvenna verður í
Öskju í kvöld, miðvikudagskvöld,
á vegum stjórnmálafræðiskorar
Háskóla Islands. í myndinni
„Divorce Iranian Style“ (1998) er
fylgst með konum í Iran, sem
sækjast eftir lögskilnaði við eig-
inmenn sína. Myndin veitir afar
góða innsýn (íranskt samfélag,
réttarfarið þar og stöðu kvenna.
Frá árinu 1979, þegar íslamska
byltingin átti sér stað í Iran, hafa
ákvæði sjaría-laganna um hjú-
skaparrétt verið í gildi í íran. I því
kerfi er konum sniðinn þröngur
stakkur, ef þær vilja losna úr
hjónabandi. Við gerð myndar-
innar komu kvikmyndagerðar-
mennirnir Ziba Meir-Hosseini og
Kim Longinotto meðal annars
kvikmyndavélum sínum fyrir í
réttarsal dómara í Teheran. Það
sem fyrir augu ber er átakanlegt
og sorglegt þó stundum komi
fyrir brosleg atvik.
Sýningin hefst kl. 20.00 og er
hluti af námskeiði dr. Magn-
úsar Þorkels Bernharðssonar,
Samþætting trúarbragða og
stjórnmála, í meistaranámi í
alþjóðasamskiptum við stjóm-
málafræðiskor H.í. í upphafi mun
Magnús Þorkell kynna myndina,
en að sýningu lokinni verður efnt
til almennra umræðna um efni
hennar. Myndin tekur um 80
mínútur í sýningu og gert er ráð
fyrir því að umræður standi yfir í
um hálftíma.
Af líkamslistum
og hugarvíli
Fxnnskar listakonur sýna x Hönnunarsafninu
Nýjar leiðir til tjáningar
ýning á verkum glerlis-
takonunnarCamilluMo-
berg og Karin Weidnás
leirlistakonu stendur yf-
ir í sal Hönnunarsafns
íslands við Garðatorg. Camilla og
Karin eru í fremstu röð finnskra
listhönnuða og starfa að list sinni í
hinu víðfræga listaumhverfi í Fisk-
ars. Þær eru þekktar og viðurkennd-
ar hvor á sínu sviði, ekki síst fyrir
stöðuga leit að nýjum leiðum til
tjáningar í glerlist og keramík.
Óendanleg tilbrigði
I sýningarskrá segir um Widnás:
„Karin Widnás er þekkt fyrir vanda-
saman „celadon“-glerung, dumb-
rauðan glerung og stílhreina nytja-
hluti. í nytjahlutunum bræðir hún
saman leirlistarhefð Austurlanda
og stílhreina nytjalist Kaj Francks.
Til að létta yfirbragðið eru tekin
myndefni og þættir úr náttúrunni í
kringum Fiskars, svo sem hesli, eik
og elri.
í leirflísum sínum og gljáflísum
hefur hún staðfastlega beitt sömu
hagsýnu og markvissu hönnunar-
og vinnureglum. Árangurinn get-
ur að lita í nokkrum verkum sem
líkjast hámyndum eða lágmyndum
eftir því hvernig þeim er raðað. Og
með litunum má fá næstum óend-
anleg tilbrigði, allt eftir þörfum
kaupanda eða rýmis.“
í sýningarskrá segir um verk
Moberg: „Camilla Moberg er þekkt
fyrir glæsileg glerverk. Hreinar
línur, tært gler og sterkir litir eru
einkenni þeirra og svo eru verkin
hugsuð út frá nytjagildi. Þetta eru
merkir gripir, gerðir í samvinnu
við færustu atvinnumenn í hand-
verkinu. Verkin eru í senn nytja-
hlutir og listmunir.
Við skreytinguna á glæsilegu
ljósastikunum og við steyptu, egg-
laga vasana með litríkum, gler-
bólum er beitt nýfundinni tækni.
Víðar skálar kveiktu hugmyndina
að vegg- og loftljósum, ljósgjafinn
kveikir glóð í litunum. Hangandi
Síríus er í senn lampi og skúlptúr
sem skapar stemningu. Camilla Mo-
berg notar líka rúbínrautt gler, sem
er tæknilega erfitt að fást við. Slíkt
gler verður að tvíhita en bregði út af
réttum hita skiptir það auðveldlega
um lit.“
Hönnun norrænna þjóða
Sýningin á verkum Camillu Mo-
berg og Karin Weidnás er hluti af
viðleitni Hönnunarsafnsins til að
kynna markverðustu hönnun nor-
rænna þjóða fyrir Islendingum.
Áður hafa verið haldnar í safninu
sýningar á sænsku gleri, húsgögn-
um, iðnhönnun og bókahönnun,
dönskum húsgögnum, norskum
húsgögnum og listgleri og aðskiljan-
legri finnskri hönnun.
Þar að auki hefur Hönnunarsafn-
ið kappkostað að setja upp sýningar
á ýmsum vaxtarbroddum íslenskr-
ar hönnunar í bráð og lengd, en tak-
mörkuð fjárráð þess og sú óvissa
sem ríkt hefur varðandi framtíð
þess hefur óneitanlega sett svip
sinn á starfsemina.
Nú eru hins vegar allar horfur á
því að sú óvissa sé úr sögunni og
samkomulag sé að verða til milli
menntamálaráðuneytis og Garða-
bæjar um endanlega staðsetningu
þess og hlutverk.
Heimildir um íslenska hönnun
Frá því Hönnunarsafnið var form-
lega sett á laggirnar í árslok 1998 hef-
ur það efnt til meira en 30 sýninga,
jafnt í Garðabæ sem annars staðar,
og á í fórum sínum um það bil 1000
hönnunargripi, norræna og alþjóð-
lega: húsgögn, iðnhönnun, gler,
keramík, textíl og fleira. Auk þess
hefur það haldið til haga ýmsum
heimildum um íslenska hönnun og
verið tengiliður við hönnunarstofn-
anir og hönnunarsýningar í öðrum
löndum.
Aðalsteinn Ingólfsson listfræð-
ingur hefur verið forstöðumaður
Hönnunarsafnsins frá upphafi, en
síðastliðin tvö ár hefur Stefán Snæ-
björnsson innanhússarkitekt einn-
ig verið starfsmaður þess.
Sýning þeirra Camillu Moberg
og Karin Widnás í sal Hönnunar-
safnsins við Garðatorg stendur til
15. október.
Hjá Máli og menningu er komin út
í kilju Yosoy - Af líkamslistum og
hugarvíli í hryllingsleikhúsinu við
Álafoss eftir Guðrúnu Evu Mínervu-
dóttur.
Á alþjóðlegri ráðstefnu um sárs-
auka hittir Madame Louise de
Roubaix doktor Ólaf Benedikts-
son. Hún hrífst af framgöngu hans
og sér að hann er kjörinn til að
reka vafasöm erindi hennar á (s-
landi. í gamalli ullarverksmiðju við
Álafoss hefur óvenjulegt fjölleika-
hús búið um sig. Miklar sögur fara
af þeirri óhugnanlegu starfsemi
sem þar fer fram og sum atriðin
hljóma líkt og kraftaverk. Leyndar-
hula hvílir þar yfir öllu og áður en
Ólafur veit af er hann sjálfur orðinn
hluti af sýningunni.
Guðrún Eva Mínervudóttir hefur
vakið mikla athygli fyrir verk sín
á undanförnum árum. Hér er á
ferðinni metnaðarfyllsta skáldverk
hennartil þessa.
Fæðing
Sophiu Loren
menningarmolinn
Á þessum degi árið 1934 fæddist
Sophia Loren. Hún var fimmtán ára
þegar hún tók þátt í fegurðarsam-
keppni og var uppgötvuð af Carlo
Ponti sem var rúmlega tveimur ára-
tugum eldri en hún. Ponti var kvænt-
ur en þau Sophia urðu elskendur.
Þau gengu í hjónaband árið 1957,
þremur dögum fyrir tuttugasta og
þriðja afmælisdag hennar. Ógilda
varð það hjónaband þar sem Ponti
hafði ekki fengið löglegan skilnað
frá fyrri eiginkonu sinni ogþau gift-
ust því að nýju árið 1966. Þau eignuð-
ust tvo syni.
Sophia hlaut Óskarsverðlaun árið
1960 fyrir leik sinni í Tveimur kon-
um. Hún er dáð víða um heim fyrir
fegurð sína og geðþekkan persónu-
leika. Erkibiskupinn í Genúa sagði
eitt sinn að þótt Vatíkanið væri
mótfallið klónun manna myndi það
hugsanlega gera undantekningu ef
Sophia Loren ætti í hlut.