blaðið - 20.09.2006, Side 28
3 6 MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 2006
blaöiö
heimili
heimili@bladid.net
Fullkomin haustkvöld
Það er huggulegt að iifga upp á tilveruna með kertum, einmitt þegar
farið er að dimma. Kertin fylla húsið af yl, birtu og rómantik sem er
fullkomin blanda á haustkvöldum.
Rigning heima við
Það er engu öðru líkt að fara í
rigningarsturtu heima við enda
hressandi og náttúrlegt.
Alvöru rigning
í baðherberginu
Undanfarin misseri hafa stórir
sturtuhausar verið mjög vinsæl-
ir og þeir prýða oft nýbyggingar.
Segja má að sturtan hafi öðlast
nýja merkingu og jafnvel nýjan
tilgang eftir að stórir sturtuhaus-
ar urðu vinsælir. Sturtan hættir
að vera sturta en verður nokkurs
konar rigning. Á mörgum þeirra
er hægt að velja um rigningu,
allt frá léttum úða yfir í úrhelli.
Sú reynsla að fara í sturtu snýst
því um meira en einungis að þvo
sér, heldur frekar um að hverfa
aftur til náttúrunnar og hreinsa
huga, líkama og sál. Fyrirtækið
Hansgrohe hannaði upphaflegu
rigningarsturtuna en auknar vin-
sældir hennar hafa gert það að
verkum að aðrir framleiðendur
hafa þróað svipaðar hugmyndir.
Ómissandi efni
í þrifum
Á stundum getur verið erfitt
að þrífa og sérstaklega eru sum-
ir hlutar hússins erfiðir. En sem
betur fer eru nokkur efni til sem
eru ómissandi í þrifum og heim-
ilishaldi. Edik er eitt þeirra eins
og margir vita en færri vita hve
góður sítrónusafinn er. Sítrónu-
safi er fullkomið vopn gegn
drullu og til að mynda má nota
sítrónusafa til að fjarlægja ryð
og bletti af plasti. Eins er hægt
að ná karríblettum úr teppi með
því að þynna sítrónusafa. Venju-
lega bletti, eins og bjórbletti og
aðra, má reyna að þrífa með
sódavatni. Ef kranarnir í baðher-
berginu eða í eldhúsinu eru ljót-
ir er tilvalið að nudda þá með
hveiti. Eftir að búið er að þrífa
hveitið af má nudda þá með
mjúkum klút.
Lífsstílsþættir vinsælir í sjónvarpi
Þættir sem hafa áhrif á
sjálfsmynd einstaklinga
Skaðlegir fjölmiðlar
Lífsstílsþættir og annað slikt efni í fjölmiðlum getur haft áhrif á sjáifsmat einstaklinga og valdið því að þeirbera sig
saman við aðra.
I sjónvarpinu má oftar en ekki
sjá svokallaða lífsstílsþætti þar sem
heimili fólks eru skoðuð gaumgæfi-
lega. Svipað efni má oft sjá á síðum
dagblaða og tímarita og oftast eru
viðkomandi íbúðir einkar glæsileg-
ar og dýrar. Samkvæmt Margréti
Bárðardóttur, sérfræðingi í klínískri
sálfræði, getur slíkt efni haft áhrif
á sjálfsmynd einstaklinga þótt það
leiði ekki til alvarlegra geðrænna
vandamála. „Efni líkt og þetta er svo
yfirþyrmandi í fjölmiðlum, þetta er í
blöðunum og í sjónvarpinu. Þetta get-
ur orðið jafnvel enn meira yfirþyrm-
andi á fslandi en erlendis. í stórborg-
um erlendis þá hafa flestir einhverjar
leiðir til að leita sér að sínum líkum á
meðan ísland er einsleitt samfélag og
ákveðin viðmið verða svo ríkjandi.“
Bera sig saman við aðra
Margrét segir að það vandamál
skapist að fólk fái ákveðin skilaboð í
gegnum blöðin og þættina. „Skilaboð-
in eru að svona eigi maður að vera og
að það sé takmark að búa í svona um-
hverfi. í kjölfarið getur fólk farið að
hugsa á þá leið að það sé eitthvað að
því, það sé ekki nægilega sterkt, dug-
legt eða að það sé veikfynt. Fólk ber
sig saman við aðra og heldur að það
standi sig ekki nógu vel. Slíkt getur
haft áhrif á sjálfsmyndina," segir
Margrét og bætir við að rannsóknir
frá Bretlandi sýni að þunglyndi og
kvíði, sem hefur líka áhrif á sjálfs-
myndina, er að aukast í þeim löndum
þar sem bilið á milli ríkra og fátækra
eykst. „Það er mjög athyglisvert og af
því eru dregnar þær ályktanir að fólk
sé að líta í eigin barm og bera sig sam-
an við aðra. Það veltir fyrir sér hverjir
veikleikar þess eru og af hverju það
nái ekki eins langt og aðrir.“
Viðmiðiðergallað
Margrét segir að það sem henni
finnist alvarlegast sé gildismatið sem
er verið að miðla til allra. „Viðmiðið
er að ánægjan og lífsgleðin komi frá
ytri hlutum í stað þess að vera það
sem kemur innan frá og stjórna því
hvernig þú vilt lifa lífinu á þínum
forsendum. Það er engin spurning
að þetta getur verið mjög mótandi
fyrir óharðnað ungt fólk.“ Margrét
talar líka um að þennan veruleika
megi finna annars staðar en bara í
blöðum og sjónvarpi. „Það er nóg
að fara í göngutúr í Nauthólsvíkinni
en þar má sjá að það er hægt að rífa
heilu og hálfu húsin og byggja nýtt
því manni líkuðu ekki einhverjar
innréttingar. Ég hef starfað i geðheil-
brigðisgeiranum í 20 ár og kröfurnar
eru orðnar gríðarlega. Ég held það sé
mjög erfitt að vera ung manneskja f
dag og koma sér upp heimili og þurfa
að standa undir þessum efnislegum
kröfum auk þess að rækta sambúð
eða hjónaband og sinna öllu sem þarf
að sinna þar.“
Orsakar ekki þunglyndi eða kvíða
Hins vegar segir Margrét að
þótt sjálfsmyndin skerðist þá
geti þetta eitt og sér ekki þróast
út í alvarlegt geðrænt vandamál.
„Því sterkara sem fólk er í lífinu því
betur getur það mætt svona hlutum
og horft á það gagnrýnum augum.
Við erum náttúrlega líka mótuð af
okkar uppvexti og þvi gildismati
sem okkur hefur verið miðlað í barn-
æsku. En auk þess erum við mótuð
af þeim skilaboðum sem umhverf-
ið færir okkur um það hvernig við
eigum að vera. Við fáum mjög sterk
skilaboð um það hvers konar líf er
eftirsóknarvert en það eitt og sér
getur ekki orsakað þunglyndi eða
kvíða. Hins vegar getur það haft
áhrif á sjálfsmyndina og hún mótast
kannski of mikið í gegnum það hvað
þú ert efnislega séð en ekki hvað þú
hefur til brunns að bera sem mann-
eskja.“
svanhvit@bladid.net
Margrét Bárðardóttir:
,Skilaboðin eru aö svona eigi
maður að vera og að það sé
takmark að búa í svona um-
hverfi. I kjölfarið getur fólk far-
ið að hugsa á þá leið að það
sé eitthvað að því, það sé
ekki nægilega sterkt, duglegt
eða að það só veiklynt.“
Nútímaleg hönnun í eldhúsi
Það má með sanni segja að fram-
tíðin sé komin, að minnsta kosti ef
litið er til hönnunar á heimilum og
heimilistækjum. Litirnir eru silfrað-
ir, hvítir og svartir og mínimalism-
inn er ráðandi. Á heimasíðu Yanko
Design má sjá sérstaka hönnun sem
hæfir einstaklega vel á heimili nú-
tímans. Fyrst ber að nefna veggseríu
í eldhúsinu sem hentar vel í eldhús
mínimalista því hann vill vitanlega
ekki hafa óþarfa drasl í kringum sig.
Hönnunin miðar að því að blanda
saman upplýsingatækninni og eld-
húsáhöldum. Sjáanlegt drasl er í lág-
marki þegar öllum helstu áhöldum
er komið fyrir í seríu á veggnum.
Það er hönnuðurinn Terence Woon
sem á heiðurinn af þessari nýtísku-
legu veggseríu. Á síðunni má líka sjá
áhugaverða hönnun eftir Imogen
Lawson. Imogen hannaði nokkurs
konar matarborð en sjálf kýs hún
að kalla hönnunina miðstöð félags-
legra samskipta og veitinga. Miðstöð-
inni er ætlað að ýta undir og hvetja
mpr- -
FÁr>\ 9 AlOEVfM V ■ . "" Nú líka með ALOE VERA
NMseline / v\? IHff Vaseline Vaseline
*°CKE1 PtrnoituM t. Jllit
■■■■■■ A°CKn Æ k... ÆÆ varasalvi
Nútímalegt Hönnun sem blandar saman upplýsingatækni og eldhúsáhöldum.
til samskipta í gegnum undirbúning og borða hann en i kringum borðið
matar og eldamennsku. Á borðinu eru fjórar sessur.
sjálfu er því aðstaða til að elda mat