blaðið - 20.09.2006, Síða 34
SAMBÁLFABAKKA
£
NACH0 LIBRE kl. 4-6:10-8-1050
NACH0 LIBRE VIP kl. 5:10-8-10:20
STEP UP kl. 3:40550^-10:10
B0RN kl.6-8-10:10
MAURAHRELLIRINN kl. 4-6
ANT BULLY kl. 6:20
LADYIN THE WATER kl. 8:10-10:20
PIRATES 0F CARIBBEAN 2 kl. 8:20 hi 1?
0VERTHE HEDGE !a kl.4
BlLAR kl.4
9«r!á. 'ý
NACH0 LIBRRE kl. 5:45-8-10:15 Bi 1
STEP UP kl. 5:45-8-10:15 I' 1 !
UNITED 93 kl. 8-10:20
MAURAHRELLIRINN kl.6
f I Keflavík
UNITED 93 kl.10:10
LADY IN THE WATER kl. 10:10
ÞETTA ER EKKERT MÁL kl.8
Y0U, MEANDDUPREE kl.8
Akurevri
NACH0 LIBRE kl. 6-8-10
MAURAHRELURINN kl. 6
STEP UP kl. 8-10
B0RN II kl. 5:45-8-10:15
AN INCONVENIENT TRUTH kl.8
BJÚLESKVIDA kl. 8 -10:15
PIRATES 0FTHE CARIB... kl. 10:15
MAURAHRELLIRINN kl.6
The Proposition FORS. kl.8 B i 16
The Libertine kl. 5:45 Tb.í. 12 '1
Renaissonce kl.8 ~ B.i.12
Where the Truth Lies kl. 5:45 [6.1.16 |
Down the Volley kl. 10:15 ÍBM6 T
A Cock ond Bull Story. kl. 5:45 [au6j 1
Oskrondi Api Bollett i leynum kl. 10:15 B1 1? J
smúnn^ b/ú
CLERKS2
kl. 5.45,8 og 10.15 B.l. 12ÁRA
ÞETTA ER EKKERT MÁL
kl. 5.45,8 og 10.15
ÞETTA ER EKKERT MÁLILÚXUS
kl. 5.45,8 og 10.15
MYSUPER EX-GIRLFRIEND
kl. 5.50,8, og 10.10
UTTLEMAN
kl. 3.50,8 og 10 B.1.12ÁRA
GARFIELD 2 M. ENSKU TAU
kJ. 4
GRETTIR 2 M. ÍSUENSKU TAU
kl. 3.50 og 6
ÁSTRÍKUR OG VÍKINGARNIR
kl. 4 ÍSL£NSKT TAL
REcnBOBinn
ÞETTA ER EKKERT MÁL
kl. 8og 10.15
TAKK FYRIR AÐ REYKJA
kl. 8og 10.10B.L7ÁRA
KVIKMYNDAHÁTfÐ
FACTOTDM
kl. 6 og 10.10
ENRON
W. 8
THREE BURIALS
kl. 5.50
VOLVER
kl. 5.50 og 8 B.L 12 ARA
LEONARD COHEN: l*M YOUR MAN
kl.6og 10
SCOOP
kl. 6,8og 10
MY SUPER EX-GIRLFRIEND
kl. 6 og 8
YOU, MEAND DUPREE
kl.8og 10
GRETTIR 2
kl. 6 ÍSLENSKT TAL
SNAKES ON A PLANE
kl. 10 B.1.16 ÁRA
ÍÍlJií/.UtiiU
CLERKS2
kl 8 og 10
MY SUPER EX-GIRLFRIEND
kl.10
ÞETTA ER EKKERT MÁL
kl.8
YOU, MEANDDUPREE
kl.6
GRETTIR 2
kl. 6ISLENSKT TAL
42
MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 2006
blaöiA
Barnið fær riafn
Nýfæddi snáðinn þeirra Brltney Spears og
Kevins Federline hefur nú hlotið nafnið Sutton
Pierce Federline. Hefur barnið því sama fanga-
mark og eldri sonur þeirra skötuhjúa en hann
heitir Sean Preston Federline.
The Go! Team Munu spila
nýtt efni á Islandi.
Cruz og ávali
afturendinn Hin íðilfagra
Penelope Cruz fer með hlutverk
hinnar ávölu Raimundu í nýjustu
mynd Pedro Almadovars, Volver,
sem sýnd er þessa dagana á kvik-
myndahátíð í Reykjavík. Raimunda
þessi er ítölsk og íturvaxin og
griþið var til þess ráðs að láta hina
tággrönnu Cruz bera
sérstakan sitjanda
innan klæða sem
lét hana líta út
eins og stunda-
glas. Cruz lét
nýlega hafa eftir
sér að henni hefði
líkað þessar ávölu
línur ákaflega vel
og helst hefði hún
viljað fara með sitj-
andann mjúka heim
með sér á kvöldin.
Reynum að gera nýja hluti
Eftir Atla Fannar Bjarkason
atli@bladid.net
Hljómsveitin The Go! Team hefur
hægt og rólega unnið sig upp met-
orðastiga tónlistarheimsins undan-
farin ár. Sveitin hefur ekki náð telj-
anlegum vinsældum hér á landi en
hefur náð töluverðum vinsældum í
Evrópu, Bandaríkjunum og meira
að segja í Japan. Sveitin kemur fram
í Hafnarhúsinu á Iceland Airwaves-
hátíðinni í október. Blaðið ræddi við
Ian Parton, stofnanda sveitarinnar, á
dögunum og komst meðal annars að
því að honum finnst Arctic Monkeys
ekkert sérstakir.
fsland efst á lista
„Við höfum aldrei komið til Islands
en það var efst á óskalista okkar
yfir lönd sem okkur langaði til að
heimsækja," segir Parton, aðspurð-
ur hvort sveitin hafi stigið fæti á
eyjuna afskekktu. The Go! Team er
þekkt fyrir líflega tónleika þar sem
hljóðfæraskipti, hopp, hróp, köll og
alls kyns læti eru hluti af „sjóvinu".
Undirritaður sá sveitina troða upp á
Hróarskelduhátíðinni í fyrra og varð
vitni að látunum sem einkenndust af
mikilli spilagleði. „Að spila á tónleik-
um er eina líkamlega þjálfunin sem
ég fæ,“ segir Parton og hlær. „Það
er svo gaman að fá tækifæri til að
stökkva um eins og asni án þess að
þurfa að skammast sín. Sama þótt að-
eins 20 manns mæti á tónleikana þá
gefum við ekkert eftir.“
Spila fyrir 50 til 30.000 manns
Að spila fyrir 20 manns eða jafnvel
færri er eitthvað sem flestar hljóm-
sveitir þurfa að ganga í gegnum
einhvern tíma á starfstíma slnum.
Blaðamanni lék forvitni á að vita
hvort The Go! Team lendi enn þann
dag í dag í þessari pínlegu lífsreynslu.
,Það kemur fyrir,“ svarar Parton án
þess að skammast sín. „Við vorum til
dæmis í Bandaríkjunum um daginn
þar sem við spiluðum annars vegar
fyrir 30.000 manns á Lollapalooza-
hátíðinni og hins vegar i Indianapol-
is fyrir aðeins 50 manns. Þannig er
þessi bransi.“
Talið berst að hinum virtu Merc-
ury-verðlaunum en fyrsta plata The
Go! Team, Thunder, Lighting, Strike
var tilnefnd til verðlaunanna i fyrra.
Ian Parton segir sveitina afar stolta
af tilnefningunni. „Það er frábært
að geta tekið upp plötu í svefnher-
berginu sínu sem síðan er tilnefnd til
virtra verðlauna," segir Parton. „Á há-
tíðinni sjálfri leið okkur reyndar frek-
ar undarlega, umkringd mönnum í
smókingum, drekkandi kampavín."
Aðspurður hvað honum finnist um
sigursveit Mercury-verðlaunanna í
ár, Arctic Monkeys, segir Parton að
það sé allt of mikið búið að gera úr
þeim. „Mér finnst þeir allt í lagi, en
alls ekkert sérstakir. Þeir eru ekki
að gera neitt nýtt,“ segir hann. „Þeir
eru bara venjulegir drengir að spila
venjulega tónlist.“
Stærri hljómurá nýju plötunni
Parton segir nýja éfnið með The
Go! Team töluvert beinskeyttara en
hið gamla, en sveitin vinnur þessa
dagana að sinni annarri breiðskífu.
„Hljómurinn verður mun stærri. Ekki
eins „lo-fi“ og áður,“ segir Parton.
„Við erum að reyna að gera eitthvað
nýtt. Ég elska til dæmis að blanda
saman trompet og gítar, það er nokk-
uð ótroðin slóð í tónlistarsköpun."
Parton segir nýju plötuna vonandi
verða tilbúna snemma á næsta ári.
Gangi það eftir gæti hún komið út
næsta sumar að hans sögn.
Ian Parton lofar íslendingum og
gestum þeirra á Iceland Airwaves
mögnuðum tónleikum. „Við spilum
allavega fjögur eða fimm ný lög á ís-
landi," segir Parton að lokum. „Svo
leikum við auðvitað lög af Thunder,
Lighting, Strike í bland við eldri og
óþekktari b-hliðarlög. Þetta verður
frábært."
Á að slá Idolinu við í vinsældum
Undirbúningur að útsendingu
X-Faktor er í fullum gangi en
þátturinn á að leysa af hólmi hinn
vinsæla þátt Idol-Stjörnuleit. X-Fak-
tor er einnig runninn undan rifjum
hins aðsópsmikla Simon Cowell líkt
og Idol-Stjörnuleit. Tvær þáttaraðir
hafa verið framleiddar í Bretlandi
og slógu þær öll áhorfsmet þar.
Drengjakór frá ísafirði
í X-Faktor er leitað logandi ljósi
að nýjum poppstjörnum líkt og
í Stjörnuleitinni en engin efri ald-
ursmörk eru fyrir þátttöku. Einnig
þykir það skemmtilegt við þættina
að hópatriði eru vel þegin og þeim
sem spreyta sig er velkomið að spila
á hljóðfæri eða koma eigin lagasmíð-
um á framfæri. Allir sem taka þátt
verða þó að taka lagið.
Sveinbjörg Pétursdóttir starfar í
markaðsdeild Stöðvar 2. „Skráning-
in gengur prýðilega. Við erum sér-
staklega spennt fyrir hópaskráning-
um sem hafa farið mjög vel af stað.
Við höfum til dæmis fengið einn 15
manna drengjakór frá ísafirði sem
Kynnirinn Halla Villhjálmsdóttir
kemur í stað Simma og Jóa sem
kynntu Idolið.
við erum mjög spennt að heyra í,“
segir Sveinbjörg. „Ég held jafnvel
að X-Faktor muni njóta meiri vin-
sælda meðal íslenskra áhorfenda
en Idol-stjörnuleit því þættirnir eru
mun fjölbreyttari að forminu til. “
Sveinbjörg segir einn sérstaklega
skemmtilegan þráð í X-Faktor en
það sé keppni á milli dómaranna.
„Dómararnir þrír, Páll Óskar, Ellý
og Einar Bárðarson, taka hvert um
sig að sér nokkra skjólstæðinga sem
þau þjálfa og etja svo saman til þess
að fá úr því skorið hver standi sig
best. Þettagefurþáttunum skemmti-
Iega vídd sem ég held að muni falla
fólki vel í geð.“
Ávísun á frægð og frama?
Sveinbjörg segir það sérstaklega
skemmtilegt að efri aldursmörkin
séu engin enda hafi þau mörk ver-
ið mörgum sem vildu taka þátt í
Idol þyrnir í augum. Krakkar þurfa
að hafa náð 18 ára aldri til að taka
þátt en séu þau á aldrinum 16-18
mega þau skrá sig með skriflegu
samþykki forráðamanna. „Þetta
er kjörið tækifæri fyrir alla þá sem
telja sig hafa eitthvað fram að færa
og gæti orðið dýrmætur stökkpallur
tiT frekari metorða. Einar Bárðarson
er alltaf með augun opin fyrir hæfi-
leikaríku fólki til að fylgja í nýtt
Bretlandsævintýri og aldrei að vita
nema hann leiti næst fanga í X-Fak-
tor,“ segir Sveinbjörg og bætir við
að ekki hafi verið tekið endanleg
ákvörðun um verðlaunin til handa
sigurvegaranum en þau verði mjög
vegleg. Aheyrnarpróf fara fram dag-
ana 3. og 14. október.
Mira Sorvina berst
fyrir Darfúr Á dögunum hóf
leikkonan a Sorvi. » upp raust
sína og vakti athygli umheimsins á
ástandinu í Darfúr. Þar með fetaði
hún í fótspor hins grásprengda
George Clooney sem gert hefur
sitt besta til þess að beina augum
ráðamanna að hinu hörmulega
borgarastríði sem þar hefur geisað.
Mira Sorvion var í aðalhlutverki í
fjölmennum mótmælum
í Central Park um síð-
ustu helgi og líkti hún
hörmungunum við
helförina og þjóðar-
morðin í Rúanda.
„Það er skylda
okkar að
stöðva morðin
og koma til
hjálpar," sagði
Sorvina og
hvatti hún alla
til þess að leggja
málefninu lið.
Kidman beðin
afsokunar Skoskablaðið
Daily Record hefur nú beðið hina
áströlsku HljSole Kídman afsök-
unar á fölskum ummælum sem
hermd voru upp á hana á dögun-
um. Sagt var að Kidman hefði haft
uppi háðuglegar athugasemdir
um góðgerðastarf Angelinu
Jolie sem að undanförnu
hefur starfað heilmikið
fyrir Sameinuðu þjóð-
irnar. „Joli er ekkert
merkilegri en hver
önnur hjúkrunarkona
á spítala, munurinn er
bara sá að öll heims-
byggðin veitir því
athygli ef hún lyftir
litla fingri,“ var haft
eftir Kidman sem
kannaðist ekkert
við að hafa látið
þessi orð falla og
krafði blaðið um
afsökunarbeiðni.
Gibsgn eianast
tengdason .1 Gihson er
að sögn erlendra slúðurtímarita
lukkulegur með nýja tengdason-
inn en dóttir hans, Hannah, gekk
nýlega í hjónaband með gítarleik-
aranum Kenny Wayne Shepherd
sem getið hefur sér gott orð fyrir
blús- og rokktónlist sína.
Hannah er fædd
1980 og er hún
elsta barn Mels
Gibson og konu
hans Robyn
sem ekki hafa
slegið slöku við
í barneignunum
en hjörðin telur
alls sjö stykki.