blaðið - 26.09.2006, Side 4

blaðið - 26.09.2006, Side 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 2006 blaöíö INNLENT STJÓRNMÁL Birna vill á þing Birna Lárusdóttir, forseti bæjarstjórnar á Isafirði, gefur kost á sér í eitt af efstu sætum á framboðslista sjálfstæðismanna í Norðvest- urkjördæmi fyrir næstu kosningar. Eftir á að ákveða hvernig raðað verður á lista. SAMGÖNGUR Stærri Suðurlandsveg Fjögur sveitarfélög, tvö fyrirtæki og Samtök sunnlenskra sveitarfélaga stofnuðu Suður- landsveg í gær og lögðu fram tíu milljónir í hlutafé. Markmiðið er að flýta lagningu fjögurra akreina Suðurlandsvegar. LÖGREGLAN Beraði afturendann Lögreglan þurfti að hafa afskipti af þrítugum manni sem beraði á sér afturendann við fjölfarna umferðargötu í Reykjavík. Stutt er síðan lögreglan hafði afskipti af manni sem gekk um nakinn og hafði enga hugmynd um, hvernig á því stæði. íslendingar: Vinna mikið og skila iitlu Þrátt fyrir að Islendingar vinni lengur en margar aðrar þjóðir er verðmætasköpun á hverja unna vinnustund tiltölu- lega lítil hér í samanburði við önnur lönd samkvæmt frétt Greiningar Glitnis banka. Á öðrum ársfjórðungi jókst framleiðni vinnuafls hér á landi um o,3% samanborið við 6,i% í fyrra. Á sama tíma og fram- leiðni vinnuafls dregst saman hafa Iaun hækkað, meðal ann- ars vegna mikillar eftirspurnar á vinnumarkaði. Þetta samspil ýtir undir verðbólgu og dregur úr því að launahækkanir skili sér í vaxandi kaupmætti. Falleg - sterk - náttúruleg Suöurlandsbraut 10 ^ Sr Slmi 533 5800 V'STROND www.simnet.is/strond f^5» eht. Lögreglan að störfum Ófaglærdir lögreglumenn þurfa alltaf ad vera i fylgd með menntuðum Myntl/Eggert Lögreglan í Reykjavík: Margar ómenntaðar löggur ■ Fjölgun stöðugilda hefur skapað vanda ■ Ekki fjárveitingar til að útskrifa fleiri Eftir Gunnar Reyni Valþórsson gunnar@bladid.net Aldrei hafa hlutfallslega jafn margir ómenntaðir lögreglumenn verið við störf í Reykjavík og núna. Yfir- lögregluþjónn segir þetta fyrst og fremst stafa af því hve mikið stöðu- gildum hefur verið fjölgað hjá lög- reglunni og að Lögregluskóli ríkis- ins nái ekki að útskrifa í samræmi við það. Skólastjóri Lögregluskólans segir aðþarábæhafi menn ekki haft upplýsingar um þann fjölda sem ráð- inn hefur verið upp á síðkastið. Hefur ekki verið svona í mörg ár „Við erum með um 20 ófaglærða menn hjá lögreglunni í Reykjavík eins og staðan er í dag,“ segir Geir jón Þórisson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni í Reykjavík. Þetta segir hann vera nýmæli. „Við höfum ekki verið með ófaglærða menn í lög- gæslu síðustu árin en þetta helgast af því að mikil fjölgun hefur verið í stöðugildum hjá embættinu en skól- inn hefur ekki náð að uppfylla þær þarfir." Geir Jón vill ekki segja að þetta komi niður á störfum lögreglunnar. „Sá ófaglærði starfar með reynslu- meiri manni og er honum til hjálpar en er aldrei einn við störf. Þetta ástand er nú víðast hvar hjá embættum landsins/ Geir Jón segir að Lög- regluskóli ríkisins út- skrifi lögreglumenn í desember, en að sá fjöldi muni ekki nægja til að bregðast við vandanum. „Það þyrfti að fjölga nemendum við Lögregluskólann. Það vantar ekki að menn séu að sækja um en þetta ræðst af fjárheimildum.“ Geir Jón segir að næg atvinna í þjóðfélag- inu spili líka inn í þetta. „Við erum að missa menn frá okkur. { svona árferði vilja menn prófa ýmislegt annað." Að mati Geirs Jóns er helsta ástæðan fyrir þessu ástandi sem nú ríkir þó fjölgun á stöðugildum. Þrjátíu hæfum umsækj- endum vísað frá Arnar Guðmundsson, skóla- stjóri Lögregluskóla ríkisins, segir að það sé ríkislögreglustjóra að ákveða fjölda nem- enda. „Að jafnaðitökum við 36 nemendur inn í skólann í hvert skipti. Það er verið að vinna úr umsóknum fyrir næsta ár og þá gerum við einnig ráð fyrir að taka inn 36“ Arnar segir að væru heimildir fyrir hendi væri unnt að taka við fleirum. „Það sóttu um annað hundrað um síðast og 65 töldust hæfir til þess að mæta fyrir valnefnd sem velur nemendur inn.“ Því má segja að tæplega helm- ingur þeirra sem standast inntöku- ferlið komist inn í skólann. Menn vilja i skólann en komast ekki inn t Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn hjá í lögreglunni i Reykjavik „Fjárheimildir til inntöku nýnema hafa ekkert verið auknar," segir Arnar. Hann segir að þegar ákveðið sé hve margir fái inngöngu sé byggt á þeim upplýsingum sem fyrir liggja þegar ákvörðunin um fjölda nýnema er tekin. „Við auglýsum á vorin fyrir komandi ár. Það var að vísu vitað að þetta myndi ekki alveg duga í þetta skiptið, en við höfðum ekki upplýsingar um allan þann fjölda sem lögreglan i Reykjavík hefur verið að ráða á síðustu vikum,“ segir Arnar Guðmundsson. „Þetta er fyrst og fremst ákvörðun æðstu yfirvalda um hversu mörgum er hleypt inn, með tilliti til þess hvað það kostar. Sló mann á skemmtistað: Tvö ár fyrir að bana manni Loftur Jens Magnússon var dæmdur í tveggja ára óskilorðs- bundið fangelsi i Héraðsdómi Reykjavíkur í gær fyrir að slá mann á sextugsaldri með þeim afleið- ingum að sá lést. Atvikið átti sér stað á skemmtistaðnum Ásláki í Mosfellsbæ í desember árið 2004. Loftur hafði verið að skemmta sér á Ásláki ásamt vinum en allir voru þeir í grimubúningum og var Loftur í jólasveinabúningi. I dómsorði segir að Loftur hafi verið nokkuð æstur fyrr um kvöldið og lenti meðal annars í átökum við kunningja sinn sem var klæddur sem gulur kjúklingur. Eftir stympingarnar fór hann á barinn og ræddi þar málin við mann í kanínubúningi og var heitt í hamsi samkvæmt dómsorði. Síðar lét hann öllum illum látum og sparkaði í stól við barinn. Síðar um nóttina ætlar hann út af staðnum en þá var Ragnar Björnsson ásamt konu sinni í innganginum en þar hafði glas brotnað. Eiginkona nzo lb m Héraðsdómur Reykjavíkur Loftur Jens Magnússon hlaut tveggja ára fangelsisdóm fyrir að verða manni að bana. Ragnars var að sópa upp glerbrotin og varnaði Ragnar Lofti útgöngu vegna þessa. Þá sló Loftur manninn í hálsinn með þeim afleiðingum að hann féll aftur fyrir sig og skall á höf- uðið í gólfið. Lögreglan var kvödd á staðinn og Loftur var handtekinn. Ragnar var fluttur á sjúkrahús þar sem hann lést samdægurs. 1 dómnum kemur fram að Loftur eigi sér engar málsbætur og því er hann dæmdur í tveggja ára óskil- orðsbundið fangelsi en níu daga gæsluvarðhald dregst þar frá. Á síðasta ári var kveðinn upp dómur yfir Scott Ramsay. Hann var dæmdur í átján mánaða fangelsi fyrir að slá mann í Keflavík með þeim afleiðingum að hann lést. Dómur hans var skilorðsbundinn til fimmtán mánaða og því hlaut hann þriggja mánaða fangelsisvist. Athygli vekur að þegar dómur er kveðinn upp þá er tekið tillit til þess sem í dómsorði segir, „hve óvægna umfjöllun ákærði hefur sannan- lega hlotið fyrir atlöguna hjá ein- stökum fjölmiðlum, þrátt fyrir að sök hans teljist ósönnuð til þessa dags,“ en dóminn kvað upp Jónas Jóhannsson. Ekki er vitað hvort Loftur hyggist áfrýja dómnum.

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.