blaðið - 26.09.2006, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 2006
blaAiö
INNLENT
ÁREKSTUR
Valtari keyrði á bíl
Valtari keyrði á bíl á laugardaginn þegar
gatnaframkvæmdir stóðu yfir í Reykjavík.
Dekk á bílnum sprakk og bretti brotnaði.
í Ijós kom að ökumaður valtarans hafði
ekki tilskilin leyfi til þess að aka honum.
ÞJÓFNAÐUR
Óheppinn bifreiðareigandi
Einstaklega óheppinn bifreiðareigandi kom
að bílnum sínum á laugardaginn fyrir utan
verslunarmiðstöð en þá var búið að brjóta
rúðu í honum og stela síma mannsins.
Einnig hafði einhver keyrt á bílinn hans.
FÍKNIEFNI
Dóp í leggöngum
Kona á fertugsaldri var handtekin er hún kom í heimsókn á Litla-
Hraun síðastliðinn laugardag. Ástæðan var grunur um að hún ætlaði
að smygla fíkniefnum inn í fangelsið. Konan var að auki grunuð um
að hafa ekið bifreið undir áhrifum fíkniefna og lyfja. Fíkniefnin fund-
ust í leggöngum konunnar en þau voru örvandi töflur og amfetamín.
Fræðimenn við Háskóla íslands verða fyrir utanaðkomandi þrýstingi:
Stjórnmálamenn eru
haldnir ofsóknaræði
* Fræðimenn setja sig í hættu með umfjöllun sinni ■ Stjórnmálamenn þurfa
að fara varlega með völd sín ■ Rannsóknir mestmegnis með eðlilegum hætti
Landsbankinn:
Kaupir banka
á Guernsey
Opinberir eftirlitsaðilar á
íslandi og Bretlandi samþykktu
í gær kaup Landsbankans á
breska bankanum Cheshire
Guernsey Ltd. en gengið var frá
samningum vegna kaupanna
í síðastliðnum ágústmánuði.
Þetta kemur fram í tilkynningu
frá bankanum.
Kaupin voru fjármögnuð með
eigin fé Landsbankans en kaup-
verð fæst ekki uppgefið.
Búðahnupl:
Stolið fyrir
þrjá milljarða
Verslunareigendur á íslandi
þurfa að hækka vöruverð í versl-
unum sínum til að mæta kostn-
aði sem hlýst af þjófnuðum í
verslunum. Að mati Samtaka
verslunar og þjónustu tapa versl-
anir þremur milljörðum á ári
vegna þjófnaðar starfsmanna og
viðskiptavina.
Þetta kemur fram í frétt á
vefsíðu samtakanna. Þar kemur
einnig fram að þjófnaðir í
verslunum hafi færst í vöxt á
síðustu árum og að þeir séu
orðnir skipulagðari. Þjófnaður
barna og unglinga er sérstakt
vandamál að mati samtakanna
en að jafnaði eru um 4% barna
á aldrinum 15 til 19 ára kærð til
lögreglu fyrir þjófnað.
Eftir Trausta Hafsteinsson
trausti@þladid.net
„Þegar einhver valdamikill aðili
fer að kvarta undan þér þá verða
flestir skelkaðir. Stjórnmálamenn
þurfa að fara varlega með völd
sín,” segir Gunnar Helgi Kristins-
son, prófessor við Háskóla Islands,
aðspurður um afskipti stjórnmála-
manna af fræðistörfum fræði-
manna við Háskóla íslands. í við-
tali við Blaðið um helgina greindi
Baldur Þórhallsson, prófessor við
Háskóla íslands, frá óbeinum hót-
unum stjórnmálamanna í formi
tölvupósta, einkabréfa, símtala og
tiltals í kokteilboðum.
„Ég fór eitt sinn í Kastljóssþátt þar
sem Evrópumál bar á góma. Eftir
þáttinn fékk ég einkabréf frá hátt-
settum ráðamanni í þjóðfélaginu.
Þetta bréf var með ólíkindum,” segir
Baldur. „Þar var spurt hvernig ég
vogaði mér að fjalla um ísland og
Evrópusambandið, ég væri kominn
út í helmyrkur öfga og innihalds-
lausra upphrópana og væri fullur af
ofstæki.”
Viðkvæmir stjórnmálamenn
Stefán Ólafsson, prófessor við
Háskóla íslands, vakti athygli á
því fyrir nokkru að áhrifamenn úr
Sjálfstæðisflokknum hafi reynt að
hafa áhrif á fræðistörf sín og segir
töluverða umræðu innan stofnunar-
innar um þessi mál.
„Stjórnmálamenn eiga ekki að vera
viðkvæmir fyrir umfjöllun. Ef um-
fjöllun fræðimannsins hefur augljós
svör þá eiga stjórnmálamenn ekki
að vera í vandræðum með að koma
með málefnaleg rök,” segir Stefán.
„Fræðimenn verða að geta tjáð sig
með frjálsum hætti. Þeir setja sjálfa
sig í faglega hættu með því að vera
með röklausan málflutning.”
Óveruleg áhrif
Gunnar Helgi telur utanaðkom-
andi afskipti ekki hafa mikil áhrif á
fræðistörf innan stofnunarinnar en
vissulega þurfi stjórnmálamenn að
gæta sín.
„Rannsóknarmönnum er misvel
tekið og stjórnmálamenn eru sumir
haldnir ofsóknaræði varðandi
ákveðin málefni. Ég held að fáir upp-
lifi þessi afskipti sem hótanir,” segir
Gunnar Helgi. „Mestan partinn tel
ég rannsóknir hér á landi frjálsar og
fræðimenn eru að rannsaka það sem
þeim þykir mikilvægt og með þeim
hætti sem þeim þykir eðlilegt.”
Aðspurður tekur Stefán undir og
segir flesta ekki láta utanaðkom-
andi afskipti hafa áhrif á störf sin.
Hugsanlegt sé þó að fræðimenn hafi
hagsmuna að gæta í einhverjum til-
fellum og slíkt geti leitt til þess að
þ'eir forðist ákveðin viðfangsefni.
„Oft er reynt að hafa áhrif á fræði-
menn með ýmsum hætti og slíkt er
líka gert við fjölmiðlamenn. Sem
betur fer láta ekki margir kúga sig,”
segir Stefán. „Einhverjir hafa hins
vegar hagsmuna að gæta og hægt að
sjá merki þess að fræðimenn forðist
ákveðin viðfangsefni.”