blaðið - 26.09.2006, Blaðsíða 18

blaðið - 26.09.2006, Blaðsíða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 2006 blaöiA blaöið Útgáfufélag: Árog dagurehf. Stjórnarformaður: SigurðurG.Guðjónsson Ritstjóri: Sigurjón M. Egilsson Fréttastjórar: Brynjólfur Þór Guðmundsson og Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir Ritstjórnarfulltrúi: Janus Sigurjónsson Ráðherrann ritskoðar Forsætisráðherra þjóðarinnar, Geir H. Haarde, hefur tekið upp nýja og áður óþekkta siði í samskiptum við fjölmiðla. Þjóðsögur segja reyndar að ámóta viðhorf hafi verið meðal ráðamanna um og eftir miðja síðustu öld. Forsætisráðherrann núverandi veitir helst ekki viðtöl nema vita nákvæm- lega um hvað verður spurt og hvernig. Hann gengst jafnvel undir að hafa við- tal við fjölmiðlamenn með þeim skilyrðum að einungis verði spurt um það sem hann hefur samþykkt og ekki um annað. Undir þetta gangast íslenskir fjölmiðlamenn, hver af öðrum. Því miður. Reyndar hafa samskipti fjölmiðla og stjórnmálamanna tekið miklum breytingum á löngum tíma ríkisstjórna Sjálfstæðisflokks og Framsóknar- flokks. Áður var aðgengi að æðstu embættismönnum allt annað og betra. Þegar Steingrímur Hermannsson var forsætisráðherra var Steingrímur skráður í símaskrá, rétt einsog flestir þeir sem höfðu síma. Ef ég man rétt var heimasími Steingríms á þeim tíma 41809. Ráðamenn síðustu ára hafa al- mennt fært sig fjær fjölmiðlum, þó hafa margir þeirra gefið kost á viðtölum, ýmist á vettvangi, á blaðamannafundum og einkum að loknum ríkisstjórn- arfundum, þó þeir séu ekki viljugir til að virða óskir fjölmiðlamanna og svari helst ekki skilaboðum. Geir H. Haarde hefur tekið upp nýja siði. Almennir fjölmiðlar ná und- antekningarlítið ekki sambandi við ráðherrann. Síðast þegar Blaðið freist- aði þess að ná tali af forsætisráðherra var blaðamaður í stjórnarráðinu að loknum ríkisstjórnarfundi og óskaði eftir samtali við ráðherrann. Úr varð að aðstoðarkona ráðherrans spurði við hverju blaðamaður vildi fá svör, sneri inn til fundar og kom út aftur með afsvör. Spurningarnar voru þess efnis að forsætisráðherra vildi ekki svara. Hann beitti ritskoðun, hann hafnaði að eiga samskipti við fjölmiðil sem fjallaði um mál sem var ráðherranum ekki þóknanlegt þá stundina. í þessu tilfelli þyrsti blaðamanninn í að fá svör við því hvort forsætisráðherra gæti svarað hverjar varnir fslands væru nú eftir þær breytingar sem orðið hafa á háttum Bandaríkjahers á Miðnesheiði. Flóknara var það ekki. Á sama tíma og ráðherra leyfir sér að reyna að stjórna því hvað sé í fréttum og hvað ekki segir Baldur Þórhallsson prófessor frá því að hann hafi sætt hótunum vegna starfa sinna, eða öllu heldur vegna þess að einstaka stjórn- málamönnum hefur ekki líkað niðurstöður úr rannsóknum fræðimannsins og þess vegna hafi hann verið varaður við. Ekki eru það bara munnmæli, því Baldur á bréf frá háttsettum embættismanni sem spurði hvernig Baldur vogaði sér að fjalla um fsland og Evrópusambandið og að hann væri kom- inn út í helmyrkur öfga. f helgarviðtali við Blaðið sagði Baldur: „Ég held líka að margir stjórnmálamenn á íslandi séu haldnir þeim misskilningi að bæði fræðimenn og blaðamenn hafi pólitískan tilgang með öllu sem þeir gera. Það er eðlilegt að stjórnmálamenn hafi pólitísk markmið en það er misskilingur að halda að aðrir hafi það.” Þetta eru góð orð og lýsa svo vel því andrúmi sem nú er ráðandi. Sigurjón M. Egilsson. Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2,110 Reykjavík Aöalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711 Netföng: bladid@bladid.net frettir@bladid.net, auglysingar@bladid.net Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins alla miðvikudaga Auglýsingasíminn er 510 3744 mAiim Hl/AR ER BJÖSSI I * •^ÍTvíWÍÍ) iSLEMSKU LEYKÍtecWL/$TUNA\ Af eilífum orðaflótta Á fyrri hluta síðustu aldar sinntu fátækrafulltrúar ómögum. Það má segja að bæði þessi orð séu nánast útdauð í málinu. Orðið fátækra- fulltrúi þótti fljótt heldur neikvætt og óæskilegt orð sem væri niðr- andi í garð þeirra sem þyrftu að leita til hans. Orðið ómagi fékk smám saman einnig á sig of nei- kvæðan stimpil og á einhverjum tímapunkti breyttust ómagar í skjólstæðinga. Seinna breyttist fá- tækrahjálpin í félagsmálastofnun, en það orð varð líka fljótlega of nei- kvætt og þótti hafa alltof mikinn stofnanabrag. Þá varð hið vinalega heiti fjölskylduþjónustan fyrir val- inu, en þegar það þótti ekki lengur gott var því breytt í velferðarsvið. Eg leyfi mér að spá því að eftir fá- ein ár héðan í frá verði meira að segja hið ágæta orð velferð komið með neikvæðan stimpil og þá verði leitað að einhverju „jákvæðara“ og svo koll af kolli. Sömu þróun má sjá varðandi orð yfir vangefna. Einu sinni voru þeir kallaðir fávitar sem í sjálfu sér er gott og gagnsætt orð og skýr and- stæða við orðið ofviti. Þegar það fór að þykja neikvætt, var notað orðið vangefinn, sem er afar fal- legt orð að mínu mati. Það fór þó að þykja heldur niðrandi og þá var talað um þroskahefta, sem síðan hefur verið breytt í fólk með þroska- hömlun eða þroskafrávik. Brátt mun það eflaust þykja ógurlega nei- kvætt og annarra orða eða nýyrða verður leitað. Sama virðist uppi á teningnum með aðflutta útlend- inga, nú þykja víst bæði orðin inn- flytjandi og nýbúi alveg ómöguleg og nýrra orða er leitað. Og heimil- islausir mega víst ekki lengur heita það, heldur á að nota orðið húsnæð- islaus. Fyrir mér er það hreint ekki það sama að vera heimilislaus og húsnæðislaus, því maður getur verið húsnæðislaus án þess að vera heimilislaus! Maður verður alveg Margrét Sverrisdóttir orðlaus - sem er ekki það sama og að vera mállaus. Þannig virðist vera í gangi í sam- félaginu eilífur orðaflótti. Ekki er langt síðan að á Alþingi kom fram tillaga sem einmitt snýr að þessu sama. Það er tillaga þess efnis að þeir sem þiggi bætur, hvort sem það eru lífeyrisbætur eða ör- orkubætur, skuli kallast launþegar en ekki bótaþegar eins og tíðkast hefur lengi. Rökin voru á þá leið, að bæturnar væru raunverulega laun þessara hópa og því væri rétt að kalla viðtakendur þeirra laun- þega. Þetta finnst mér alveg frá- leitt vegna þess að yrði slík breyt- ing gerð, myndi það kalla á nánari skýringu í hverri setningu, þegar væri verið að ræða um þessa hópa. Það yrði að segja eitthvað á þá leið að verið væri að ræða um launþega sem þægju laun frá bótakerfi ríkis- ins eða styrkjakerfi hins opinbera, en ekki um „venjulega“ launþega. Orðið bótaþegi er ljómandi gott og fallegt orð sem einmitt aðgreinir þennan hóp frá þeim sem eru venju- legir launþegar. Það er varla hægt að gera það á einfaldari máta en gert er með þessu eina forskeyti: bóta-. Er neikvætt að vera öryrki eða aldraður og fá slíkar bætur? Það á alls ekki að vera það, þetta eru sannarlega laun sem þessir hópar eiga fullan rétt á að fá og þeir fá þessi laun í bætur vegna þess að þeir standa ekki jafnfætis öðrum á vinnumarkaði. Þá var mér allri lokið nýverið þegar ég heyrði í umræðu um ófag- lært starfsfólk að það væri ómögu- legt og neikvætt að tala um ófag- lærða og að réttara væri að kalla það sérhæft starfsfólk! Mér finnst hugtakið ófaglærður afar gagnsætt og skýrt í málinu, en með þessu framhaldi endar líklega með því að ófaglærðir verða sérfróðir! Þá er óhætt að segja að hinir síðustu verði fyrstir og allir megi vel við una. Höfundur er varaborgarfulltrúi og áhugamaður um íslenskt mál. Klippt & skorió Guðjón Arnar Kristjánsson, for- maður Frjálslynda flokksins, sendi Morgunblaðinu athugasemd til birt- ingar í laugardagsblaðinu | ogkvartarþarundanþeim glósumsemhonumfinnst j hann hafa mátt þola dálkum skyldum þessum í Mogga. Sér í lagi ábend- ingumumglötuðtækifæri I til sameiningarvið Sjálfstæðisflokkinn. „Til að taka af allan vafa er rétt og skylt að taka fram að Frjálslyndi flokkurinn hefur mér vitanlega aldrei verið í umræðum um sameiningu við aðra flokka," segir Addi. En síðan þarf ekki að lesa nema tíu línum lengra til þess að formað- urinn upplýsi hvernig Nýtt afl, með sín 1.791 at- kvæði, sé fyrir tilmæli forystumanna sinna að renna saman við Frjálslynda flokkinn. Nýtt afl gæti þannig hæglega aukið fylgi frjálslyndra um liðlega tiund, ekki síst á höfuðborgar- svæðinu. En það er náttúrlega ekki sameining, heldur eitthvað allt annað. Fréttablaðið setti nýtt met í fyrirsagna- smíð á laugardag, en á forsíðu blaðsins trónaði aðeins eitt orð: „Kakkalakkafar- aldurshætta". Er ekki að efa að lesendur Frétta- blaðsins hafi þegar gripið til ráðstafana til þess að verja heimili sín fyrir þessari aðsteðjandi vá, sem dunið getur yfir landsmenn þegar minnst varir. En það er ekki sami sláttur í öllum fyr- irsögnum. Daginn áður átti Morgunblaðið þannig einhverja minnst spennandi fyrirsögn mánaðarins og það á siðu 2: „Ræddu ástand og horfur i Afganistan". Klippari las raunar ekki lengra, þannig að hann veit ekki hvort þar undir leyndist frétt. Kannski eru fréttirnar oft litlar og leiðinlegar, en þurfa fjölmiðlar virki- lega að keppast við að segja frá því að mögu- legur stuðningurvið hugsanlegtframboð aldr- aðra aukist í réttu hlutfalli við aldur? Björn Bjarnason dómsmálaráðherra hefur verið framarlega í umræðunni undanfarna mánuði, fyrst og fremst vegna tillagna og aðgerða í löggæslumálum, en einnig hefur hann lagt orð í belg umvarnarmál. Um helgina sáu menn þó allt aðra hlið á Birni sakir starfa hans Þingvallanefnd. Nefndin hefur undir formennsku Björns kynnt tillögu að nýrri brú yfir Öxará, sem tæpast er vanþörf á, en ekki vakti síður athygli fordæming Björns á groddalegum veiðiaðferðum á stórurriðanum íÞingvallavatni. andres.magnusson@bladid.net

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.