blaðið - 26.09.2006, Síða 28

blaðið - 26.09.2006, Síða 28
36 ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 2006 blaðið ferðir ferdir@bladid.net Góö regla Þegnr verið er að pakka fyrir ferðina miklu er góð regla að taka aðeins með sér þær flikur sem maður mun vera í þrisvar sinnum eða oftar. Þanr.ig tekur maður ekki of rnikiö með sér. Netið er öflugt hjálpartæki Netið er orðið öflugt hjálp- artæki neytenda til að leita að ferðalögum sem hentar hverjum og einum. Sífellt færri kaupa pakka sem innihalda flug og gistingu þar sem oft er ódýrara að leita sjálfur að hóteli. Auk þess er þá auðveldara að finna hótel á þeim stað sem hentar best. Það er lítið mál að leita að hóteli á Netinu. Best er að fara á www.google.com eða svipaða vefi og slá inn lýsingar- orð sem hæfa því hóteli þar sem á að gista. Sem dæmi má nefna cheap hotels in London, Luxus hotel in Japan, Hotel and Spa in Barcelona og svo framvegis. Með kort sér til aðstoðar er yfir- leitt auðvelt að sjá hvar hótelið er og flest hótel er hægt að bóka á Netinu. Fyrsta flokks veitingastaðir í St. John's Hópferðamiðstöðin Vest- fjarðaleið hefur undanfarin átta ár flogið með íslendinga til St. John’s, höfuðborgar Nýfundna- lands, sem er austasta fylki Kanada. Ferðirnar hafa notið geysilegra vinsælda og ekki skað- ar að flugtíminn er einungis þrjár til þrjár og hálf klukku- stund. St. John’s hefur ekki að- eins vakið athygli fyrir hagstætt verð í verslunum heldur má þar líka finna fyrsta flokks hótel og veitingastaði, spennandi afþrey- ingu og skemmtilega stemningu. St. John’s er falleg og lífleg borg á stærð við Reykjavík en hún er töfrandi blanda gamla og nýja heimsins sem má sjá í aðlaðandi bvggingarstíl og menningu. íttBIKí biiítE! rrrrTJI rtrirp: Gömul hús viö ána Luneburg á séryfir 1.000 ára sögu og þar er aö finna mörg heilleg hús frá fyrri öldum. iWiTwr/i Fagurlega skreytt hús Fallegt hand- verk, útskurður og skraut setur svip sinn á mörg gömlu húsin íborginni. Ráöhúsiö í Lúneburg Ráöhús borg- arinnar sem þykir eitt hið fallegasta íþessum hluta landsins var byggt í áföngum frá 1230 til 1720. Miðaldaborgin Liineburg hefur upp á margt að bjóða Ferð langt aftur í aldir Ef menn hafa í hyggju að fara í frí til Hamborgar er ekki úr vegi að bregða sér í dagsferð til borgarinnar Luneburgar. Borgin er um 50 kílómetra suðaustur af Ham- borg og tekur aðeins rúman hálftíma að fara þangað með lest eða í bíl. Um 70.000 manns búa í Luneburg en hún er þéttbýl og því auðvelt að fara um hana fótgangandi. Þar er margt að sjá og lengi er hægt að ganga um götur og torg og dást að götumyndinni og fagurlega skreytt- um húsunum. Þá jafnast fátt á við það að setjast niður á einhverju kaffihúsinu og virða fyrir sér iðandi mannlífið. í Ltineburg er fjöldi spennandi veitingastaða og áhugaverðra safna auk þess sem borgin er eins og safn í sjálfri sér. Tíminn stendur í stað Öfugt við ýmsar aðrar þýskar borg- ir slapp Lúneburg tiltölulega vel við eyðileggingu í síðari heimsstyrjöld- inni og er því vel varðveitt og heilleg. Steini lagðar götur og gömul bind- ingshús úr rauðum múrsteini mynda heildstæða og fallega götumynd sem hefur tekið litlum breytingum í gegn- um aldirnar. Ef ekki væri fyrir bíla, reiðhjól og önnur ummerki nútímans mætti halda að maður væri kominn aftur í tímann þegar rölt er um göturnar. Ráðhús borgarinnar sem reist var í áföngum frá 1230 til 1720 þykir eitt hið fegursta í Norður-Þýskalandi. Þrjár glæsilegar miðaldakirkjur eru í Lúneburg auk margra glæsilegra íbúðarhúsa aðalsmanna frá 16. og 17. öld. Háir gaflar gamalla pakkhúsa gnæfa yfir götum og torgum og víða má enn sjá volduga dráttarbita og hlera undir mæni. Tíminn hefur sett mark sitt á mörg þessara húsa sem tekin eru að skekkjast og virðast jafn- vel að hruni komin. Auður hvíta gullsins Miklar saltnámur eru í nágrenni Ltineburgar og fyrr á öldum byggð- ist auður hennar og velsæld á „hvíta gullinu“. Saltvinnslu var að endan- lega hætt í nágrenni Lúneburgar í byrjun níunda áratugar síðustu ald- ar en þá hafði vægi hennar minnkað til muna. Nú á dögum blómstrar verslun og margvíslegur iðnaður í borginni Ltineburg og nágrenni hennar. Auk þess sem þar er öflugur háskóli og mikið af námsmönnum spóka sig þvi um í bænum. eimr.jonsson@bladid.net „Söngurinn göfgar Innritun stendur yfir á átta kvölda söngnámskeið í raddbeitingu og öndun sem hefst 2. október. Kennarar Marta Guðrún Halldórsdóttir og John Speight. Skráning og upplýsingar í síma 568 5828 eða á tsdk.ismennt.is fyrir 28. ágúst. aÓNSKÓLI SKJURSVEINS D. KRISTINSSONAR Skynsamlegur ferðamáti Margir ferðamenn taka orð- ið meira tillit til umhverfis og heimafólks á viðverustöðum sínum og slíkt kallast hagferða- iðnaður (ecotourism). Það er kannski ekki skrýtið þegar litið er til þess að regnskógar á stærð við Manhattan eru eyðilagðir á hverjum degi og yfir 50 prósent af kóralrifjum heimsins eru í hættu vegna mannlegra afskipta. Hagferðalag er ábyrgt ferðalag á náttúrleg svæði sem miðar að því að vernda umhverfið og bæta vel- ferð heimafólksins. Hagferðalag er einfaldlega ein tegund ferða- laga sem miða að því að hafa lítil áhrif á umhverfi og menningu á sama tíma og hjálpað er til við að skapa tekjur, atvinnu og ýtt er undir verndun umhverfis. Það er því hægt að vera hagferðalangur með því að fara eftir þessum ein- földu reglum: • Sparið vatnið, slökkvið ljósið, notið sömu handklæðin oft- ar en einu sinni og slökkvið á sjónvarpinu. Sjónvarp sem er í biðstöðu notar 60 prósent af því rafmagni sem það notar þegar horft er á það. • Ekki henda rusli úti í náttúr- unni, heimafólkið þarf ekki að vita að þú varst á staðnum. • Hjólaðu eða labbaðu, það er betra fyrir umhverfið og þig. • Þegar þú velur skoðunarferð skaltu velja fyrirtæki sem sér heimafólkinu fyrir atvinnu. Verndun Þaö eykst að ferðalangar leggi sitt af mörkum til aö vernda umhverfiö og bæta velferö heima- fólksins á ferölögum sinum.

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.