blaðið - 18.10.2006, Qupperneq 20
28 MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 2006
fólk
folk@bladid.net
HVAÐ FINNST ÞER?
Borgar þú afnotagjöld?
„Já, ég hef alltaf borgað mín afnotagjöld. Lika þegar ég var
starfsmaður Ríkisútvarpsins."
Þorgerður K. Gunnarsdóttir,
menntamálaráðherra
Cecilia Stegö Chiló, menningarmálaráðherra Svíþjóðar, sagði af sér á
mánudaginn eftir að upp komst að hún hafði ekki greitt afnotagjöld af
saenska ríkissjónvarpinu í 16 ár
HEYRST HEFUR...
Rebekka Rán Samper
myndlistarmaður haslar
sér senn völl á nýjum vett-
vangi en hún
hefur verið
ráðin í stöðu
markaðs-
stjóra Háskól-
ans á Bifröst
og tekur við
nýja starfinu í byrjun næsta
mánaðar. Rebekka hefur
getið sér gott orð í listheim-
inum en hún á ekki langt
að sækja hæfileikana enda
foreldrar hennar báðir mynd-
listarmenn og bróðir hennar
Baltasar þekktur leikari og
leikstjóri. Hún er ekki heldur
ókunnug markaðsfræðum
og viðskiptum enda lauk hún
MBA-prófi í viðskiptafræði
frá Háskólanum í Reykjavík
síðastliðið vor. Enn fremur
hefur hún fjölþætta starfs-
reynslu að baki en hún hefur
meðal annars starfað við
grafíska hönnun, markaðs-
setningu, leiðsögumennsku,
fjölmiðlun og kennslu auk
þess að annast ýmiss konar
verkefnastjórn á sviði lista,
menningar og viðskipta.
Aðdáendur Guðbergs
Bergssonar hafa ástæðu
til að kætast því að rithöfund-
urinn síungi hefur tekið til
við að skrá daglegar hugsanir
^ sínar á vef-
síðu JPV-for-
lags www.
jpv.is.
Sumar hugs-
anir meistar-
ans minna
á spakmæli eins og þessi:
„Maður er aldrei of gamall
til að vera ungur.“ Fyrr í
vikunni varð hlerunarmálið
honum að umhugsunarefni
eins og fleirum: „Er hægt að
þjarma að fortíðinni í síma-
hlerunarmálinu svo lygarar
verði leitendur? Myndast
ekki þannig dauðasveitir
sannleikans?"
Róbert Douglas Segist
hljóta að vera á mjúku
tímabili sem kvikmynd-
agerðamaður.
Mynd/Rax
Oft er skorpuvinna í
kvikmyndabransanum
Róbert Douglas kvikmynda-
gerðarmaður er að undirbúa sína
næstu kvikmynd þessa dagana auk
þess að vera með heimildarmynd
í vinnslu. „Ég er búinn að vera að
skrifa handrit. Og rétt að byrja að
athuga með fjármögnun. Leikin
mynd þar sem söguþráðurinn er
Evróvisjón-söngvakeppnin.”
Róbert segir tíma til kominn að
fjalla um Evróvisjón-söngvakeppn-
ina sem allir íslendingar hafi svo
mikinn áhuga á sem raun ber vitni.
„Ég hef áhuga á Evróvisjón eins og
aðrir íslendingar,” segir Róbert og
vill meina að hann sé dæmigerður
íslendingur þegar kemur að því
þjóðarsporti sem Evróvisjónglápið
er. Róbert er búinn að vera að skrifa
handrit að myndinni með Þorsteini
Guðmundssyni og er að athuga
hvernig staðið verði að framleiðslu
hennar. „Ég vonast til að tökur hefj-
ist á næsta ári,” segir hann.
Aðspurður um það hvort hann
sé á einhvers konar mjúku tíma-
bili sem kvikmyndagerðarmaður
segir hann það hljóta vera. „Ég
gerði mynd um homma sem spilar
fótbolta og næsta mynd er um Evr-
óvisjón, þannig að það mætti kalla
þetta bleikt tímabil eða eitthvað
svoleiðis."
Áður en Róbert byrjaði að leikstýra
myndum vann hann baki brotnu við
uppvask og afgreiðslu. „Ég vann við
uppvask á Kaffi List og Múlakaffi og
á vídeóleigunni Vídeóheimum en ég
var alltaf að vesenast við að búa til
stuttmyndir og hef viljað starfa við
kvikmyndir síðan ég man eftir mér.”
Hann segir það ekki hafa verið auð-
velt að byrja ferilinn og það þurfi
sterka trú á sjálfan sig til að komast
að settu marki. „Maður þarf að hafa
óbilandi trú á sjálfum sér og ekki gef-
ast upp. „Allar þessar klisjur gilda,”
bætir hann við.
Róbert segir vikuna hafa verið
annasama. Þannig sé það oft og
tíðum. Það sé skorpuvinna í kvik-
myndabransanum. Stundum sé
rólegt en oft verði álagið mikið.
„Sérstaklega við tökur, þá verður sól-
arhringurinn 30 tímar.”
dista@bladid.net
SU DOKU talnaþraut
7 6 8 2 5 9 3 4 1
1 4 2 6 3 7 9 5 8
9 3 5 1 4 8 6 2 7
8 5 3 9 6 2 1 7 4
4 9 1 7 8 5 2 3 6
6 2 7 3 1 4 5 8 9
2 8 6 4 9 3 7 1 5
3 1 4 5 7 6 8 9 2
5 7 9 8 2 1 4 6 3
Lausn síðustu gátu:
Su Doku þrautin snýst um aö raða tölunum
frá 1-9 lárétt og lóðrétt (reitina, þannig
að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir I hverri linu, hvort sem er lárétt eða
lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur
aðeins nota einu sinni innan hvers níu
reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út
frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
Gáta dagsins:
4 5 6 3 9 1
6 7 5 4
6
1 2 3 9
9 8 3
1 7
2 9 6 5 8
6 7
8
eftir Jim Unger
Ég vona að ég fái mitt eigið herbergi!
12-7
© Jlm Unger/dlst. by United Medla. 2001
Á förnum vegi
Hver nær 2. sæti í
prófkjöri sjálfstæðis-
manna í Reykjavík?
Siggeir Örn Steinþórsson,
nemi
Klárlega Blöndalinn. Áfram
Samfylkingin!
Valdís Magnúsdóttir, nemi
Björn Bjarnason nær öðru
sætinu.
Haukur Örn Gunnarsson,
nemi
Ég hugsa að það verði Björn
Bjarnason.
Bjarki Sörens, nemi
Blöndal. Pétur Blöndal.
Tindur Júlíusson, nemi
Guðlaugur Þór tekur annað
sætið.