blaðið - 18.10.2006, Page 28
36 MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 2006
blaöiö
Mriá.
neytendur
neytendur@bladid.net
Wal-Mart fær á baukinn
Verslanakeðjan Wal-Mart hefur verið dæmd til að greiða rúma 5
milljarða króna í bætur til starfsmanna sem voru neyddir til að
vinna í lögbundnum hvíidarhléum. Á íslandi er lögbundið hlé 15
minútur á hverjum 6 klukkustundum. Gunnar Páll Pálsson, formaðj
ur VR, segir það almennt virt nema í undantekningartilfellum. J
WAL’MART
AlVftVS IOW PfVCiS ALWAYS WAL UAfíT
/mf'-
Jón Gnarr lætur sig vlðskiptaVINI varða
Ekki tækifæri til að vera
ekki lengur. Það var ekki þörf á
hæfni til samskipta í því bænda- og
sjómannasamfélagi sem við lifðum
i en nú er hún nauðsvn.
Jón nefnir að við Islendingar höf-
um mikið að læra af útlendingum
sem hingað koma. „Miklu meira en
okkar grunar. Við erum afar stolt
og það er gott að vera ánægður með
sjálfan sig en um leið og maður fer
að trúa því að maður sé betri en aðr-
ir þá einangrar maður sig og dregst
aftur úr því staðreyndin er sú að
flestar umbætur hafa komið hingað
vegna útlendinga.” Jón segir okkur
íslendinga gjarnan horfa fram hjá
því sem gott er og einblína á það
sem er leiðinlegt. „Við gleymum því
að Danir færðu okkur margt gott,
kynntu okkur til að mynda fyrir
klósettinu, en meira er talað um að
þeir seldu okkur ónýtt mjöl. Sömu
sögu er að segja af Bandaríkjamönn-
um, víðast hvar er því fagnað að
þessir herskáu andskotar séu farnir
héðan. En engin umræða fer fram
um hvaða gagn við höfðum af veru
þeirra hér; áhrifum þeirra á menn-
ingu landsins og þeirri staðreynd að
þeir björguðu mörgum íslenskum
sjómönnum úr hættu.”
Að gefa í stað þess að fá
Jóni er umhugað um að fólk sýni
hvert öðru vinsemd. „Það er allt í
lagi að vera dónalegur í fámenni, þá
er bara hægt að segja að bóndinn á
næsta bæ sé hálfviti, en þetta verður
okkur til trafala í opnu nútímasam-
félagi. „Tímarnir eru breyttir," segir
Jón og bendir á mikilvægi þess að
við getum tekið breytingum. „Við
erum svo stutt á veg komin,“ seg-
ir hann. „Það eru ekki nema 20 ár
síðan okkur var kennt að svara í
síma. Það kom hingað maður að
utan og kenndi fólki að svara svona
í símann: „Dekkjaverkstæði Jóns,
góðan daginn, get ég aðstoðað?” 1
staðinn fyrir hið dæmigerða ís-
lenska svar sem var geðvonskulegt:
„HALLÓ“.“
dista@bladid. net
leiðinlegur við
Eg er viðskiptaVINUR,”
segir Jón og leggur áhersl-
una á orðið vinur. Jón
Gnarr hefur í samstarfi
við Þekkingarmiðstöðina, á veg-
um VR, haldið fyrirlestra um
þjónustu á íslandi og upplifanir
sínar á hugtakinu. „Þjónusta er
samskipti,” segir Jón. „Samskipti
þar sem önnur manneskjan er ekki
óvinur þinn. Engin tortryggni og við-
skiptaVINURINN er VINUR. Bara
önnur manneskja. Þegar manni
líður illa og er ófullnægður, finnst
mörgum gott að nota tækifærið til að
demba óánægju sinni á annað fólk.
Það hefur þótt sjálfsagt hér á landi
að maður geti ælt óánægju sinni á ná-
ungann en þjónusta er ekki tækifæri
fyrir eina manneskju til að vera leið-
inleg við aðra manneskju.”
aðra
Skilagjald á
keyptum bókum
j bókaverslunum tíðkast það að
innheimta sérstakt skilagjald á
bókum. Gjaldið sem er allt að 250
krónur er oftast innheimt sé varan
ekki keypt hjá viðkomandi fyrirtæki
eða ef skilamiða eða nótu vantar til
að staðfesta kaupin.
Þórunn Inga Sigurðardóttir, verslun-
arstjóri í Eymundsson, Austurstræti,
segir verslunina innheimta 250
króna skilagjald ef bókin er keypt
annars staðar. „Við endurgreiðum
fólki í peningum sé nóta til að stað-
festa kaupin og hafi þau verið gerð
innan 10 daga, annars er hægt að
fá inneignarnótu.”
„Við höfum í of langan tíma
komist upp með að vera durtar"
Jón segir þjónustu ekki hafa verið
háttskrifaða hér og landi og þjón-
ustustörf þyki ekki eftirsóknarverð.
„íslendingar hafa margir mjög úrelt-
ar hugmyndir um þjónustu," segir
Jón. „Þeim finnst að það að veita
þjónustu sé einhverskonar þræls-
lund, að þeir séu að taka niður fyrir
sig, en það er útrunnið bændastolt
og misskilningur.”
Jón segir íslendinga í of langan
tíma hafa komist upp með að vera
durtar. „Fólk horfir niður á tær sér
meðan það afgreiðir fólk og yrðir
jafnvel ekki á viðskiptavini sína.
En hæfni til samskipta skiptir svo
miklu máli í dag að þetta dugar
Nýtttákn um gaaði
Komdu á lippskeruhátíö Brimborgar í clag. Ofurtilboö.
Veldu Ford. Við staðgreiðum gamla bílinn þinn
Þú veltir fyrir þér hvernig best er að losna við gamla bílinn. Brimborg
kaupir hann af þér staðgreitt** veljir þú bíl á góðu uppskerutilboði Brimborgar.
Þú losnar við allt umstang við að selja og lækkar þinn kostnað.
Komdu í Brimborg. Kynntu þér hvernig þú geturfengið þér
nýjan Ford á uppskeruverði. frekari~ ~ '• ' .
bnmborg
Öruggur stadur til að vera i
Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 6, sfmi 515 7000 | Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 462 2700 | www.lord.ls
* Brimborg og Ford áskilja sér rétt til að breyla verði og búnaði án fyrirvara og að auki er kaupverð háð gengi. Bílasamningur er lán með 20% útborgun og mánaðartegum greiðslum i 84 mánuði og eru háðar
breytingum á vöxtum og gengi erlendra mynta. Rekstrarteiga er miðuð við mánaðarlegar grerðslur 139 nránuði sem eru háðar gengi erlerrdra mynta og vöxtum þeirra. Smur- og þjónustuettirlit samwæmt lerli
tramleiðanda og Brimborgar er innrtalio I leigugreiðslu og allt að 60.000 km akstur á tlmabilinu. ** Staðgreitt 45 dögum eftir alhendingu nýja Msins. Nárrari upplýsingar veita söluráðgjalar Brimborgar.
Eitraðar samfellur
Danska Ney tendablaðið Tænk hef-
ur látið til sín taka á markaði neyt-
enda og lætur sér sérlega annt um
vörur sem eru markaðssettar fyrir
börn. I könnun sem blaðið lét gera
kemur í ljós að svokallaðar samfell-
ur (nærföt) fyrir lítil börn geta inni-
haldið afar skaðleg efni sem hafa
áhrif á heilsu ungbarna. Af sextán
samfellum sem Tænk lét
kanna innhéldu
sex af þeim
óæski-
leg efni
svo sem
þalöt og
triclosan.
Allar samfell-
urnar voru litaðar
og sumar voru með
áprentuðu mynstri
eða myndum. Fjórar
samfellur innihéldu
þalöt sem er efni not-
að til að mýkja plast
og eru skaðlegustu
tegundirnarbann-
aðar í barnaleik-
föngum. Samfella frá
Disney innihélt þalatið
DEHP sem er einna verst og það í
töluverðum mæli.
Sú samfella sem fékk bestu ein-
kunn er efst og sú sem er neðst á list-
anum kom verst út.
NIÐURSTÖÐUR SAMFELLU- KÖNNUNAR TÆNK
1. Katvig 9. Ductus
2. Living Craft 10. Holly's Baby
3. Petit Bateau 11.Joha
4. H&M 12. Little One
5. Friends 13. Trendy Wear
6. Bakito 14. Name it
7. Marimekko 15. Ipsen Cph.
8. Be Kids SÉÉ&*. - 16. Disney