blaðið - 11.11.2006, Qupperneq 17
blaöiö
LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 2006 17
Útrás Framsóknarflokksins tekur á sig margvíslegar myndir:
Mikið framsóknarfylgi á Kanaríeyjum
Framsóknarflokkurinn
virðist eiga fylgi að fagna
erlendis þó það tætist af
honum hér. Framsóknar-
félagið á Kanaríeyjum var
stofnað á Klörubar í síðasta
mánuði. Sturla Þórðarson,
stofnandi framsóknarfélags
eyjarskeggja, segir að félagið hafi
slegið í gegn, því á stofnfundinum
hafi verið 17 fundargestir en á öðrum
fundinum sem var haldinn viku
seinna voru 47 þátttakendur.
Sturla, sem býr á Kanaríeyjum,
segir að stefnt sé að því að halda fundi
í allan vetur á Klörubar á
laugardögum. Hann segist
hafa saknað stjórnmálaum-
ræðunnar eftir að hann
flutti út og því tekið
höndum saman við Karl
Arason, sem býr á eyjunum
yfir veturinn, um að setja
félagið á laggirnar. Á síðasta
fundi voru fundarmenn í beinu
símasambandi við Guðna Ágústsson
landbúnaðarráðherra og voru menn
ánægðir með það. Vonir standa til að
hægt verði að fá einhverja þingmenn
eða ráðherra til að mæta á fundina.
Sturla segir að tilgangur félagsins
sé að skapa umræðugrundvöll fyrir
málefni að heiman og segir hann að
fram til þessa hafi góðar umræður
verið á fundunum. Hann bætir þó við
að líklega séu ekki allir fundarmenn
hliðhollir Framsókn en það skapi bara
heitari og betri umræður. Sturla segir
alla velkomna á þessa fundi óháð því
til hvaða flokks þeir hneigjast. Á eyj-
unam eru um það bil 70 Islendingar
með fasta búsetu en þó eru fleiri sem
búa á eyjunum yfir vetrartímann.
Svo eru tvö þúsund íslendingar þar á
viku hverri á sumrin.
Ungir jafnaðarmenn:
Átján ára fái
að kaupa vín
Mbl.is Ungir jafnaðarmenn
hvetja þingmenn til að beita sér
fyrir því að áfengiskaupaaldur
á léttvini og bjór verði lækk-
aður til samræmis við önnur
borgaraleg réttindi í 18 ár.
f tilkynningu segir, að fyrir .
tveimur árum hafi 23 þingmenn
úr Samfylkingu, Sjálfstæðis-
flokki, Framsókn og Frjálslynda
flokknum lagt fram frumvarp
til laga um málið, sem fékk þvf
miður ekki afgreiðslu úr nefnd.
Skora Ungir jafnaðarmenn
á þessa 23 þingmenn að fá
a.m.k. níu aðra í lið með sér til
viðbótar og drífa málið í gegn
áður en kjörtímabilinu lýkur.
Kaupir bíl til
gegnumlýsinga
Mbl.is Samþykkt var á ríkis-
stjórnarfundi í gær að tillögu
fjármálaráðherra að embætti
tollstjórans í Reykjavík verði falið
að leita tilboða í gegnumlýsing-
arbifreið. Markmiðið er að efla
aðgerðir gegn fíkniefnasmygli
og auka öryggi vöruflutninga.
Farið verður fram á 120 milljónir
króna í þessu skyni í frumvarpi
til íjáraukalaga fyrir árið 2006.
Leiðrétting
Guðjón Hjörleifsson.þingmað-
ur Sjálfstæðisflokksins í Suður-
kjördæmi, var í frétt Blaðsins í
gær sagður stefna á önnur sæti
en hann hefur sett stefnuna á.
Hann gefur kost á sér í 2. til 3.
sæti í prófkjöri flokksins í dag.
HRINGUR TANKADOS EFTIR DANBROWN
FRA HOF
DA VINCIL'
OUMDEILDUR MEISTARi HINNAR
UTHUGSUÐU SPENNUSOGU
„Heimurinn sem Hringur Tankados lýsir er því miður ekki;
fjarri raunveruleikanum."
- MacDonnell Ulsch, forstjóri Öryggisráðs Bandaríkjanna
OSYNILEGIR GLÆPIR EFTIR
XS&*XX
A METSOLUUSTUM UM ALLAN HEIM.
PLANETA BOKMENNTAVERÐLAUNIN
IARGENTINU.
„Stærðfræði og morðgáta. Þú færð ekki betri kokkteil."
- Guardian
M78
r
BJARTUR