blaðið - 11.11.2006, Síða 32
32 LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 2006
hb
blaöiö
Hef ekki
áhuga á
að mýkja
ímyndina
g lít á úrslitin í prófkjöri Sjálf-
stæðisflokksins sem góðan
varnarsigur. Ég uni þeim
vel fyrir sjálfan mig og tel
að eins og í pottinn var búið þurfi
ég ekki að kvarta. Það var harkalega
sótt að mér,“ segir Bjöm Bjarnason
dómsmálaráðherra. „Ekki sé ég að
menn séu að blanda sér í prófkjör
annarra flokka en i aðdraganda próf-
kjörs hjá okkur sjálfstæðismönnum
voru menn í öðrum flokkum mjög
að skipta sér af. Þeir hrósuðu mér
kannski í aðra röndina en tilgangur-
inn var að draga upp þá mynd að ég
væri fremur illmenni en góðmenni.
Innan flokksins varð uppákoma hjá
stjórn Sambands ungra sjálfstæð-
ismanna vegna tillagna sem ekki
höfðu verið lagðar fram og sagt
var að ég væri að ráðast á mannrétt-
indi og gera hluti sem áttu ekki við
nokkur rök að styðjast. Prófkjörs-
baráttan sjálf bar þess líka merki að
menn börðust hart. Það er óvenju-
legt við val á flokkssystkinum á lista
að spjótum sé beint gegn einum
frambjóðanda um leið og mælt er
með öðrum, en það var greinilega
gert í þessu prófkjöri."
Hugsaðirðu á einhverjum
tímapunkti að ef þú nœðir ekki
öðru sœtinu þá myndirðu hætta
stjórnmálaafskiptum?
„Ég gerði annað sætið ekki að úr-
slitaatriði. Ef ég hefði lent neðarlega
á lista hefði það verið skýr skilaboð
um að ég ætti að fara að snúa mér
að einhverju öðru. En ég fékk sterka
kosningu í þriðja sætið, það er síður
en svo eins og ég lafi í því.“
Ef flokkurinn fer í ríkisstjórn
eftir kosningar gerirðu þá tilkall til
ráðherraembœttis?
„Á mínum pólitíska ferli hef ég
aldrei gert tilkall til ráðherraemb-
ættis, það hefur frekar verið leitað
til mín og ég spurður hvort ég væri
tilbúinn að taka að mér ákveðin
embætti. Það er ekkert óeðlilegt
við það að þrír þingmenn menn úr
Reykjavík verði ráðherrar og þess
vegna fleiri ef góðir menn eru í boði.
Annars veit ég ekki frekar en aðrir,
hvernig þetta verður."
Fjögur ár í senn
Veiktist ekki staða þín í Sjálfstœð-
isflokknum þegar Davíð Oddsson
hœtti stjórnmálaafskiptum?
„Ég lít ekki svo á. Við Davíð vorum
nánir í stjórnmálum enda héldum
við fram ákveðnum sjónarmiðum,
skoðunum og viðhorfum sem við
viljum að ríki innan Sjálfstæðis-
flokksins. Ég tel að innan Sjálfstæð-
isflokksins vilji menn að þessi við-
horf fái að njóta sín áfram. Ég hef
heyrt því haldið fram að vegna brott-
hvarfs Daviðs úr stjórnmálum hafi
staða mín veikst. Ég hef ekki orðið
var við það. Hvers vegna skyldi hún
hafa veikst?"
Með nýjum foringja koma nýir
menn, það er alltaf þannig.
„Nýir menn geta ekki farið öllu
sínu fram. Það er ekki endilega far-
sælt fyrir stjórnmálaflokk að nýir
menn ýti öllum öðrum til hliðar. Ég
lít svo á að styrkur Sjálfstæðisflokks-
ins felist í ákveðnu jafnvægi innan
hans. Gæfa flokksins byggist á því,
að áfram verði siglt í sæmilegri sátt.“
Ætlarðu að vera langan tíma í
stjórnmálum í viðbót?
„Ég hef boðið mig fram til fjögurra
ára. Enginn veit hvað gerist eftir
kosningar frekar en sína ævi fyrr en
öll er, en varðandi stjórnmálaþátt-
töku hugsa ég eins og áður í grund-
vallaratriðum til fjögurra ára.“
Hef oft verið dómharður
Manni finnst stundum að sam-
skipti þín og fjölmiðlamanna séu
stormasöm. Erþað rétt tilfinning?
„Frá árinu 1995 hef ég haldið úti
heimasíðu minni bjorn.is, raunar
eigin fjölmiðli. Þar skrifa ég reglu-
lega og hef oft verið dómharður. Ég
les þau skrif ekki eftir á nema ég
þurfi á því að halda að fletta upp ein-
hverju sem ég hef sagt, en ég er viss
um að mörgum hefur sviðið undan
„í sjónvarpsumræðum og blaðaskrifum eru
svokallaðir álitsgjafar oft lireinlega úti að aka og
þá má velta þvífyrir sér hvaða forsenáur þeir hafi
fyrir mörgu því sem þeir segja í dómum um menn og
málefni. Tilfinningasveiflur geta ráðið skoðun þeirra,
ábyrgðarleysi, þekkingarskortur eða einfaldlega óvild
Má ég ekki gera athugasemdir við slíkan málflutning?
Sjóntækjafræðingur með
réttindi tii sjónmælinga og
linsumælinga
Greiðslukjör
í allt að 36
mánuði
§Gleraugað
Bláu húsin við Faxafen
Suðurlandsbraut 50
108 Reykjavík
i
(visa/euro) Engin útborgun
gleraugad@simnet.is
www.gleraugad.is
blaöiö
LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 2006 33
„Ef það er mönnum
fjötur umfót að hafa
ákveðnar skoðnir og
svarafyrir sig þá telst
sennilega heppilegra
að hafa mjúka ímynd
og vera skoðanalaus.
Þá kemst viðkomandi
áfram afþví að hann
ergoodyguy.Éghef
ekki tileinkað mér
þetta viðhorf."
skrifunum. Ég er ekkert að friðmæl-
ast við menn.
Menn geta spurt: Er skynsamlegt
fyrir stjórnmálamann að agnúast
út í fjölmiðlamenn á eigin vefsíðu?
Fær hann ekki fyrir vikið fjölmiðla-
menn upp á móti sér? Ég hef vafa-
laust kallað á þau viðbrögð, enda
fjölmiðlamenn líklega viðkvæmari
fyrir sjálfum sér en stjórnmála-
menn. Á hinn bóginn er það liður
í því að vera stjórnmálamaður að
segja skoðun sína og svara fyrir sig.
I sjónvarpsumræðum og blaða-
skrifum eru svokallaðir álitsgjafar
oft hreinlega úti að aka og þá má
velta því fyrir sér hvaða forsendur
þeir hafi fyrir mörgu því sem þeir
segja í dómum um menn og mál-
efni. Tilfinningasveiflur geta ráðið
skoðun þeirra, ábyrgðarleysi, þekk-
ingarskortur eða einfaldlega óvild.
Má ég ekki gera athugasemdir við
slíkan málflutning? Ég leitast við að
gera það aldrei nema með rökum og
helst beinum tilvitnunum. Spyrja
má af hverju ég sé að elta ólar við
þetta. Stundum geri ég það vissu-
lega sjálfur. En er það ekki liður í
heilbrigðum skoðanaskiptum, að
menn láti í sér heyra, ef þeim þykir
aðrir segja bölvaða vitleysu, oft um
hin mikilvægustu mál?
Sumir halda því fram, að sem
ráðherra megi ég ekki nota ákveðin
orð til að lýsa skoðunum mínum.
Málum hefur meira að segja verið
skotið til dómstóla vegna orða sem
ég hef notað á vefsíðunni. Nú er ég
sagður vænisjúkur, af því að ég nota
orðið „andstæðingur“. Þetta er pólit-
ísk rétthugsun sem er komin langt
út fyrir það sem eðlilegt er.“
Framhald á nœstu opnu
dúnsœngur & koddar
náttborð verð 9.800.
rafmagnsrúm verð frá 84.510
eldhússtólar
barstólar
eldhúsborð
sjónvarpsherbergið
borðstofa
svefnsófar
sófasett & hornsófar
stólar / casper 39.000
www. toscana. is
SMIÐJUVEGI 2. KOP S : 5 8 7 6090
HÚSGÖGNIN FAST EINNIG ; HÚSGAGNAVAL, HÖFN S: 478 2535