blaðið - 28.12.2006, Side 1
ORÐLAUS
» siða 52
260. tölublað 2. árgangur
fimzntudagur
28. desember 2006
FRJÁLST, ÓHÁÐ & ÓKEYPIS!
U ÍÞRÓTTIR
David Beckham hefur enn ekki
svarað ráðamönnum hjá Real
Madrid um hvort hann verði
áfram hjá félaginu | siða 44
■ HEILSA
Vilji fólk standa við áramóta-
heitið um að hætta að reykja er
best að ætla sér ekki að hætta
strax á nýársdag | s(ða42
Deila flugumferðarstjóra og flugmálastjórnar:
Sturla skiptir sér ekki af
■ 200 milljónir í biðlaun er réttur starfsmanna ■ Ráðherra fylgist náið með
Eftir Höskuld Kára Schram hoskuldur@bladid.net
Rúmlega helmingur þeirra flugumferðarstjóra
sem láta af störfum um næstu áramót á rétt á biðla-
unum frá ríkinu í allt að eitt ár. Heildarupphæðin
gæti numið allt að 200 milljónum króna.
Sturla Böðvarsson samgönguráðherra segir lítið
við þessu að gera enda um lögbundinn rétt að ræða.
Hann segir mál flugumferðarstjóra og flugmálayfir-
valda í réttum farvegi og að ráðuneytið muni ekki
skipta sér af deilunni. „Ráðuneytið mun ekki aðhaf-
ast meira umfram það sem nú þegar er búið að gera.
Ég fylgist náið með þessu en þetta er í höndum
stjórnar Flugstoða og stjórnenda Flugmálastjórnar.“
Flugstoðir ohf. taka við rekstri flugumferðar-
stjórnar um næstu áramót en um 60 flugumferðar-
stjórar hafa enn ekki viljað skrifa undir ráðningar-
samning hjá hinu nýja fyrirtæki.
Loftur Jóhannsson, formaður Félags íslenskra
flugumferðarstjóra, segir ljóst að ef ekki náist að
leysa deiluna muni það kosta rikið verulegar upp-
hæðir í biðlaun. „Menn halda sínum heildarlaunum
samkvæmt kjarasamningi og ríkið þarf líka að
borga í lífeyrissjóðina með óbreyttum hætti út tíma-
bilið. Ríkið þarf því að greiða þeim alls rúmlega 200
milljónir í laun fyrir að gera ekki neitt.“
Að sögn Lofts hafa þegar nokkrir flugumferðar-
stjórar kosið að hætta og fara strax á biðlaun.
Sjá einnig siðu 10
FRÉTTIR » síða 4
Vel gengur að
dæla olíu úr
Wilson Muuga
„Vel hefur gengið að dæla úr skipinu og
ef allt gengur aö óskum verðum við búnir
snemma nú í morgunsárið," segir Árni
Ingimundarson, forstöðumaður þjónustu-
sviðs Olíudreifingar, um dælingu á olíu úr
Wilson Muuga á strandstað. I gær hafði
um 50.000 lítrum af olíu verið dælt úr
skipinu eða um 45 tonnum.
Dæling úr skipinu hófst upp úr
klukkan fjögur að morgni 27. desember
og stöðugt hefur verið dælt síðan þá,
enda veðurskilyrði góð ‘ Seint í gær
höfðu engir olíublautir fuglar fundist
í fjörum umhverfis strandstaðinn og
ekkert bar á olíumengun frá skipinu. Því
aukast sífellt líkur á því að hægt verði
að afstýra alvarlegu umhverfisslysi á
þessum viðkvæma stað.
Átta starfsmenn Olíudreifingar
voru um borð í skipinu og hafa
þeir verið þar frá því um hádegi í
fyrradag. Þeir ætluðu ekki frá borði
í nótt. Tíu olíuflutningamenn auk
björgunarsveitarmanna störfuðu í landi.
Á vef Morgunblaðsins var greint frá því
að þeim hafi verið færðar matarbirgðir
og nýjar hleðslur á farsíma fyrir nóttina.
Hvasst verður á strandstaðnum
í dag, suðaustan þrettán til tuttugu
metrar á sekúndu en hægir aðeins á
föstudag.
MYND/EYÞÖR
Góð skilyröi á strandstað Líkur á alvarlegu umhverfisslysi hverfandi þar sem vel gengur að dæla úr skipinu. Um fimmtíu þúsund
lítrum af olíu hafði veriö dælt úr skipinu í gær.
FOLK
» siða 38
Stendur í
„Hér er fullt af fólki
og nóg að gera enda
er þetta mikilvægasta
fjáröflun björgunar-
sveitanna," segir Harald
Gunnar Halldórsson.
ströngu
VEÐUR
Hvassviöri
Suðaustan 13 til 20 metrar
á sekúndu síðdegis en
hægara norðantil. Rigning
á Suðausturlandi og hiti 3
tiMOstig.
VINNUVELAR
Sextán síöna
sérblaö um
vinnuvélar
fylgir Blaðinu
ídag
» siður 21 -36
Þeir góöu og
þeir slœmu
Góðmennsku og afglöpum er mis-
jafnlega skipt hjá fræga fólkinu líkt
og öðrum. Oprah Winfrey barðist
gegn sjúkdómum í Afríku og Lance
Armstrong safnaði 40
milljónum króna til
góðgerðamála á árinu
sem nú er að líða.
Mel Gibson keyrði
hins vegar fullur og út
húðaði gyöingum og
Nicole Richie keyrði
í vímu eftir að hafa
lýst yfir sigri á eitur-
lyfjafíkn sinni.
svan)
tmknl
SÍÐUMÚLA 37-SÍMI 510 6000
Vilja heiðarlega
samkeppni
„Okkur þykir eiginlega bara leiðinlegt
hvernig þetta er gert,“ segir Sæunn
Kjartansdóttir, varaformaður Björgunar-
sveitarinnar Ársæls, en önnur flug-
eldasala er við hlið hennar í Gróubúð í
Grandagarði. Það eru Alvöru - Gæðaflug-
eldar, í eigu Einars Ólafssonar og bróður
hans, sem selja flugelda við hliðina á
flugeldasölu björgunarsveitarinnar.
Að sögn Sæunnar vonast hún til þess að
sambúöin verði heiðarleg en á síðasta
ári sakaði Jón Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Landsbjargar, Einar um að
villa á sér heimildir við sölu flugelda. Þá
var því haldið fram að starfsfólk hans
klæddist eins búningum og hjálpar-
sveitin. Fyrirtæki Einars gengur vel en í
fyrra rak hann níu búðir en í ár auka þeir
við sig og eru með alls þrettán sölustaði.
Sölurnar eru staðsettar víðsvegar um
borgina en einnig er hann með flugelda-
sölu í Keflavík og á Akureyri. „Þetta er
frjáls markaður og ég hef ekki orðið var
við neina óánægju,“ segir Einar.
Smiðjuuegur 4 - fií«n gata ■ Smiðjuuegur 6 - Bauð gata
Nidhraun 14 - Garéabæ