blaðið - 28.12.2006, Blaðsíða 34
50
blaðið
HVAÐ SÁSTU
20'?
ÍKína
Kvikmyndin As Good As It Gets
frá árinu 1997 meö Jack Nic-
holson í aöalhlutverki kallast
Mr. Cat Poop í Kína.
Kvikindi a tokustað
I fyrstu Indiana Jones-myndinni, Raiders of the Lost
Ark (1981), var töluvert notað af skrið- og skordýrum
en á tökustað voru notaðar um 7500 slöngur og 50
tarantúlur ásamt ýmsum öðrum kvikindum.
(Vw i
Nýi Bondinn er sexý
Ég er nýbúin að sjá Casino
Royale og hún var frábær,
segir Guðlaug
Elísabet Ólafs-
dóttir. Ég bý
náttúrlega við
mikið Bond-
æði á heimilinu
en sonurinn á
endalaust af
mynddiskum
og efni. Nýi Bondinn er sexý
og atriðið þegar hann kemur úr
sjónum er magnað. Það þarf
næstum enga Bond-gellu í
myndina.
Annars sá ég líka Mýrina og
Börn fyrir stuttu, hvort tveggja
frábærar myndir þótt ólíkar séu.
Þegar ég nefni uppáhaldskvik-
myndina mína þá nefni ég alltaf
Fifth Element af einhverjum
ástæðum. Geðveik mynd sem
kemur mér alltaf í gott skap og
Chris Rock sýnir snilldartakta
sem óður þáttastjórnandi.
í sjónvarpinu er það Greys An-
atomy og Prison Break, ann-
ars er ég ekki búin að horfa á
sjónvarp mikið í vetur. Búið að
vera svo mikið að gera. Þegar
maður horfir ekki í sjónvarp í
smátíma þá gleymir maður á
endanum að kveikja á tækinu.
Öld sjónvarpsins
er að rísa
Kvikmyndin er dauð, segir
Sigurjón Kjartansson, grínari
með meiru. öld sjónvarpsins
er að rísa og
sjónvarpið er
orðið miklu
merkilegra en
bíómynd. Sjón-
varpið hefur
meiri áhrif. Og
bíóaðsókn fer
minnkandi. Bíómyndir eru líka
orðnar svo leiðinlegar. Nýja-
brumið er í sjónvarpinu. Uppá-
haldsþættirnir mínir í sjónvarpi
eru Niptuck. Horfðu á það og
þú sannfærist. Þetta eru sjúkir
þættir um lýtalækna í Miami.
Það er langt síðan ég fór í bíó.
Ég er ekki búinn að sjá Borat
eða neitt. Síðast sá ég The
Queen með Helen Mirren á
kvikmyndahátíð og Mýrina. Ég
er eini maðurinn í heiminum
sem fannst hún ekki góð. Ann-
ars er uppáhaldskvikmyndin
mín Planes, trains and aut-
omobiles. Mynd sem ég get
alltaf horft á. Ótrúleg klassík.
Sérblað um skóla og námskeið fylgir Blaðinu þriðjudaginn 9. janúar 2007.
Fullt af spennandi hugmyndum fyrir þá sem vilja endurmennta sig á nýju ári
eða prófa nýja hluti.
Meða efnis er:
• Tungumálanámskeið
• Endurmenntun
• Tölvunámskeið
• Skapandi skrif
Aftur í nám
Barna og unglinganámskeið
Myndlistarnámskeið
Fróðleikur og gaman
Auglýsendurl pöntunartími er fyrir kl 16 Föstudaginn 5. Janúar
Allar nánari upplýsingar veita:
Magnús Gauti Hauksson S: 5103723 eða maggi@bladid.net
Kolbrún Dröfn Ragnarsdóttir S: 5103722 eða kolla@bladid.net
jmmi
Bíóárið 2006 var viðburðaríkt. Á íslandi voru kvik-
myndahátíðir fjölsóttar og heimildarmyndir sérstak-
lega vinsælar, þar sem myndir af pólitískum toga nutu
sérstakrar almannahylli. Islenskar myndir nutu vin-
sælda og gömul aðsóknarmet voru slegin í ár. Blaðið fór
á stúfana og spurði nokkra aðila í íslenskum kvikmynda-
bransa hvað hæst hafi borið í kvikmyndaheiminum á
árinu og hvað sé á döfinni á nýju ári.
Kvikmyndin Börn stóð upp úr á árinu
„Mér fannst til dæmis kvikmyndin
Börn standa upp úr á árinu“ segir
Harpa Elísa Þórsdóttir framleið-
andi. „Mér fannst myndin bæði
frumleg og skemmtileg og svo
fannst mér heimildarmyndin An
Inconvenient Truth með Al Gore
sem var á kvikmyndahátíð virkilega
góð. Hún vakti mann svo sannar-
lega til umhugsunar. Ég verð líka
að nefna kvikmyndina Volver eftir
Almodóvar. Það er alltaf hressandi
að horfa á litaglaða spænska sápu-
óperu að hætti Almodóvars og
hann klikkar aldrei á góðu handriti
og skemmtilegum og ógleym-
anlegum persónum. Svo bíð ég
spennt eftir að sjá Foreldra eftir
Ragnar Bragason á næsta ári, ég
held að hún verði mjög góð. Ann-
ars man ég ekki eftir neinni erlendri
mynd í augnablikinu en það hljóta
að koma nokkrar góðar sem vert
verður að sjá“.
«1»
Hressandi að horfa á litaglaða
spænska sápuóperu að hætti Almo-
dóvars
Svokallaðar vísinda- eða fram-
tíðarmyndir eru misgóðar enda
erfitt að gera mynd sem þykir
bæði trúverðug og skemmtileg
með geimverum hlaupandi
um. Þessar hérna þykja meðal
þeirra bestu og ættu fleiri en
Star Wars-aðdáendur að geta
haft gaman af.
Blade Runner <19821
Var upphaflega leikrit en þykir mun
skemmtilegri sem kvikmynd. Myndin
snýst um lög-
reglumann sem
Harrison Ford
leikur en hann er
í leit að fjórum
mannlingum í
Los Angeles.
*
2001: A Space
Odyssey ii968)
Þessi kvikmynd
er afsprengi
samstarfs Stanley
I Kubricks og rithöf-
undarinsArthurs
C. Clarkes. Vakti
| mikla athygli vegna
tæknibrellna.
Star Wars (i977)/Emp-
ire Strikes Back (ísso)
Það er ekki hægt
að gera topp
tíu lista með
vísindamyndum
án þess að hafa
fyrstu tvær Star
Wars-myndirnar
með á þeim lista.
Alien (1979)
Sigourney Wea-
ver vakti mikla
athygli fyrir leik
sinn í þessari
mynd sem og sú
mynd sem fólk
fékk af Iffi og
störfum geimfara.
Solaris (1972)
Þessi
mynd var
endur-
gerð árið
2002 en
frumgerðin
nýtur enn
mikillar hylli aðdáenda. Fjallar um
sálfræðing sem ferðast til fjarlægrar
þlánetu til þess að taka við af vísinda-
manni sem lætur lífið á dularfullan
4 mmutur og ný Wollywood-mynd
„Mér fannst þýska myndin 4 mínútur
sem ég sá á kvikmyndahátíð í
október flott mynd,” segir Jón Atli
Jónasson, rithöfundur og leikstjóri.
„Hún er svona eins og Amadeus ein-
hvern veginn. Fjallar um tengsl sam-
félagsins við snilligáfuna - og hvað
snilligáfan rekst oft illa á í samfélag-
inu. Sem er oft svolítið eins og að
troða þríhyrningi í gegnum ferhyrnt
gat.“
Jón Atli Jónasson mun leikstýra
sinni fyrstu bíómynd á næsta ári.
„Tökur hefjast í janúar eða febrúar,
ég þarf að bíða eftir frostinu," segir
Jón en handrit myndarinnar er
unnið upp úr bók hans sem kom út
á síðasta ári; í frostinu. „Ég ákvað
bara að kýla á að gera mynd og
hún verður í svona Nollywood-stíl,“
segir hann og hlær (Nollywood-
myndir eiga það sameiginlegt
að vera framleiddar í Nígeríu og
er háðsyrði yfir myndir gerðar af
litlum efnum). „Ég hef unnið í leik-
sýningum þar sem öllu hefur verið
kostað til, jafnvel tugum milljóna,
og vissulega er það þægilegt og
gott, en ég hef líka gert leiksýn-
ingar sem hafa kostað hundraðþús-
undkalla. Ég hef lært það að þegar
góðir hlutir eru gerðir er aldrei
hægt að þvinga niðurstöðuna fram.
Lykillinn að góðri niðurstöðu er að
tryggja gott fólk með sér.
Fólk samþykkir góðar myndir þótt
þær séu gerðar af litlum efnum. Til
dæmis má nefna gamla íslenska
Jón Atli leikstýrir nýrri íslenskri kvik-
mynd á nýju ári
mynd er nefnist Hrafninn flýgur.
Barn síns tíma þar sem leikstjórinn
hafði úr litlu að moða. En Hrafn
vann stórgott handrit úr íslend-
ingasögunum, betra handrit en
að mörgum stórmyndum dagsins
í dag, svo sem Tróju og Alexander.
Áhorfendur taka ekki eftir bifreið-
inni í einu atriðanna.“
„Mér fannst frumsýningar á
íslenskum kvikmyndum gefa
góð fyrirheit um framtíð íslensks
kvikmyndaiðnaðar,” segir Hrönn
Marinósdóttir, skipuleggjandi
alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í
Reykjavík. „Allt stórgóðar myndir,”
bætir hún við. „Brokeback Mo-
untain sem var sýnd í byrjun árs
fannst mér afar góð. Annars fannst
mér þýska kvikmyndin Fjórar mín-
útur, átakamyndin Grbavica, Sherry
Baby og Shortbus standa upp úr á
kvikmyndahátíð. Þá vill ég einnig
nefna dönsku myndina Drommen
sem er enn ein rósin í hnappagat
danskra kvikmyndagerðarmanna
en þessi mynd sló öll aðsóknarmet
í Danmörku, Volver eftir Almodóvar
sem bregst ekki bogalistin fremur
en fyrri daginn, Drottninguna sem
er mjög eftirminnileg því leikur
Helen Mirren er ógleymanlegur og
svo myndina Taxidermia sem er
mjög eftirminnileg mynd ekki síst
fyrir gott handrit. Áberandi á árinu
er hversu margar heimildarmyndir
náðu vinsældum og þá ber helst
að nefna myndina hans A1 Gore
Inconvenient Truth og The Road to
Guantanamo.”
Á næsta ári hefst starfsemi
kvikmyndaklúbbsins Fjalakatt-
arins íTjarnarbíói. „Við keyptum
Leikur Helen Mirren í Drottningunni
er ógleymanlegur
sýningarvél og ætlum að vera
með reglulega kvikmyndaviðburði.
Sýna klassískar myndir sem ungu
kynslóðirnar hafa ef til vill misst af.
Kynna kvikmyndir landa og verk
eftir leikstjóra. Nú þurfum við bara
að gera við og bæta Tjarnarbíó.
Ástand hússins er ekki nógu gott.”