blaðið - 28.12.2006, Page 4
4
FIMMTUDAGUR 28. DESEMBER 2006
blaðið
INNLENT
LÖGREGLAN
Ók undir áhrifum lyfja
Lögreglan á Selfossi stöðvaði ökumann grun-
aðan um að aka undir áhrifum lyfja. Lögreglan
á Selfossi var svo kölluð til þegar bíll lenti út
af vegi í Rangárvallasýslu á aðfangadagskvöld.
Sprakk á öllum fjórum hjólum bílsins.
VERSLUN
LÖGREGLA
Nakinn í miðbænum
Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn á öðrum í jólum.
Ástæðan var sú að hann var að spóka sig um götur bæjar-
ins nakinn. Gott veður var á höfuðborgarsvæðinu yfir jólin
en ekki er talið að blíðan ein hafi orðið til þess að maður-
inn fækkaði fötum. Honum var sleppt, fullklæddum.
Margir að skipta jólagjöfum
Töluverður erill var í verslunarmiðstöðvum höfuðborgarinnar í gær
þar sem fjöldi fólks var að skipta jólagjöfum. Sumar verslanir voru
þó enn lokaðar vegna vörutalningar. Utsölur hefjast formlega í
Kringlunni og í Smáralind í byrjun janúar, en í IKEA og fleiri versl-
unum hófust þær í gær og standa fram til loka næsta mánaðar.
Straumur Burðarás:
Jón Ásgeir úr
stjórn bankans
Jón Ásgeir Jóhannesson,
forstjóri Baugs, og Hannes
Smárason, forstjóri FL Group,
hafa sagt sig úr stjórn Straums
Burðaráss Fjárfestingarbanka
hf. samkvæmt tilkynningu sem
send var Kauphöllinni í gær.
FL Group seldi 22,6 prósent
af um 26 prósenta eignarhlut
sínum sínum í Straumi Burðarási
um miðjan desembermánuð
til innlendra og erlendra
fjárfesta með Finn Ingólfsson
í broddi fylkingar. Var
kaupverðið um 42 milljarðar.
Fídel Kastró:
Ekki með
krabbamein
José Luis Garcia Sabrido,
spænskur skurðlæknir, sagði
á fréttamannafundi í gær að
Fídel Kastró, forseti Kúbu, væri
ekki með krabbamein og að
hann væri að ná sér effir aðgerð
sem var framkvæmd i sumar.
Sabrido sagði Kastró hafa
verið með meltingartruflanir, en
bandarísk stjórnvöld hafa haldið
því statt og stöðugt fram að forset-
inn þjáist af ólæknandi krabba-
meini. Þá sagði hann að bati
Kastrós væri slíkur að hann ætti
að geta tekið við stjórnartaum-
unum áður en langt um líður.
Nýjar lóðir Reykjavíkur við Úlfarsfell eftir áramót:
Meirihluti borgarinnar
lofaði út í loftið
■ Veriö aö semja reglur um úthlutun ■ Lóðirnar ekki boönar upp ■ Umhugsunarefni fyrir kjósendur
Eftir Trausta Hafsteinsson
trausti@bladid.net
„Við gáfum það út að úthlutun nýrra
lóða færi fram öðrum hvorum
megin við áramótin. Við erum
að undirbúa það og finna leiðir
til að koma í veg fyrir að lóðirnar
fari í brask. Við viljum tryggja að
þær komist í hendur þeirra sem
vilja eiga heima í Reykjavík,“ segir
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borg-
arstjóri Reykjavíkur. Hann segir
að upphaflega hafi verið gert ráð
fyrir fjögur hundruð lóðum á Úlf-
arsárdalssvæðinu en þeim fækki
við breytingar sem gerðar voru á
skipulaginu.
Dagur B. Eggertsson, borgarfull-
trúi Samfylkingarinnar, segist hafa
óskað eftir upplýsingum um lóða-
úthlutanir borgar-
innar en
að öll svör hafi verið loðin hingað
til. „Við viljum gæta málefnalegra
sjónarmiða og jafnræðis við úthlut-
anir. Að fá svör um þessi mál er eins
og að elta sápu í baði,“ segir Dagur.
Fara ekki á uppboð
Aðspurður leggur Vilhjálmur á
það áherslu að ekki verði braskað
með lóðirnar og að breytingar á
skipulagi hafi tafið fyrir úthlut-
unum. Hann segir þær til þess
fallnar að mæta aukinni eftirspurn
eftir sérbýlislóðum. „Við erum að
fjölga sérbýlislóðum á svæðinu enda
er fólk mest að sækjast eftir slíkum
lóðum. Það verður fast verð á lóð-
unum og þær fara ekki á uppboð. Ég
get ekki gefið upp núna hvert verðið
verður en það verður töluvert lægra
en hæstu verð sem
mennhafa verið að
bjóða,
Að fá svör um
þessimáler
eins og að elta
sápuíbaði
Dagur B. Eggertsson,
borgarfulltrúl
Samfylkingarinnar
Úthlutun tafist Breytingar á skipulagi hafa
tafið fyrir úthlutun á nýjum lóðum Reykjavik-
urborgar 1 Úlfarsárlandinu. Sérbýlislóðum
verður fjölgað en minnihluti borgarstjórnar er
ósáttur við loðin svör.
Lóðirnar fari til
þeirra sem vilja
eiga heima í
Reykjavík
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson,
borgarstjóri
segir Vilhjálmur. „í okkar skil-
málum viljum við tryggja það að
fólk sem vill búa í Reykjavík fái
þessar lóðir. Verið er að vinna reglur
sem tryggja það eins og kostur er.“
Umhugsunarefni fyrir kjósendur
Dagur bendir á að lóðaúthlutanir
borgarinnar séu eitt af mörgum
kosningaloforðumSjálfstæðisflokks
og Framsóknarflokks fyrir síðustu
kosningar sem ekki hafi verið staðið
við. Hann segir flokkana hafa lofað
út í loftið og undrast hvers vegna
lítið hafi bólað á áframhaldandi
skipulags-
vinnu með sérbýlislóðir frá síðasta
kjörtímabili.
„Á síðasta tímabili voru í undir-
búningi þrjú hundruð sérbýlislóðir
víða um borgina sem áttu að koma
til framkvæmda nú á haustmán-
uðum. Lítið hefur bólað á áfram-
haldandi vinnu með þær lóðir,“
segir Dagur. „Á kosningavetri
hlýtur það að vera umhugsunar-
efni fyrir kjósendur þegar flokkar
trekkja upp kosningapakka og eru
svo fyrstir manna til að hlaupa í
skjól eftir kosningar. Þeir höfðu
stór orð um framkvæmdir og lóða-
úthlutanir en lítið hefur gerst.“
- ........................ *
i Atvinnuauglýsing
Lager / Útkeyrsla
Vantar kurteisan og lipran starfsmann í lager
og útkeyrslustarf. Góð laun fyrir réttan aðila.
Sölustarf
Fjölbreytt og Skemmtilegt starf. Viðkomandi
þarf að hafa reynslu af sölustörfum og hafa
góða framkomu. Góð laun.
Umsóknir sendist á filter@filter.is
^ÖllfrjgÉÍ
-hreinlega sterkari
Tímaritið ísafold velur íslending ársins:
Ásta Lovísa varð fyrir valinu
Ásta Lovísa Vilhjálmsdóttir
var í gær kjörin íslendingur árs-
ins af tímaritinu Isafold, en hún
er ung, þriggja barna móðir sem
glímir við krabbamein.
„Það eru tvær meginástæður
fyrir því að hún var valin af rit-
stjórn ísafoldar. I fyrsta lagi af
því að hún gefur fólki innsýn í
þessa erfiðu baráttu á blogginu
sínu þar sem hún lýsir bæði erf-
iðleikum sinum og bjartsýni, og í
öðru lagi af því að hún er bloggari
ársins og verðugur fulltrúi sívax-
andi hóps bloggara,“ segir Reynir
Traustason, ritstjóri ísafoidar.
Valið var kynnt í Iðusölum í gær
klukkan 17. Meðal verðlauna
sem Ásta Lovísa hlaut voru ferð
með börnunum og fylgdarmanni
til Tenerife frá Sumarferðum, heilsuræktarstöðvar Iceland Spa
250.000 króna farareyrir og kort í and Fitness.
Reynir Trausta-
son Ritstjóri
Isafoldar valdi
Islending ársins.