blaðið - 28.12.2006, Qupperneq 6
6
FIMMTUDAGUR 28. DESEMBER 2006
blaðið
INNLENT
LÖGREGLA
Jólaeldur í Hafnarfirði
Eldur kviknaöi í aöventuljósi aö morgni
jóladags í suðurbæ Hafnarfjarðar. Mikið sót
myndaðist við brunann en heimilisfólk réð
niðurlögum eldsins áður en hann breiddist út.
Talsverðar skemmdir urðu vegna sóts og reyks.
SKEMMTANAHALD
Skemmtiæði í Grindavík
Lögreglan í Grindavík þurfti að hafa afskipti af skemmti-
stað einum í Grindavík á mánudag. Ástæðan var sú að
ólöglegt er að hafa skemmtistaði opna frá klukkan sex á
aðfangadag til sex að morgni annan í jólum. Var staðnum
því gert að loka og skemmtiþyrstum bæjarbúum vísað frá.
INNBROT
Talsvert brotist inn
Brotist var inn í tvo söluturna í Hafnarfirði, vélsmiðju og í heima-
hús í Garðabæ á jólanótt og jóladag. Lögreglan handtók tvo
menn á þriðjudag og játuðu þeir brot sín. Hluta af þýfinu hefur
verið komið til skila. Mennirnir brutust ekki inn í vélsmiðjuna og
er það mái enn í rannsókn hjá lögreglunni í Hafnarfirði.
Konukot:
Fimm gistu
á jólanótt
Fimm konur leituðu skjóls í
Konukoti, gistiskýli Reykjavík-
urdeildar Rauða kross Islands
fyrir heimilislausar konur, á
aðfangadagskvöld.
Alla jafna er einungis opið þar
frá klukkan sjö á kvöldin til tíu
á morgnana, en yfir hátíðarnar
er opið þar allan sólarhringinn.
Um 30 sjálfboðaliðar hafa lagt
starfsmönnum Konukots lið í
desember og vel hefur gengið að
manna vaktir.
Hvíta-Rússland:
Hóta Gazprom
Stjórnvöld í Hvíta-Rússlandi
hótuðu því í gær að hugsanlega
yrði skrúfað fyrir gasflutning til
Evrópu, ef rússneska fyrirtækið
Gazprom lokar á gasflutning
til Hvíta-Rússlands vegna deilu
um verð á gasi til landsins.
Semashko, forsætisráðherra
Hvíta-Rússlands, sagði löndin
vera háð hvort öðru í gasdreif-
ingu. „Við erum ekki með
samning um söluna og þeir
hafa ekki samning um dreif-
inguna, en hún er um 22 pró-
sent af útflutningi Gazproms,“
sagði Semashko á blaðamanna-
fundi í gær.
Hjálparsveit biður um sanngjarna samkeppni:
Neistaflug í flugeldasölu
■ Keppinauturinn býst við að sér verði bjargað ■ Óttast um framtíð tekjulindar hjálparsveitarinnar
Eftir Val Grettisson
valur@bladid.net
„Okkur þykir eiginlega bara leiðin-
legt hvernig þetta er gert,“ segir
Sæunn Kjartansdóttir, varafor-
maður Björgunarsveitarinnar Ár-
sæls, en önnur flugeldasala er við
hlið hennar í Gróubúð í Granda-
garði. Það eru Alvöru - Gæðaflug-
eldar, í einkaeigu Einars Ólafs-
sonar og bróður hans, sem selja
flugelda við hliðina á flugeldasölu
björgunarsveitarinnar.
Að sögn Sæunnar vonast hún til
þess að sambúðin verði heiðarleg en
á síðasta ári sakaði Jón Gunnarsson,
framkvæmdastjóri Landsbjargar,
Einar um að villa á sér heimildir
við sölu flugelda. Þar var því haldið
fram að starfsfólk hans klæddist
eins búningum og hjálparsveitin.
Einnig sagði hann að auglýsinga-
skiltin hjá Einari hefðu verið alveg
eins og hjá Hjálparsveitunum. Einar
hafnaði þessu alfarið á sínum tíma.
„Maður gæti haldið að eins fari
fyrir okkur,“ segir Sæunn en vill
þó ekki vera með aðdróttanir enda
ekki byrjað að selja flugelda fyrr
en í dag. Aftur á móti sé staðsetn-
ingin óþægileg því aka þarf fram-
hjá sölu Einars til þess að komast
til björgunarsveitarinnar. Hún ótt-
ast að hugsanlega geti komið upp
misskilningur.
„Við þurftum að vera einhvers
staðar þarna í hverfinu og þetta
reyndist hentugasta húsnæðið," segir
Einar Ólafsson, framkvæmdastjóri
og annar eigenda Alvöru - Gæðaflug-
elda. Hann segir að þeir hafi reynt
að finna önnur húsnæði og leituðu
til að mynda í JL húsið. Það hafi hins-
vegar ekki uppfyllt þau skilyrði sem
slík söluhúsnæði þurfa að gera.
Fyrirtæki Einars gengur vel en í
fy rra rak hann níu búðir en í ár auka
þeir við sig og eru með alls þrettán
sölustaði. Söíurnar eru staðsettar
víðsvegar um borgina en einnig er
hann með flugeldasölu í Keflavík og
á Akureyri. Aðspurður hvort hann
telji það siðferðislega rangt að selja
flugelda og fara í samkeppni við
bjögunarsveitirnar svarar hann:
,Þetta er frjáls markaður og ég hef
ekki orðið var við neina óánægju.“
Sjálfur hefur Einar aldrei þurft
að leita aðstoðar björgunarsveita.
Hann segist ekki trúa því að menn
verði fúlir vegna smásamkeppni og
býst við að sér verði bjargað ef til
neyðarkalls komi.
Bragi Björnsson, aðstoðarskáta-
höfðingi og lögmaður, segir starf
björgunarsveita standa og falla með
þessari fjáröflun. „Við óttumst
um framtíð þessarar tekjulindar
því samkeppnin skaðar okkur og
mun skaða,“ segir Björn. Hann seg-
ist tjá sig sem almennur borgari og
telja framferði einkaaðila vera til
skammar.
Hann segir það ekki endilega
réttu lausnina að gefa björgunar-
sveitum einkaleyfi á flugeldasölu.
Frekar vill hann beina þeim orðum
til fólks að styðja þá sem þurfa á
fénu að halda.
Guðjón Bergmann heldur námskeið til að hjálpa fólki
að hætta að reykja, í síðasta sinn, dagana 5. og 6. janúar 2007.
Skráning og upplýsingar á www.reyklaus.is / 6go-i8i8
SÖLU...
SMÁAUGLÝSINGAR
blaðiðs
SMAAUGLYS1N6AR@BUD1D.NET
Flatbökukveðja send með SMS:
Mistök í jólakveðju
Eftir Trausta Salvar Kristjánsson
traustis@bladid.net
Um 80.000 manns fengu senda
jólakveðju frá Dominos í SMS-formi
fram eftir kvöldi á aðfangadag. For-
maður Neytendasamtakanna, Jó-
hannes Gunnarsson, segir kveðjuna
aðeins vera dulbúna auglýsingu og
kallar eftir hertari aðgerðum gegn
misnotkun persónuupplýsinga.
Það sama gerir talsmaður neytenda,
Gísli Tryggvason, sem berst fyrir
einföldun reglnanna: „Nú eru við
Iýði reglur sem krefjast þess af neyt-
endum að þeir þurfi að skrá sig sér-
staklega vilji þeir losna við áróður,
tilboð og hverskyns tilkynningar
í SMS-formi. Einfaldara væri hins-
vegar að þeir sem vilja endilega fá
slík smáskilaboð myndu skrá sig
í staðinn og hinir fengju að sleppa
við það.“
Baldur Baldursson, framkvæmda-
stjóri Dominos, segir mistökaf hálfu
Vodafone hafa orðið til þess að skila-
boðin voru send eftir klukkan 14.
„Ætlunin var að senda jólakveðju til
viðskiptavina okkar milli klukkan
10 og 14“
Gísli Þorsteinsson, upplýsingafull-
trúi Vodafone, gaf frá sér yfirlýsingu
vegna málsins þar sem Vodafone
harmar að SMS-jóIakveðjan hafi
borist viðskiptavinum fyrirtækisins
á aðfangadagskvöld. „Vegna álags í
kerfi Vodafone fékk hluti þeirra jóla-
kveðjuna um kvöldið."