blaðið - 28.12.2006, Qupperneq 10
10
FIMMTUDAGUR 28. DESEMBER 2006
blaðiö
EGYPTALAND I
Tíu látnir vegna fuglaflensu
UTAN ÚR HEIMI
Tíu hafa nú látist af völdum fuglaflensu í Egyptalandi í
ár, par af þrír í þessari viku. Talsmenn Alþjóðaheilbrigö-
ismálastofnunarinnar greindu-frá því að margir hinna
látnu hafi tilheyrt sömu fjölskyldu sem ræktaði endur og
hafi smitast þegar fuglum var slátrað.
Þúsundir á flótta
Hjálparstarfsmenn í Indónesíu eiga erfitt með að
koma hjálpargögnum til þeirra þúsunda sem misst
u heimili sín í flóðum í norðurhluta Súmötru. Talið
er að rúmlega hundrað hafi látist, hundruð slasast
og um 400 þúsund misst heimili sín í flóðunum.
Harry prins til Iraks?
Harry Bretaprins er mögulega á leiðinni til íraks
með hersveit sinni á vormánuðum, en áætlað er
að hún dvelji í landinu í sex mánuði. Harry vill fara
með hersveitinni, en varnarmálaráðherra Bret-
lands segir að eftir eigi að taka ákvörðun um slíkt.
Kom fyrir gasbyssu:
Fuglahræða
sýknuð
Héraðsdómur Vestfjarða hefur
sýknað mann af ákæru fyrir að
koma fyrir fuglahræðu og hleypa
af gasbyssu sem átti að fæla burt
erni og hindra þá í að verpa í
hreiðurstæði á Breiðafjarðareyju.
Ákærði bar við að hann vissi
ekki til aað ernir héldu til á
svæðinu og sagðist vera að verj-
ast svartbak og flökkuerni með
gasbyssunni. Þó líklegt þyki að
arnarhreiður hafi verið á svæðinu
var ekki hægt að sanna það gegn
neitun mannsins svo hafið væri
yfir skynsamlegan vafa og var
hann því sýknaður af ákærunni.
Bandaríkin:
Brown á sviði
Almenningi verður leyft að
kveðja bandaríska söngvarann
James Brown f hinsta sinn í
dag. Kista Brown mun liggja
á sviðinu í Apollo leikhúsinu
í Harlem í New York-borg, þar
sem söngvarinn hóf feril sinn.
„Það hefði í raun verið óhugs-
andi að útför manns sem lifði
svo stórbrotnu lífi færi fram í
kyrrþey,“ segir presturinn A1
Sharpton, náinn vinur Browns.
Söngvarinn lést úr hjartabil-
un á jóladag, en hann verður
grafinn á morgun í fæðingarbæ
sínum Augusta í Georgíu-rfki.
Viðbúnaðaráætlun harðlega
gagnrýnd Flugumferðarstjórar
fá réttindi á mettíma.
Myndir/Brynjar Gauti
Ríkið greiðir flugumferðarstjórum biðlaun:
200 milljónir króna fyrir
að gera ekki neitt
■ Viðbúnaðaráætlun stefnir flugöryggi í hættu ■ Óskammfeilið að vilja loka landinu
Eftir Höskuld Kára Schram
hoskuldur@bladid.net
Ríkið þarf að greiða flugumferðar-
stjórum rúmlega 200 milljónir króna
í biðlaun náist ekki sátt í deilu þeirra
við flugmálayfirvöld. Um sextíu
flugumferðarstjórar hætta að öllu
óbreyttu störfum um næstu áramót
en um þrjátíu þeirra eiga rétt á biðla-
unum í allt að eitt ár.
Flugmálastjórn hefur nú sett af
stað viðbúnaðaráætlun til að koma í
veg fyrir að flugumferð lamist, meðal
annars með því að setja réttindalausa
flugumferðarstjóra í skyndiþjálfun.
FormaðurFélagsíslenskraflugumferð-
arstjóra segir þetta stefna flugöryggi í
voða. í sama streng tekur formaður
Alþjóðasamtaka flugumferðarstjóra.
Flugmálastjóri vísar gagnrýni á bug og
segir áætlunina hafa hlotið samþykki
Alþjóðaflugmálastofnunarinnar.
„Okkur líst illa á þessa viðbúnaðar-
áætlun,“ segir Loftur Jóhannsson, for-
maður Félags íslenskra flugumferðar-
stjóra. „Það er ástæða fyrir því að menn
fara í langa þjálfun fyrir þessi störf."
Flugumferðarstjórn hefur hafið
þjálfun á flugumferðarstjórum til
að bregðast við mögulegri manneklu
um næstu áramót. Er um að ræða
flugumferðarstjóra sem ekki hafa
sinnt flugumferðarstjórn í langan
tíma.
Flugstoðir ohf. taka við rekstri flug-
umferðarstjórnar um áramótin en
um 60 flugumferðarstjórar hafa ekki
viljað skrifa undir ráðningarsamn-
ing hjá hinu nýja fyrirtæki. Telja þeir
breytingar á rekstrarformi kalla á
nýja kjarasamninga og að áunnum
lífeyrisréttindum sé stefnt í voða.
Loftur segir viðbúnaðaráætlun
flugumferðarstjórnar stórhættulega
og bendir á að flugumferðarstjórar
með full réttindi þurfi margra mán-
aðaþjálfun áður en þeir taki til starfa.
„Þetta er stórhættulegt. Ég leyfi mér
að halda því fram að Alþjóðaflug-
málastofnunin hafi hvorki samþykkt
þetta né taki ábyrgð á þessu.“
Marc Baumgartner, formaður Al-
þjóðasamtaka flugumferðarstjóra,
tekur undir orð Lofts og segir það
valda áhyggjum að menn með litla
þjálfun séu látnir stjórna flugumferð.
„Fólk sem ekki hefur unnið í mörg
ár sem flugumferðarstjórar er nú á
nokkrum dögum að fá þjálfun sem
undir venjulegum kringumstæðum
á að taka marga mánuði. Islenska
ríkið þarf að sýna fram á að það sé
gætt fyllsta öryggis í flugmálum ann-
ars verður nauðsynlegt fyrir okkur
að vekja athygli á ástandinu hjá al-
þjóða flugmálayfirvöldum.“
Engir fundir hafa verið boðaðir
milli deiluaðila og því mun viðbún-
aðaráætlunin að öllu óbreyttu taka
gildi um næstu áramót. Loftur segir
einboðið að miklar raskanir verði á
flugi og bendir ennfremur á að ríkið
þurfi að greiða flugumferðarstjórum
biðlaun. „Stór hluti þeirra sem láta
af störfum um næstu áramót á rétt á
biðlaunum í allt að eitt ár. Það þýðir
að ríkið þarf að greiða þeim alls rúm-
lega 200 milljónir í laun fyrir að gera
ekki neitt.“
Þorgeir Pálsson, flugmálastjóri og
verðandi forstjóri Flugstoða, segir frá-
leitt að halda því fram að flugöryggi
sé stefnt í hættu. „Þetta eru menn
með áratuga reynslu og gjörþekkja
viðfangsefnið. Þeir eru einfaldlega að
virkja sln réttindi því þeir hafa verið
í stjórnunar- og verkefnastörfum
en ekki við eiginlega flugumferðar-
stjórn. Að auki erum við líka með
flugumferðarstjóra með virk réttindi
þannig að þetta verður bara viðbót.“
Þorgeir segir þó viðbúið að draga
muni úr þjónustu takist ekki að leysa
deiluna fyrir áramót. „Þetta kemur
fyrst og fremst niður á þjónustustig-
inu og það verður minni sveigjanleiki
en flug mun ekki leggjast af.“
Að sögn Þorgeirs hefur viðbúnað-
aráætlunin fengið samþykki hjá Al-
þjóðaflugmálastofnuninni og verður
hún unnin í samvinnu við nágranna-
þjóðir. Hann segir enga ástæðu til
að funda með flugumferðarstjórum.
„ Stjórn Flugstoða hefur veitt allar
nauðsynlegar tryggingar varðandi
lífeyrissjóðsmál þannig að það er
ekkert að funda um. Mér finnst það
hins vegar óskammfeilið hjá stjórn ís-
lenskra flugumferðarstjóra að halda
að þeir geti lokað landinu eins og það
sé bara sjálfsagður hlutur."
HundagaRerí
Smáhundaræktun
Hundaræktin að Dalsmynni óskar landsmönnum öllum gleóilegra jóla og farsældar á komandi ári
með þökk fyrir viðskiptin á árinu sem er aö líða megi guö og gæfan 'fylgja ykkur.
Við ræktum: Papillon, Chihuahua, Pomeranian, Japanese Chin, Pug, French bulldog, Cavalier King Charles, Spaniel, Miniature Pinscher, Miniature Púðli, Pekingese, Silky Terrier
Dalsmynni *116 Reykjavík, Sími:566-8417 Fax:5668457 hundagalleri@simnet.is, www.dalsmynni.is