blaðið - 28.12.2006, Síða 24
40
IUR 28. DESEMBER 2006
blaðið
-A
Helgi og hljoðfæraleikararnir
Helgi og hljoðfæraleikararmr halda sina arlegu jolatonleika i Freyvangi
í Eyjafjarðarsveit föstudaginn 29. desember klukkan 21. Piltarnir
lofa góðri skemmtun í sveitinni og um að gera að verja með þeim
kvöldstund.
Staðsetning Spessa
Nu eru siðustu forvöð að sja Locations, Ijosmyndasyningu Spessa, í Hafnarhúsi en
henni lýkur 30. desember. Á sýningunni er fyrst og fremst að finna myndir af stöð-
um sem bera ummerki mannfólksins, stöðum þar sem fólk hefur komið sér fyrir,
hvort sem er í bæ, sveit eða uppi á fjöllum.
Vínartónlist
í Salnum
Árlegir Vínartónleikar verða í
TlBRÁ, tónleikaröð Kópavogs, í
Salnum laugardaginn 13. janúar
klukkan 16.
Þetta er þriðja árið í röð sem
Salonsveit Sigurðar Ingva
Snorrasonar fagnar nýju ári með
Vínartónleikum í Salnum. Flytj-
endur að þessu sinni eru hjónin
Hanna Dóra Sturludóttir sópran
og Lothar Odinius tenór ásamt
Salonhljómsveit Sigurðar Ingva
Snorrasonar, sem er skipuð þeim
Sigrúnu Eðvaldsdóttur konsert-
meistara, Pálínu Árnadóttur fiðlu-
leikara, Bryndísi Höllu Gylfadóttur
sellóleikara, Hávarði Tryggvasyni
kontrabassaleikara, Martial Nar-
deau flautuleikara, Sigurði Ingva
Snorrasyni klarínettleikara, Önnu
Guðnýju Guðmundsdóttur píanó-
leikara og Pétri Grétarssyni sem
leikur á slagverkshljóðfæri.
Má telja víst að færri komist
að en vilja og því um að gera
fyrir unnendur Vínartónlistar að
tryggja sér miða hið fyrsta.
Umskipti Kafka
Umskiptin eftir Franz Kafka er
vafalaust ein frægasta bók sem
rituð hefur verið á þýska tungu.
Nú er komin út ný þýðing verks-
ins eftir þá Ástráð Eysteinsson
og Eystein Þorvaldsson sem
áður hafa þýtt fjölmörg verk eftir
Kafka. Þetta er tvímála útgáfa
í fjölmála ritröð Stofnunar Vig-
dísar Finnbogadóttur og er þýski
textinn samhliða þýðingunni.
Þýðendur hafa einnig ritað ýtar-
legan inngang auk bókarauka
með spurningum og verkefnum
fyrir þá sem vilja rýna enn betur
í textann.
Hvað bar hæst á árinu?
Það er góður siður á þessum árstíma að rifja upp það sem hæst bar á árinu sem nú er senn liðið í aldanna
skaut. Það er gott að minnast þess hvað vakti gleði í hjarta og ró í huga og hvað það var sem síður vakti kát-
ínu. Blaðið leitaði til þriggja einstaklinga og spurði þá út í hvað þeim þótti bera hæst í heimi tónlistar, bóka
og myndlistar á árinu.
Frábært tónleikaár
Á árinu stofnaði Valgeir Sigurðsson útgáfufyr-
irtækið Bedroom Community og að mínu mati
eru tvær bestu plöturnar sem komu út hér á
landi runnar undan hans rifjum. Þetta eru plöt-
ur þeirra Nico Muhly og Ben Frost. Þær eru báð-
ar mjög framsæknar og tilraunakenndar en fyrst
og fremst ákaflega fallegar og áheyrilegar. Val-
geir ætlar sjálfur að senda frá sér plötu á þessu
ári og ég er mjög spenntur að heyra hana. Þetta
var frábært tónleikaár og fjölmargir erlendir tón-
listarmenn sem sóttu okkur heim. Ég er mikill
Belle & Sebastian-aðdáandi og það var frábært
að fara til Borgarfjarðar eystra og sjá þau þar í
sumar. Þar ríkti skemmtileg stemning og allir
komnir saman í þeim eina tilgangi að skemmta
sér með Belle & Sebastian. Tónleikarnir með
Sufjan Stevens og Joanna Newsom voru einnig
frábærir og ég varð eiginlega ekki fyrir vonbrigð-
um með neina tónleika sem ég sá hér heima á ár-
inu. Einn af stærstu mínusunum við árið er að
tveir helstu tónleikastaðir borgarinnar, Gaukur-
inn og Grand Rokk, hafa lokað sínum dyrum og
eins og er er enginn tónleikastaður sem ræður
vel við smærri tónleika. Ég skora því á veitinga-
menn borgarinnar eða borgaryfirvöld að bæta úr
þessu ófremdarástandi.
Breytingar í loftinu
Mér finnst heilmiklar breytingar liggja í
loftinu í myndlistinni hér á landi og ég myndi
segja að þær einkenndu árið sem er að líða. Mér
finnst sérstaklega jákvætt að Listasafn Reykja-
víkur setti upp metnaðarfullar sýningar með
ungum, íslenskum myndlistarmönnum. Þar
bar hæst Pakkhús postulanna í Hafnarhúsi og
sýning Þórdísar Aðalsteinsdóttur á Kjarvals-
stöðum. Safnið nýtti sér það tækifæri til að gera
stórar sýningar með efnilegu fólki og það var
alveg kominn tími til þess hér á landi. Nýlista-
safnið var líka að breyta sinni stefnu á árinu og
virðist hafa skýrari línur en áður fyrir hvað það
stendur og er að móta sína stefnu á markvissari
hátt en áður. Ég var einnig mjög hrifin af sýn-
ingu Birgis Andréssonar og Steingríms Eyfjörð
í Listasafni Islands í sumar og þótti þeim félög-
um takast mjög vel upp. Ég er meðlimur í Kling
og Bang og í sumar fengum við strákana í Gelit-
in til að sýna hjá okkur. Sú sýning hafði mikil
áhrif á mig. ísland býður upp á afslappað and-
rúmsloft og bróðerni sem mér fannst nýtast vel
í þeirri sýningu. Við fengum unga listamenn til
að vinna með þeim að sýningunni og mér þótti
það takast sérlega vel. Það er alltaf gaman þeg-
ar svona blöndun á sér stað og tenging myndast
við fólkið í borginni.
Hekla Dögg Jónsdóttir myndlistamaður
Fengur að Barokk-
meistaranum
Fyrir mig sem mikla áhugamanneskju um 17.
öldina var þetta ár mjög fengsælt. Fyrst ber þar að
telja stórvirki Margrétar Eggertsdóttur, Barokk-
meistarann, en þar fjallar hún á nýstárlegan hátt
um ævi og skáldskap Hallgríms Péturssonar. Bók-
in er ákaflega skemmtileg aflestrar og heilmikill
fengur að henni fyrir alla þá sem áhuga hafa á
þessum tíma í sögu þjóðarinnar. Margrét sýnir
þarna vel hversu lært skáld Hallgrímur Pétursson
var og að hann orti í alþjóðlegu samhengi. Bókin
er líka svo vel skrifuð að maður þarf alls ekki að
vera innvígður í fræðin til þess að njóta hennar.
Á árinu kom einnig út Saga biskupsstólanna sem
er heilmikið verk. Ég hef verið að glugga í hana
meðfram öðru og sérstaklega einblínt á sögu Hóla-
stóls og ýmislegt sem lýtur að 17. öldinni. Þarna
liggur gríðarleg heimildavinna á bak við og kem-
ur sér ákaflega vel fyrir okkur sem vinnum með
þetta tímabil í okkar verkum. Inn á milli fræði-
bókanna les ég alltaf skáldverk og á árinu hef ég
lesið margar áhrifamiklar bækur sem skrifaðar
eru af mönnum frá Mið-Austurlöndum. Bókin
Flugdrekahlauparinn eftir Khaled Hosseini hafði
til dæmis mikil áhrif á mig en hún kom út í ís-
lenskri þýðingu í fyrra.
fflverni
Pro-Gastro 8, eru GÓÐAR FRÉTTIR
fyrir meltinguna og þarmaflóruna!
1 hylki 2svar á dag fyrir máltíð og
minnst eitt glas af vatni er gott ráð
til losna við flest meltingaróþægindi.
Fáanlegt í flestum apótekum, heilsu-
búðum, Hagkaup og Fjarðarkaup.
Margrét Sara sýnir í Safni
Listalífið leggst síður en svo í
dvala milli jóla og nýárs en meðal
þess sem hæst ber er metnaðarfull-
ur dansgjörningur sem fluttur verð-
ur í Safni, Laugavegi 37, föstudaginn
29. desember. Verkið ber titilinn
When I say Bad I mean Seriously og
er samið af listakonunni Margréti
Söru Guðjónsdóttur sem búsett er
í Amsterdam og Berlín. Þar hefur
hún starfað síðustu tvö ár með dans-
leikhúsflokki Constönzu Macras en
Macras hefur verið lýst sem arftaka
Pinu Bausch og þykir standa mjög
framarlega í heimi dansleikhússins
ídag.
Um þessar mundir starfar Margr-
ét Sara aðallega með dansflokki
hinnar virtu Gisele Vienne í Berl-
ín og mun sýna í verki hennar
Kindertotenlieder víða í Evrópu
og Austurlöndum fjær á komandi
ári. Margrét mun jafnframt halda
áfram að sýna samstarfsverk sitt,
Ernu Ómarsdóttur og Jóhanns Jó-
hannssonar; Mysteries of Love á
árinu en verkið var frumsýnt fyrr á
þessu ári á danslistahátíðinni í Av-
ignon í Frakklandi.
Tónlistarmaðurinn David Kiers
og dansarinn Margrét Bjarnadóttir
liðsinna Margréti Söru við flutn-
inginn á gjörningnum í Safni. Um
heims-frumsýningu á verkinu er
að ræða. Verkið hefur þegar verið
pantað til nokkurra sýningarstaða
í Evrópu og verður því sýnt víða
erlendis á næsta ári. Aðeins verður
ein sýning á verkinu í Safni og því
ástæða til að hvetja listunnendur til
að mæta í Safn föstudaginn 29. des-
ember klukkan 18:00;
N.