blaðið - 28.12.2006, Blaðsíða 26
•c
*
#
L DESEMBER 2006
Utskrift Raðgjafarskólans
Skólaslit og útskrift Ráðgjafarskóla Islands fóru fram í Háskóla
(slands 16. desember og var þetta í fimmta sinn sem skóiinn út-
skrifar nemendur. Alls hafa 82 nemendur lokið prófi frá skólanum
frá því að hann tók til starfa. Námsefni skólans er viðurkennt af
alþjóðlegu fagráði á sviði áfengis- og vímuefnaráðgjafar.
blaöiö
Umgöngumst skotelda af varúð
Mikilvægt er að fólk fari varlega með skotelda nú um ára-
mótin og geri nauðsynlegar varúðarráðstafanir til að koma
í veg fyrir að slys hljótist af þeirra völdum. Ekki gleyma að
nota hlífðargleraugu og áfengi og skoteldar eiga að sjálf-
sögðu aldrei samleið.
Fyrsta flokks
íslenskur harðfiskur
GULLFISKUR
Margir reyna að hætta að reykja um áramót
Drepið í rettunni
Síðasta sígarettan Mik-
ilvægt er að fólk búi sig
vel undir það andlega
að hætta að reykja.
Margir grípa tækifær-
ið um áramótin til
að gera gagngerar
breytingar á lífshátt-
um sínum, breyta um mataræði
eða hreyfa sig meira. Þá má ekki
gleyma þeim sem strengja þess
heit að hætta að reykja á þessum
tímamótum. Guðrún Árný Guð-
mundsdóttir, hjúkrunarfræð-
ingur og ráðgjafi í reykbindindi,
segir að það sé ekki endilega gott
að hætta að reykja strax 1. janúar
heldur ætti fólk fyrst og fremst að
setja sér markmið um að hætta á
nýja árinu.
„Þetta tekur svolítinn tíma og
vinnu og fólk þarf að undirbúa sig
andlega, byggja sig upp og fá trú á
sjálft sig,“ segir Guðrún og bendir á
að fólk þurfi að gera sér grein fyrir
því af hverju það vilji hætta.
„Maður á ekki að hætta fyrir ein-
hvern annan heldur fyrst og fremst
fyrir sjálfan sig því að það er hugar-
farið sem gildir. Hjálpartækin eru
góð með en fyrst og fremst þarf
maður að vera undir þetta búinn
andlega,“ segir Guðrún sem ráðlegg-
ur fólki að gefa sér smátíma til und-
irbúnings.
Góður undirbúningur mikilvægur
„Á þeim tíma er gott að æfa sig
svolítið, prófa til dæmis að reykja
ekki við ákveðnar aðstæður eða
seinka því aðeins að kveikja sér í
sígarettu. Maður þarf að brjóta upp
allar venjur sem hægt er að brjóta
upp á meðan maður er að undirbúa
sig,“ segir Guðrún og bendir á að oft
séu reykingar tengdar tilteknum að-
stæðum í daglegu lífi fólks. „Ef þú
ert til dæmis vanur að fá þér sígar-
ettu eftir matinn kemur sú tenging
mjög sterkt upp í hugann. Það er
mjög gott að rjúfa þessa tengingu
á meðan fólk er enn þá að reykja. Á
þessum tíma finnur fólk líka hvað
virkar og hvað ekki. Það er erfitt að
gera þetta þegar fólk er að hætta al-
veg,“ segir Guðrún.
Gott er að velja dag til að hætta
þegar fólk er ekki undir miklu álagi
en annars á fólk að reyna að halda
sínu striki og láta reykleysið ekki
Flugeldasala fa
Ktii’aimimismtais1
Þetta er
sú minnsta
Sprengjukóngurinn
verður á staðnum
100 sk@ta
300 skota
kökur með 1
til 2" hólkum
Flugeldasala
T
<4
‘ -ý.
4~