blaðið - 28.12.2006, Side 30
46
FIMMTUDAGUR 28. DESEMBER 2006
blaðið
Konur kaupa
Konur hafa töglin og hagldirnar þegar kemur að því að kaupa
inn vörur og hluti.
Konur í Bandaríkjunum eiga heiðurinn af því að kaupa 85 pró-
sent af allri neysluvöru þar i landi.
Konur kaupa:
94 prósent af öllum húsgögnum
93 prósent af öllum lyfjum og heilsuvörum
93 prósent af allri matvöru
92 prósent af ferðalögum og ferðum
91 prósent af öllu nýju húsnæði
Þær kaupa 85 prósent bílum
Kaupmáttur kvenna
Bandarískar konur hafa þriðja mesta kaupmátt í
heiminum í dag og kaupa fyrir meira en allt hagkerfi
Japans samanlagt á hverju ári. Konur í Bandaríkj-
unum eiga samanlagt 76 milljón kreditkort sem eru 8
milljónum fleiri kort en karlmenn eiga þar i landi.
konan
konan@bladid.net
ROPEYOGA
Saga kvenna
á íslandi
Á slóðinni fjallkonan.is er að
finna brot úr sögu kvenna á ís-
landi frá 1874 og til
dagsins í dag. Vef-
urinn er gerður að
tilstuðlan Minjasafns
Reykjavíkur og varð
til eftir þátttöku
safnsins í samevr-
ópsku samstarfs-
verkefni sem
stendur fyrir því
að gera sögu
kvenna meira
aðgengilega.
Vefurinn er
skemmtilega
útfærður
og hægt er
að flakka
um sög-
una á mjög
lifandi og
myndrænan
hátt. Þar er
einnig að
finna ýmsar
staðreyndir
og tölfræði
um líf kvenna
á fslandi hér
áður fyrr og
fram til okkar
tíma.
iHildur Hermóðsdóttir hefur
■■ < í)m H
atvinnu að lesa bækur
áð
■
uri mcð dniww
Hildur Hermóðsdóttir er eig-
andi Sölku Hún segir spennandi
ár framundan hjá forlaginu.
8. janúar
Skráning í síma:
891-7190
WELEDfl
Vatnsfosancfí fírfísají
noffur og góður \jjir kátícfarnar
Birkisafinn frá Weleda hefur
verið vinsæll undanfarin misseri
enda er hann einkar góður
fyrir heilsuna. Birkisafinn hefur
sérstaklega verið vinsæll hjá
þeim sem vilja léttast enda
örvar hann vatnslosun og styður
við náttúrulega úthreinsun
líkamans, en eins og margir vita
er úthreinsun líkamans mikilvæg
fyrir likamlega vellíðan og vert að
hafa í huga núna um hátíðarnar.
Birkisafinn losar bjúg.
Birkisafinn er unnin úr
þurrkuðum birkiblöðum.
Hægt er að fá birkisafann með
og án hunangs.
Þrátt fyrir að safinn sé kenndur
við birki bragðast hann síður
en svo eins og þessi ágæta
trjátegund. Þetta er bragðgóður
drykkur sem gott er að blanda
með vatni og eiga tilbúinn í
kæliskáp.
Útsölustaðir:
Heilsuhúsin, Fræið Fjarðarkaupum, Maður lifandi, Heilsuhornið Akureyri,
Blómaval, Lyfja og Apótekið, Lyf og heilsa og Apótekarinn , Sólarsport Olafsvík,
Femin.is, Lífsins lind Hagkaupum, Lyfjaval, Barnaverslanir og sjálfstætt starfandi
apótek um allt land.
Birkisafi örfar vatnslosun og er því hentug
lausn fyrir þá sem vilja missa nokkur kíló.
Hildur Hermóðsdóttir er eigandi
og annar stofnandi Sölku bókafor-
lags. Bókaforlagið var stofnað árið
2000 og er því að hefja sjöunda
starfsár sitt. Forlagið hefur þá sér-
stöðu að gefa út bækur sem eru sér-
staklega fyrir konur. Hildur segir að
sér hafi fundist vanta forlag þar sem
konur réðu ferðinni og hefði sjónar-
mið kvenna að leiðarljósi.
Bækur sem höfða til kvenna
„Við göngum út frá áhugasviði
kvenna og flestar bækurnar sem við
gefum út eru miðaðar að því,“ segir
Hildur. Bækurnar frá Sölku eru ekki
eingöngu eftir konur en það má
segja að skáldsögur, bæði þýddar og
innlendar, handbækur og ferðabæk-
ur séu í aðalhlutverki auk þess sem
þær gefa út barnabækur.
„Það er alltaf einhver afstaða sem
við tökum með útgáfu hverrar bók-
ar og það er hugmyndin að gefa út
bækur sem eru flokkaðar sem fem-
ínískar. Við gáfum líka út bókina
Við öll eftir Steingrím J. Sigfússson
þannig að það mætti segja að við
værum femínískt og náttúruvænt
bókaforlag en síðan gefum við líka
út bækur um allt þar á milli, þær
bækur sem okkur finnst áhugaverð-
ar og spennandi hverju sinni.“
Hildur segir að það sé kannski erf-
itt að festa hendur á því nákvæmlega
hvernig bækur það eru sem höfða
frekar til kvenna. „Konur eru samt
duglegar að lesa ýmis konar hand-
bækur og sjálfsræktarbækur sem
fjalla um heilsu og hvernig hægt er
að bæta líf sitt.“
Bækurnar frá Sölku koma út árið
um kring og miða ekki frekar að því
að taka þátt í jólabókaflóðinu svokall-
aða. „I ár var áherslan hjá okkur á alls-
konar handbækur og uppskriftabæk-
ur. Við gáfum meðal annars út bók
sem hefur verið mjög vinsæl og heitir
Endalaus orka og gefur hugmyndir
að því hvernig fólk getur búið til hina
ýmsu safa sem veita orku og vellíðan.
Fyrsta bókin sem við gáfum út á síð-
asta ári var bók sem er eftir Valgeir
Skagfjörð og heitir Fyrst ég gat hætt
þá getur þú það líka. Bókin fjallar
um leiðir til þess að hætta að reykja
og okkur fannst við hæfi að gefa út
þessa bók í byrjun árs enda margir
sem setja sér það takmark að hætta
að reykja á slíkum tímamótum.”
Skemmtilegast að sjá
nýja bók verða til
Mörgum finnst það áreiðanlega
öfundsvert að fá að lesa bækur að
atvinnu og Hildur segir að það sé að
sjálfsögðu stór hluti starfsins að lesa
og velja úr hvaða bækur á að gefa út.
,Mér finnst skemmtilegast við starf-
ið að sjá nýja bók verða til og fá að
ákveða hvernig hún eigi að líta út og
í hvaða farveg hún fer,“ segir Hildur.
Sú bók sem henni fannst einna eftir-
minnilegast að vinna að á árinu var
bókin Delicous Iceland sem fjallar
um ferðalög og ævintýramennsku á
íslandi þar sem girnilegur matur úr
íslensku hráefni og fallegt landslag
er í aðalhlutverki. „Bókin kom út
á ensku og er hugsuð fyrir erlenda
ferðamenn en það liggur fyrir að
gefa þá bók út á íslensku á nýju ári.“
Fyrsta bókin sem kemur út á nýju
ári hjá Sölku er ný íslensk bók sem
fjallar um átröskun og Hildur segir
að hún finni nú þegar fyrir miklum
áhuga á þeirri bók. Framundan er
spennandi ár í bókútgáfu hjá Sölku
að sögn Hildar en forlagið er nýflutt
í nýtt húsnæði í Skipholti 50 C.
Skemmtileg ráð fyrir konur
Lífsreglur Parísarkvenna
Nýverið kom út önnur bók eftir
Mireille Guiliano sem er höfundur
bókarinnar French Women Don't
Get Fat eða Franskar konur fitna
ekki eins og hún heitir á íslensku.
Bókin heitir French Woman for All
Seasons (Frönsk kona alla daga)
og í henni gefur höfundurinn áhuga-
sömum lesendum sínum fleiri ráð
og leiðbeiningar um hvernig eigi
að versla, elda, halda veislur og
eyða frítíma sínum að hætti París-
arkvenna. (bókinni er að finna 100
heilsusamlegar uppskriftir sem
lífga upp á tilveruna
um leið og þær
hjálpa til við að létta
líkamann. Fyrri bók
Guiliano hefur fengið
þó nokkra athygli en
í henni er megrunar-
kúrum sagt stríð á
hendur og sýnt fram
á hvernig hægt er
að koma línunum í
lag en um leið njóta
þess að borða
góðan mat og njóta
lífsins lystisemda.
French Woman for All
Seasons gefur ráð sem
teygja sig út fyrir eldhúsið
og þar er meðal annars
að finna leiðbeiningar
um hvernig eigi að bera
slæðu og halda veislur
með skömmum fyrirvara
auk annarra nytsamlegra
ráða fyrir konur sem vilja
eiga skemmtilegt líf án
þess að hafa áhyggjur af
aukakílóum.