blaðið - 28.12.2006, Side 39
blaóið
ISEMBER 2006 55
Stöð 2 kl. 9.35
Ofurfóstran
í vestrinu
Ofurfóstran Jo Frost er kornin
til Bandaríkjanna þar sem
hennar bíður ærið verk, að
kenna ungu og ráðþrota fólki
að ala upp og aga litla og að því
er virðist óalandi og óferjandi
ólátabelgi. Þættirnir eru sýndir
á Stöð 2.
Frost hefur slegið rækilega í
gegn beggja vegna Atlantshafs,
ekki einungis fyrir skemmti-
lega þætti heldur einnig vegna
þess að hún þykir gefa gagnleg
uppeldisráð sem virkilega skila
árangri. Ofurfóstran hefur enda
slegið í gegn um heim allan, er
sýnd í 47 löndum og hefur bók-
in hennar Supernanny: How to
Get the Best from Your Children
nær linnulaust vermt toppsæti
sölulista New York Times síðan
hún kom út í janúar 2005.
Sirkus kl. 21.00
Bardagi um
ofurskutlu
Hann er ekki horfinn af sjón-
arsviðinu, Boston Rob úr Survi-
vor og síðar úr
Amazing Race.
Hann er stjórn-
andi þáttarins
The Player, sem
sýndur er á sjón-
varpsstöðinni
Sirkus klukkan
níu í kvöld.
Þrettán karlmenn berjast
um hylli ofurskutlunnar Dawn
Olivieri í þessum þáttum þar
sem einn mun standa uppi sem
sigurvegari.
Stöð 2 bíó kl. 14.00
Anastasía
sleppur
Spennandi teiknimynd um
ævintýri Anastasíu keisaradótt-
ur á Stöð 2 bíó í dag klukkan
14. Galdramaðurinn Raspútín
sór þess dýran eið að þurrka út
rússnesku keisarafjölskylduna
en Anastasía litla komst undan.
Henni er hins vegar ekki kunn-
ugt um hver hún er í raun og
veru. Þegar amma hennar býð-
ur hverjum þeim sem getur haft
uppi á barnabarni hennar væna
fúlgu eru Dímítrí og Vladímír
staðráðnir í að finna einhverja
sem gæti hugsanlega verið keis-
aradóttirin og þegar þeir rekast
á Anastasíu finnst þeim hún
alls ekki óvænn kostur.
íþróttamaður ársins í beinni í kvöld:
Eiður gæti jafnað
met Vilhjálms
Eiður Smári Guðjohnsen knattspyrnumaður
á í kvöld möguleika að jafna met Vilhjálms Ein-
arssonar og verða kosinn íþróttamaður ársins
þrisvar í röð. íþróttafréttamenn kusu Vilhjálm
íþróttamann ársins á árunum 1956,1957 og 1958.
Vilhjálmur verður þó enn sá sem oftast hefur
verið valinn íþróttamaður ársins, alls fimm sinn-
um. Hann vann einnig árin 1960 og 1961.
Fyrsta konan til að Filjóta titilinn var Sigríður
Sigurðardóttir handknattleiksmaður. Það var
árið 1964. Ragnheiður Runólfsdóttir var önnur
konan til að landa titlinum og var það árið 1991.
Á síðustu árum hefur verið algengt að menn
landi titlinum tvö ár í röð. Eiður Smári
síðustu tvö eins og fyrr sagði. Þar á undan
Ólafur Stefánsson handknattleiksmaður á
árunum 2003 og 2002 og Örn Arnarson sund
kappi árin 1998 og 1999. Hann varð einnig hlut-
skarpastur árið 2001. Loks var það Jón Arnar
Magnússon tugþrautarkappi sem hlaut titilinn
árin 1995 og 1996.
Bein útsending frá árlegu hófi Samtaka
íþróttafréttamanna verður bæði á Sýn
og i Sjónvarpinu klukkan átta í
kvöld.
sófar
stólar
Sófasett
borðstofuhúsgögn
indverskt
gjafavara
mlia
20-50%
afsláttur