blaðið - 31.03.2007, Page 3

blaðið - 31.03.2007, Page 3
e Kæru Hafnfirðingar straumsvik.is 6ÉrTRA k AUV». Flestum þykir líklegt að endurnýjanlegir orkugjafar okkar íslendinga verði að hluta til nýttir til áframhaldandi uppbyggingar áliðnaðar í landinu. Val Hafnfirðinga snýst um hvort rekstur álvers verði áfram innan bæjarfélagsins eða hvort byggt verður frá grunni annars staðar á landinu. I þeim efnum eru miklir fjármunir í húfi. Þess vegna biðjum við íbúa í Hafnarfirði um að taka vel ígrundaða afstöðu þegar þeir ákvarða um örlög álversins í Straumsvík. Með bestu kveðju og von um góða þátttöku í kosningunum á morgun, Rannveig Rist forstjóri Alcan á íslandi I aðdraganda kosninganna um framtíð álversins í Straumsvík höfum við kappkostað að kynna röksemdir okkar með málefnalegum hætti. Við höfum bent á mikilvægi þess að stækka verksmiðjuna til þess að tryggja samkeppnishæfni hennar. Við höfum sýnt fram á það með óyggjandi rökum að mengun frá álverinu er óravegu frá þeim mörkum sem ógna heilsu fólks. Við höfum sýnt fram á það að heildartekjur bæjarfélagsins af starfsemi stækkaðs álvers verða á hverju ári um einn og hálfur milljarður króna. Við höfum dregið upp mynd af ásýnd álversins eftir stækkun og færslu Reykjanesbrautarinnar og við höfum beint athygli að þeim miklu verðmætum sem felast í reynslu og þekkingu um 450 starfsmanna sem að meðaltali hafa unnið að álframleiðslu í 15 ár.

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.