blaðið - 31.03.2007, Blaðsíða 8

blaðið - 31.03.2007, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 31. MARS 2007 blaAiö Reykt brauöskinka álegg í nýjum og endur lokanlegum umbúðum. Búrfell er heiti á fjalli ... raunar mörgum fjöllum á íslandi sem öll eru svipuð að lögun. Sumir telja að heitið Búrfell sé skírskotun til kistuformsins, nánar tiltekið búrkistu eða matarkistu. Það er fín tilgáta. Vörurnar frá Búrfelli eru Ijúffengar gæðakjötvörur en á sérlega góðu verði. Búrfellsáleggið er í endurlokanlegum umbúðum, enda er gott að geta lokað matarkistunni sinni. Búrfell, góöur matur á borö UTAN ÚR HEIMI ÚGANDA jT Herinn drap 66 börn Talsmaður bresku hjálparsamtakanna Save the Children segir að stjórn- arher Úganda hafi drepið 66 börn í aðgerð sinni sem átti að beinast gegn gripaþjófum í austurhluta landsins fyrr í mánuðinum. „Börnin voru skotin af hermönnum, urðu fyrir farartækjum hermannanna eða heilu flokkunum af flýjandi dýrum.“ Talsmenn úganska hersins hafna ásökununum. Neonljós í Rauða-hverfinu Lögregla vill auknar heimil- dir til hlerana og eftirlits og segir neonskiltin ekki næga visbendingu til að ráðast til inngöngu. Aðstoðarlögreglustjóri á málfundi um vændi: Kaupendur eru mikilvæg vitni ■ Möguleikar lögreglu aukast ■ Annmarkar á sænsku leiðinni ■ Ábyrgðin hjá þeim sem kaupir Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@bladid.net JónH.B.Snorrasonaðstoðarlögreglu- stjóri telur óheppilegt að gera kaup- endur vændis að sakborningum þar sem þeir geti verið mikilvæg vitni í skipulagðri glæpastarfsemi, að því er kom fram á málfundi Lögréttu í Háskólanum í Reykjavík í gær. Jón sagði það jafnframt mikilvægt að vændi skuli alfarið hafa verið gert refsilaust fyrir þá sem selja líkama sinn. Við það aukist möguleikar lög- reglu á að upplýsa starfsemina. „Það er vegna þess að við teljum að skipulagningin sé ekki í höndum þeirra sem selja líkama sinn,“ sagði Jón og bætti því við að yfirleitt væri um konur að ræða í þessari stöðu. „Þær eru fórnarlömb þessarar glæpa- starfsemi. Að gera þetta refsivert fyrir þær er mjög þýðingarmikið,“ lagði Jón áherslu á benti e t u o n - urnar greint frá kvölurum sínum og þeim sem hefðu hagnað af vændinu. Sigurður Kári Kristjánsson, þing- maður Sjálfstæðisflokksins, minnti á að áður hefði það varðað allt að tveggja ára fangelsi að stunda vændi sér til framfærslu en ekki ef það væri stundað í nokkur skipti. Það hafi því verið lögmætt upp að vissu marki. Markmiðið með lagabreyt- ingunni hafi ekki verið að hvetja til vændis, heldur að rétta þeim sem hefðu leiðst út í vændi hjálparhönd. Sænsku leiðina, það að gera kaup á vændi refsivert athæfi, sagði Sig- urður hafa ótvíræða annmarka. „Hún færir vændið af yfirborðinu í undirheimana,“ sagði Sigurður og bætti því við að hann hefði ekki áhyggjur af því að vændi ykist og rauð hverfi spryttu upp vegna laga- breytingarinnar eins og sumir virt- ust óttast. Kolbrún Halldórsdóttir, maður Vinstri grænna, kvaðst hafa lagt það til að sænska leiðin yrði farin. „Ábyrgðin er ekki hjá þeim sem leiðast út í vændi, heldur þeim sem býr til eftirspurnina, þeim sem í krafti pen- inga og sterkrar stöðu sinnar hefur hið eiginlega val til að ákveða að kaupa ekki.“ Að mati Kolbrúnar er það ekki nóg að refsa þeim sem miðlar vændi. „Ef refsinæmi hvílir einungis á miðl- aranum er sá sem selur og kaupir án miðlara að framkvæma algjör- lega löglegt athæfi. Ég sé það ekki öðruvisi." Það er skoðun aðstoðarlögreglu- stjórans að þótt möguleikar lög- reglu á að upplýsa vændi hafi aukist með lagabreytingunni þurfi hún auknar heimildir til að rannsaka skipulagða glæpastarfsemi. Vændi og fíkniefnasala tengist oft og um sé að ræða ábatasaman iðnað. „Lög- reglan þarf betri og greiðari mögu- leika á hlustun á herbergjum og sím- hlustun. Lögreglan getur ekki farið af stað þótt neonskilti sé komið einhvers staðar þótt þar sé bragur sem ber með sér að þar sé rekin dórsdóttir, Jón H. B. Snorra- son og Sigurður Kári Krist- jánsson á málfundi Lögréttu I Háskólanum í Reykjavík í gær.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.