blaðið - 31.03.2007, Blaðsíða 61

blaðið - 31.03.2007, Blaðsíða 61
blaöið LAUGARDAGUR 31. MARS 2007 61 Skjáreinn sunnud. 20.40 Svakalegur „miðiir Psych eru meinfyndnir gaman- þættir um einstakan mann með mikla hæfileika. Það er ekki auðvelt að vera með einstak- lega góða athyglisgáfu ef eng- inn tekur mark á því sem maður er að segja. Þetta þurfti Shawn að sætta sig við þar til að hann fékk þá snilldarhugmynd að þykjast vera skyggn til að ná athygli lögreglunnar. Unglings- piltur hverfur og Shawn er kom- inn á sporið. Hæfileikar hans leiða hann á ráðstefnu þar sem aðdáendur hasarblaða koma saman. RÚV mánudag 20.20 Regnmaðurinn sjálfur Hvað varð um Regnmanninn, Kim Peek, sem Dustin Hoffman lék svo eftirminnilega? í þessari bresku heimildarmynd er sagt frá þessum frægasta sérvitringi heims sem skaddaðist á heila í fæðingu en man allt sem hann les og lærði að reikna svo hratt að vísindamenn botna ekkert í því hvernig hann fer að því. Skyldi hann ennþá vera að telja spil og kvarta undan því að heita vatnið brenni barnið? Sirkus sunnudag 22.00 Hver negldi systur sína? Say It Isn't So er allsérstök gamanmynd um óhugnanlega atburði. Josephine Wingfield er stóra ástin í lífi Gilberts Noble. Hann hefur aldrei verið ham- ingjusamari en gleði hans breyt- ist í martröð þegar hann fréttir að Josephine sé systir hans. Þau hætta auðvitaö saman en síðar kemst Gilbert að því að Josephine er ekki systir hans. Þá er Josephine á leið í hjóna- band með öðrum manni en Gilbert er staðráðinn í að vinna hjarta hennar á nýjan leik. Vinsæll sjóræningi: Siglir Sparrow sóló um sæ? Samkvæmt nýjustu slúðurmol- unum á Netinu er alls ekki víst að Johnny Depp sé búinn að setja sjóræningjahattinn og stígvélin á hilluna jafnvel þótt síðasta mynd- in í Pirates of the Caribbean-þrí- leiknum, At World's End, verði senn frumsýnd. Disney-kvik- myndaverið hefur ítrekað sagt að myndin sú verði hin síðasta í röð þessara mynda en það þarf þó ekki að þýða dauða hins ástsæla Jack Sparrow sem Depp hefur skapað. Samkvæmt áreiðanlegum heim- ildum hefur Depp ítrekað sagt að hann vildi gjarnan halda áfram að leika hinn áfengissjúka sjóræn- ingja og herma nú heimildir að Disney sé alvarlega farið að íhuga það að framleiða kvikmynd með Jack einum í aðalhlutverki. Það sem rennir stoðum undir þetta er að mörgum af stærri mununum sem voru notaðir við gerð síðustu myndarinnar var ekki fargað held- ur settir í geymslu þannig að lík- lega væri hægt að nýta þá á aftur. Meðleikari Depps, Orlando Blo- om. sagði í nýlegu viðtali að hann hefði vissulega heyrt þessar sögu- sagnir en hann sagði þó að ekki hefði verið haft samband við sig varðandi það að leika í fleiri sjó- ræningjamyndum. Greinilegt að hann er orðinn landkrabbi. _ _ _ _ _ _______ GRIPTU TÆKIFÆRIÐ GRILLAÐU UM PÁSKANA Þetta er einungis brot af úrvali Grillbúðarinnar Kíktu á netið eða komdu í heimsókn 2ja brennara gasgrill Afköst. 5kw/h = 17.000BTU Grillflötur: 43x34 cm Öflugt og ódýrt grill Afköst: 16,5kw/h = 56.000 BTU LANDMANN 3 brennarar úr pottjární ....... Grillgrindur úr pottjárni Grillflútur: 64x49cm, Hitamælir Mtxed Souiccí Ol’N U N ARTILBOD OPNl IN ARTH.BOf) OI'XLNARTII.HOU Nýtískulegt gríll frá Landmann Ryöfrýtt stál, grind Tekk og Ál Afköst: 16,5kw/h = 56.000 BTU 3 brennarar úr pottjámi Grillgrindur úr pottjárni Grillflötur: 64x49cm, Hitamælir OPNUNARTILBOÐ IANDMANN Askalind 4,201 Kópavogur - sími 554-0400 - www.grillbudin.is LANDMANN Úrval mjög vandaðra garðhúsgagna úrTekki frá Landmann í Svíþjóð Gashitari úr ryðfríu stáli Orka: 5-14kw/h (stiglaust) Hitunarsvæði: ca 6-7 m Stærð: 076 x 220 cm 24.900 49.900 Mikið úrval af aukahlutum fyrir grill Opið virka daga 9-18 Laugardaga 10-18 Sunnudaga 12-18
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.